blaðið - 11.04.2007, Blaðsíða 27

blaðið - 11.04.2007, Blaðsíða 27
blaöiö MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 2007 35 Allir fóru vestur á Aldrei fór ég suður Rokkhátíð alþýðunnar Aldrei fór ég suður fór fram um helg- ina á Isafirði eins og hefur lík- lega ekki farið fram hjá neinum en að sögn Mugisonar gekk allt vonum framar. „Hátíðin var bara stórkostleg, þetta var auðvitað mikið pró- gramm en allt rúllaði stórslysa- laust“ segir Mugison. „Þetta var mjög gaman, mikið af gestum og mér fannst vera fullt út úr húsi allan tímann. Á laugardaginn byrjaði hátíðin til dæmis klukk- an þrjú og var strax orðið fullt og fólk var á svæðinu fram eftir nóttu enda eitthvað fyrir alla að sjá. Það sem gerir þessa hátíð líka einstaka er að þetta er svolítið millibil af ættarmóti og tónleik- um vegna þess að þarna mætir fólk á öllum aldri og skemmtir sér saman. Þetta er meira úr öll- um áttum en gengur og gerist. Þarna koma saman hljómsveitir eins og Ham og Mínus ásamt Sigga Björns og lúðrasveitinni. Ef ég ætti að nefna eitthvað sem mér fannst standa upp úr þá var það til dæmis Jan Mayen en það band er í sérstöku uppáhaldi hjá mér og pabba. Svo átti Pétur Ben stórleik og Calipso, band Bogomils og Flís, þeir náðu upp skemmtilegri stemningu. Svo spilaði Lúðrasveit Tónlistarskól- ans lagið We Will Rock You, en það eru svona 30 manns í sveit- inni á öllum aldri. Karlakórinn Fjallabræður frá Flateyri var flottur líka, þannig að það má eiginlega nefna ótal frábær at- riði“. Þó allt hafi gengið að óskum kom víst upp einhver misskiln- ingur með hljómsveitina Blonde Redhead sem fékk heldur óblíðar móttökur hátíðargesta. „Þetta var bara einhver smá misskiln- ingur á milli okkar og sveitarinn- ar, en það er venja á hátíðinni að hver hljómsveit spili í um 25 mín- útur og fólk mætir á bara svæðið með gítarinn og stingur honum í samband og byrjar. En við vor- um svo feimnir strákarnir sem stöndum að þessu við þessar of- urstjörnur, að ég held að við höf- um ekkert náð að útskýra þetta atriði nógu vel fyrir þeim. En ég er mjög ánægður með allt saman og er núna kominn aftur í plötuna mína og allt kom- ið í rólegheit. Svo verður hátíðin vonandi aftur að ári, það er að minnsta kosti planið.“ vera elnbelttarl í náml? geta staðlö slg vel í vlnnu? vera Jákvæöari? elga auðveldara með að eignast vlnl? vera sáttarl vlð sjálfan slg? Kiktu á naeatakynslodJs og sjáðu hvað aðrlr þátttakendur höfðu að segja um þjálfunlna. + Dale Carnegie þjálfun fyrir unglinga Næsta kynslóð er þjólfun scm er ætluö öllum unglingum sem nafa áhuga á aö ná lancjt í lifino. www. naestaicynslod.ls Hafðu samband við skrifstofu Dale Carnegie i sima 555 7080 og fóðu nánari upplýsingor um Næstu kynstoð. Kynningarfundir verða haldnir fimmtudaginn 12.apríl kl.20 mánudaginn lö.aprif ki.20 Armúla 11,3. hæö Æskilegt að foreldrar mæti með Flottur Wi MDS-60 hátalarastandur Verð 6.980 kr. Verö áður 8.PD0 Kr. Þú færð símann í vefversluninni á siminn.is eða á næsta sölustað Símans. Síminn Tilboðin gilda til 15. april

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.