blaðið - 11.04.2007, Blaðsíða 18

blaðið - 11.04.2007, Blaðsíða 18
26 MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 2007 blaöiö kolbrun@bladid.net Andstreymi lífsins byrjar meö hjóna- bandinu. Viktoría drottning Afmælisborn dagsms GEORGE CANNING, BRESKUR FORSÆTISRÁÐHERRA, 1770 DEAN ACHESON, BANDARÍSKUR STJÓRNMÁLAIVIAÐUR, 1893 JPV úfg cstcs Ljósmyndun og tíska Fimmtudaginn 12. apríl kl. 17:00 verður opnuð í Hafnar- borg, menningar- og lista- stofnun Hafnarfjarðar, sýning á verkum franska Ijósmyndarans Gilles Bensimon. Gilles Bensimon hefur á ferli sínum fylgst með framvindu tískunnar á síðustu áratugum og á sýningunni eru myndir af mörgum glæsilegum konum sem hann hefur með störfum sínum sem Ijósmyndari tekið þátt í að skapa. Þar má m.a. nefna tískusýningastúlkurnar Naomi Campbell, Linda Ev- angelista, Claudia Schiffer og Christy Turlington, en einnig margar þekktar persónur úr kvikmyndaheiminum, eins og Madonnu, Gwyneth Paltrow, Sharon Stone, Umu Thurman og Naomi Watts. Bensimon ferðast víða um heim til að finna Ijósmyndum sínum umgjörð og hefur meðal annars komið nokkrum sinnum hingað til (slands með aðstoðarmenn sína og fyrirsætur. Hann hefur starfað sem ritstjóri og aðal Ijósmyndari Elle tísku- tímaritsins síðan 1999 en allt frá því að tímaritið kom fyrst út í Bandaríkjunum árið 1985 hefur Bensimon verið listrænn stjórnandi þess. Gilles Bens- imon hefur hlotið mikið lof fyrir störf sín og þykja verk hans sameina afburða Ijósmyndun, tísku og hönnun. Á sýningunni í Hafnarborg eru Ijósmyndir sem spanna 30 ára feril listamannsins. Stórsókn í kiljuútgáfu ú í apríl- og maímánuði frumútgefur JPV útgáfa nokkrar bækur í kilju. Þessar bækur eru Tví- burarnir eftir hollenska höfundinn Tessu de Loo og Saffran- eldhúsið sem er er fyrsta skáldsaga eftir hina íranskættuðu Yasmin Crowther. Skíðaferðin er hreint mögnuð skáldsaga eftir franska höf- undinn Emmanuel Carrere. Hvítt á svörtu er eftir rússneska höfundinn Ruben Gallego en hann fæddist með heilahrörnunarsjúkdóm en föðurafi hans skammaðist sín svo fyrir dreng- inn að hann sendi hann burt aðeins ársgamlan og taldi móður hans trú um að hann væri dáinn. Þessi bók hlaut rússnesku Booker-verðlaunin 2003 og hefur komið út á fjölda tungu- mála. Loks skal nefna tvær spennu- sögur, Fimmta riddarann eftir James Patterson og Síðasta musterisriddar- ann eftir Raymound Khoury. Vel heppnuð tilraun Þegar Jóhann Páll Valdimarsson útgáfustjóri JPV er spurður um þessa öflugu frumútgáfu á bókum í kilju seg- ir hann hana hafa átt sér nokkurn að- draganda: „Almenn bókaútgáfa hér á landi hefur að mestu verið bundin við jólin vegna þeirrar hefðar að gefa bækur í jólagjöf. Án þessarar hefðar væri íslensk bókaútgáfa ekki svipur hjá sjón og því ætti aldrei að gera lítið úr jólabókaflóðinu svonefnda. Jólabækurnar eru fyrst og fremst innbundnar bækur í vönduðum bún- ingi og þar af leiðandi hærri í verði en bækur sem koma út í kilju. Það má segja að straumhvörf hafi orðið í út- gáfu á kiljum árið 2002 en þá gaf JPV út sex kiljur samtímis að vori. Þetta voru bækur sem höfðu komið út jólin á undan. Ég vildi fá þeirri spurningu svarað hvort grundvöllur væri fyrir raunverulegri sókn í kiljuútgáfu á íslandi og fannst að það hefði ekki verið gerð nægilega marktæk tilraun. Vissulega höfðu komið út kiljur áður en ekki hafði verið um mikla sölu að ræða á almennum markaði og útgáf- an byggðist fyrst og fremst á klúbba- sölu. Til þess að láta virkilega á þetta reyna gáfum við sem sagt út sex kiljur samtímis og gerðum sérstaka sölustanda og vorum með þá á fleiri útsölustöðum en áður þekktist. Hugs- unin var að þeir væru þar sem fólkið væri flest eins og í stórmörkuðum og að sjálfsögðu bókabúðum. Við fylgdum þessu síðan eftir með auglýs- ingum til að bakka þetta