blaðið - 11.04.2007, Blaðsíða 20

blaðið - 11.04.2007, Blaðsíða 20
neytendur@bladid.net blaðið Akstur iönaöarmanna I nýlegum dómi er staðfest að iðnaðarmönnum er óheimilt að rukka einhliða aksturs- og tækjagjald ásamt því að bæta virð- isaukaskatt ofan á tilboð. Einnig kemur þar fram að aðeins á að greiða fyrir unnar stundir en ekki útkall. Þetta kemur fram á vef Neytendasamtakanna. Vissir þú að... i Samkvæmt lögum um þjónustukaup er seljanda þjónustu skylt |að uþþlýsa um hvort fyrirhuguð kaup á þjónustu eru óhagkvæm fyrir neytandann að teknu tilliti til kostnaðar við verkið með hliðsjón af verðgildi hlutarins eða öðrum atriðum sem hafa áhrif á hagkvæmni þjónustunnar sem ieitað er eftir. r/Gjöld" verði réttnefni lcelandair hefur fallist á tilmæli talsmanns neytenda þess efnis að nefna ekki hluta heildarverðs ,gjöld“ nema um sé að ræða annað- hvort valkvæða aukaþjónustu fyrir flugfarþega eða gjöld sem skylt er að greiða í hlutfalli við fjölda farþega. í tilmælum talsmanns neytenda til flugfélaganna lcelandair og lceland Express frá því í febrúar er mælst til þess að þau láti af nafngiftinni ,gjöld“ er áætlunarferðir eru seldar neytendum nema um sé að ræða réttnefni. Icelandair hefur núna fallist á þessi tilmæli og hefur fengið frest til 13.apríl til þess að Ijúka nauðsyn- legum breytingum. m Heldur liðunum liðugum! ■0S- þri heilsa IÉ3IH -hafóu þaö gott Gabor z z o !nUi b[ó' :0 rJ) 8» V Iðunn Geirsdóttir, gæðastjóri Myllunnar Magn transfitusýra markvisst minnkað Hildur Edda Einarsdóttir hilduredda@bladid.net Miklar umræður hafa verið undan- farið um svokallaðar transfitusýrur í matvælum, en mikil neysla á þeim er þekkt fyrir að auka líkur á hjarta- og æðasjúkdómum. í Danmörku hafa verið sett lög um leyfilegt há- mark transfitusýra í matarolíu, við- biti og smjörlíki, en olía og fita sem notuð er í unnin matvæli má ekki innihalda meira en 2 prósent af transfitusýrum. í Bandaríkjunum er öllum matvælaframleiðendum skylt að setja upplýsingar um hlut- fall transfitusýra og kólesteróls á umbúðirnar. Én þó svo að ámóta reglur séu ekki við lýði hér á landi enn þá hafa matvælaframleiðendur á borð við Mylluna tekið ákvörðun um að minnka magn transfitusýra í sínum vörum. Iðunn Geirsdótt- ir, gæðastjóri Myllunnar, segir fyrirtækið einnig stefna að því að halda viðbættum sykri og salti í lág- marki og auka úrval af trefjaríkum vörum. „Fyrir nokkrum árum skiptum við smjörlíkinu alfarið yfir í olíu í þessum stóru matarflokkum á borð við samlokubrauð, pylsu- og ham- borgarabrauð, enda höfum við alla tíð fylgst mjög grannt með neyslu- könnunum og rannsóknum á holl- ustu. Okkur finnst mikilvægt að ná transfitusýrum út á sínum tíma,“ segir Iðunn. „Reyndar byrjaði þetta ekki mjög markvisst hjá okkur og við vorum ekki með neina ákveðna stefnu til að byrja með. En það hef- ur samt lengi verið markmið hjá okkur að hafa vörurnar eins hollar og mögulegt er hverju sinni. Þegar við fórum í endurskoðun á gæða- kerfinu hjá okkur horfðum við til baka og sáum að við hefðum þrátt fyrir allt gert ýmislegt fyrir aukna hollustu. Því ákváðum við að móta okkur þá stefnu að halda áfram á þeirri braut.