upp. Þessi tilraun tókst frábærlega og ljóst að íslendingar vildu kaupa bækur fyrir sjálfa sig á meira en helmingi lægra verði en hefðbundnar jólabækur. Nú er komið að því að láta á það reyna hvort ekki sé hægt að frumút- gefa bækur í kilju, það er bækur sem ekki hafa áður komið út í innbund- um útgáfum. Þeir sem fjalla um bækur í fjölmiðlum hafa mikið talað um að alltof margar bækur komi út á sama tíma og ekki sé tími né að- staða til að fjalla um þær allar. Þessi tilraun er Uka tilraun til að koma til móts við þær óskir og reyna að dreifa útgáfunni og umfjöllun um bækur yf- ir allt árið.“ Tækifæri fyrir íslenska höfunda Jóhann Páll segir grundvallarat- riði að þeir sem fjalla um bókmennt- ir taki kallinu og veiti bókunum eðlilega athygli og umfjöllun. „Frum- útgáfa í kilju er mun kostnaðarsam- ari en að gefa út í kilju áður útkomna bók í bandi. Það er því ekki hægt að leggja sama kostnað í auglýsingar og algengt er á jólamarkaði og umfjöll- un fjölmiðla og áhugi almennings forsenda þess að þetta takist. Reginmunurinn á jólabókaútgáf- unni og kiljuútgáfunni á öðrum árs- tíma er að kiljurnar er fólk að kaupa handa sjálfu sér til lestrar þó auðvit- að séu þær eitthvað keyptar til gjafa líka. Það hvað fólk hefur tekið þessu vel er áskorun til útgefenda að auka úrvalið enn frekar og það hyggjumst við gera,“ segir Jóhann Páll. Þegar hann er spurður hvort bæk- urnar sem koma nú út í kilju eigi eitt- hvað sameiginlegt segir hann: „Sex fyrstu bækurnar sem koma út í apr- íl og maí eiga það kannski fyrst og fremst sameiginlegt að vera bækur sem ég hef trú á að fólk hafi áhuga á að kaupa fyrir sjálft sig að lesa. Þær eru fjölbreyttar að efni. Þær eru allar þýddar en draumur minn er að bæk- ur íslenskra höfunda komi í frumút- gáfu í kilju líka. Það er fjöldinn allur af bitastæðum handritum íslenskra höfunda sem ekki er pláss fyrir á jólamarkaðnum og þarna gæti verið vettvangur til að gefa nýjum höfund- um tækifæri til að koma út verkum sínum. Til þess að geta haldið verð- inu meira en helmingi lægra en á innbundum bókum þarf að prenta að lágmarki 2000 eintök sem er all- nokkuð þannig að undirtektir þurfa vissulega að vera góðar ef þetta á að ganga upp. Ef þessi tilraun heppnast verður ekkert lát á frumútgefnu efni í kilju. Nú er bara að bíða dóms þjóð- arinnar og undirtekta fjölmiðla." F Jóhann Páll Valdimarsson„Sex |* fyrstu bækurnar sem koma út ** i apríl og maíeiga það kannski — fyrst og fremst sameiginlegt að m vera bækur sem ég hef trú á að fólk hafi áhuga á að kaupa fyrir S sjáift sig að lesa." Mynd/Colli m Amin steypt af stóli Á þessum degi árið 1979 flúði ein- ræðisherrann alræmdi Idi Amin frá Kampala, höfuðborg Úganda, þegar tansaníski herinn ásamt úgönskum andspyrnuhópum nálguðust borg- ina. Tveimur dögum seinna féll Kampala og samsteypustjórn fyrr- um útlaga tók við völdum. Amin var yfirmaður úganska hers- ins þegar hann rændi völdum árið 1971. Ári seinna skipaði hann öllum Asíubúum sem ekki höfðu úganskan ríkisborgarrétt að yfirgefa landið og um 60.000 Indverjar og Pakistanar mennmgarmolmn flúðu landið. Þessi hópur hafði skipt gríðarlegu máli í atvinnuuppbygg- ingu landsins og eftir brotthvarf þeirra hrundi efnahagur landsins. Ámin gerði misheppnaða innrás inn í Tansaníu í októbermánuði 1978 en Tansaníuher brást hart við og úganskir andspyrnuhópar gengu til liðs við herinn. Amin flúði til Líbýu en settist síðan að í Sádi-Arabíu þar sem hann lést árið 2003. Á valdatíma sínum sýndi hann mikla grimmd og talið er að hann hafi borið ábyrgð á dauða 300.000 Úgandabúa. heilsa c-1000 Extra sterkt, náttúrulegt C-vítamln með rósaberjum, rútínl og blóflavóníöum 60 töflur Sólargeislinn í skammdeginu Wj___________ ^oavO KXíHI -hafðu það gott

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.