“ Iðunn segir vinsældir hollra vara á borð við trefjarík brauð úr hráefnum eins og spelti, heilhveiti, höfrum og rúgi vera að aukast hjá íslendingum. „Á árum áður þegar við vorum að koma með trefjarík brauð á markað voru þau ekki allt- af mjög langlíf en það er að breyt- ast núna og fólk er farið að sækjast í þau, enda hefur verið mikil vit- undarvakning í gangi. Ég held að fréttir og umræður um transfitu- sýrur hafi án efa áhrif á fólk,“ bend- ir hún á. Myllan hefur sett ýmsa hollustu á markað á undanförnum árum eins og til dæmis Fitty-brauð og bollur og speltsamlokubrauð. Iðunn segir að þegar nýjar vörur komi á markað séu þær vitaskuld auglýstar en að fyrirtækið hafi ekki leyfi til að taka fram að vörurnar séu transfitusýru- lausar. „Reglugerðin um merkingu matvæla leyfir það ekki og það er náttúrulega slæmt fyrir neytendur „Reglugerðin um merkingu matvæla leyfa það ekki og það er náttúrulega slæmt fyrir neytendur sem vilja fylgjast með magni trans- fitusýra í fæði sínu.“ sem vilja fylgjast með magni trans- fitusýra í fæði sínu. Eina leiðin fyrir fyrirtæki í dag er að sækja um leyfi til þess að fullyrða um vöruna hjá Umhverfisstofnun. Ég veit að það er mikill vilji fyrir þvi hjá stofnuninni að breyta reglugerðinni en það tek- ur sinn tíma.“ Til þess að geta framleitt transfitu- sýrulaust brauðmeti skipti Myllan fyrir nokkrum árum alfarið yfir í olíu í stað smjörlíkis við gerð sam- loku-, pylsu-, og hamborgarabrauðs eins og áður sagði. „Það var hins veg- ar ekki fyrr en reglum um verndar- tolla á smjörlíki fyrir matvælafram- leiðendur var breytt að við gátum farið að flytja sjálf inn smjörlíki frá Danmörku. Islenska smjörið hefur í gegnum tíðina verið mjög ríkt af transfitusýrum og við höfðum fram að þessu enga aðra valkosti í kökur og sætabrauð. En danska smjörlíkið er transfitusýrulaust og við notum það núna í staðinn," segir Iðunn að lokum. Skólamötuneyti MikiS úrval af GABOR skóm á ótrúlegu verSi. Einstakt tækifæri! www.xena.is xcna SPÖNGINNI S: 587 0740 I tengslum við lækkun á virðis- aukaskatti á matvæli sem tók gildi 1. mars síðastliðinn hefur Neytenda- stofu borist fjöldi ábendinga vegna verðlagningar á mat handa skóla- börnum í mötuneytum grunnskól- anna. Við athugun Neytendastofu kom í ljós að þjónustan er ýmist rek- in beint af grunnskólunum að öllu leyti eða að hluta til af einkaaðilum eða blöndu af framangreindum aðferðum. í ljós kom að skilmálar grunnskóla um verðmyndun og verðlagningu á þjónustunni eru mjög óljósir eða skortir alveg í sum- um tilvikum. Að mati Neytendastofu er mikil- vægt að upplýsingar liggi ávallt fyr- ir um hvort og að hve miklu leyti annar kostnaður en hráefniskostn- aður komi fram í verði á seldum mat í mötuneytum grunnskólanna, og hefur stofnunin því sent bréf til sveitarstjórna með beiðni um að henni verði sendar upplýsingar um hvert sé hlutfall annars kostnaðar en hráefniskostnaðar í gjaldtöku fyrir seldan mat í grunnskólum landsins. Óskað er eftir því að upp- lýsingarnar berist Neytendastofu eigi síðar en í.maí næstkomandi. athuguð Grunnskólabörn á matmálstíma Neytendastofu hefur borist fjöldi Sábendinga vegna verölagningar á mat handa skólabörnum ímötu- k neytum grunnskóianna.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.