blaðið - 11.04.2007, Blaðsíða 29
blaöiö
'KUDAGUR 11. APRÍL 2007 37
Talar ekki um Diaz
Justin Timberlake segist eiga erfitt með að tala um Cameron Diaz i
fjölmiðlum en parið hætti saman ekki alls fyrir löngu. „Ég get ekki talað
opinberlega um manneskju sem ég elska og virði, ég á líka mjög erfitt
með að heyra eða lesa eitthvað sem ég veit að er ekki satt um hana“.
Vill ekki grennast
Leik- og söngkonan Jennifer Lopez segist ekki
vilja verða grennri þar sem hún vill ekki vera með
minni rass og smærri brjóst. „Ég myndi aldrei vilja
vera í stærð núll, ég er með brjóst, rass og kven-
legar línur og myndi aldrei vilja sjá það hverfa. Ég
sé heldur ekki hvernig ég gæti grennt mig niður
í þá stærð en haldið heilsu engu að síður. Það
myndi ekki ganga.“ Lopez segir það vera algjöra
vitleysu þegar ungar stelpur sem starfa við mód-
elstörf eru látnar grenna sig niður í ekki neitt og
segir leyndarmálið á bak við að líta vel út vera
fyrst og fremst það að vera ánægður með sjálfan
sig og komi kílóunum ekkert við.
Ekki að leita
Leikkonan Scarlett Johanson segist ekki vera að leita
sér að manni og nýtur þess að vera einhleyp en hún
sagði í viðtali nýlega að hún væri ekki stöðugt að reyna
að finna sér kærasta enda hefði hún um nóg annað að
hugsa dags daglega. „Svo þarf sá næsti sem ég rugla
saman reytum við að mæta ákveðnum kröfum,
hann þarf allavega að slá út fyrstu ástina mína en
ég átti frábæran kærasta þegar ég var í mennta-
skóla sem ég hélt að ég myndi vera með ævina
alla. Þannig að ég miða alla karlmenn
sem ég fer á stefnumót með við
þennan fyrsta kærasta minn.“
Á stefnumóti
Vinir leikkonunnar Jennifer Aniston hafa komið henni á
blint stefnumót með athafnamanninn Ryan Kavanaugh
en þarið hittist á veitingastað í Los Angeles í vikunni.
„Við vildum bara koma henni á stefnumót. Hún hefur gott
af því og þarfnast þess. Þetta var samt eiginlega meira
viðskiptafundur en annað þar sem Kavanaugh er vell-
auðugur og fjárfestir reglulega í kvikmyndum." Aniston
sem á sitt eigið kvikmyndafyrirtæki, sem hún stofnaði
með fyrrverandi manni sínum Brad Pitt, hefur mikinn
áhuga á að framleiða nýja mynd og er spurning
hvort að hún hafi náð að heilla Kavanaugh upp úr
skónum og fengið hann til þess að útvega fjármagn
fyrir næstu framleiðslu.
iastort
Rokkarinn Avril Lavigne festi nýverið kaup á villu í Los Angeles en
húsið ku vera risastórt enda í þvi að finna tíu baðherberbergi og enn
fleiri svefnherbergi. Húsið kostaði um 700 milljónir en Lavigne keypti
það ásamt ekki eins frægum eiginmanni sínum, Deryck Whibley.
Flögrandi
fiðrildi
Björk Guðmundsdóttir flögraði
um eins og fiðrildi á sviði Laugardals-
hallarinnar á mánudag. „Það mætti
halda að það væri annar í páskum,“
sagði hún og áhorfendur tóku vel und-
ir. Með henni í för var sjálflýsandi
sveit af lúðrablásandi stelpum ásamt
öðrum hljóðfæraleikurum sem sjón-
rænt bar ekki eins mikið á.
Björk flutti nokkur lög af sinni
nýjustu breiðskífu Volta ásamt eldra
efni sem féll gífurlega vel í kramið hjá
fullri Höllinni. Af öllum listamönn-
unum sem fram komu með Björk þá
skein stjarna hennar áberandi skær-
ast. Rödd hennar var óaðfmnanleg
- hvort sem hún hljómaði lágt og ang-
urvært í laginu Vökuró af Medúllu
eða öllu æstari í Army of Me.
Magnað var að heyra lög á borð
við Pagan Poetry og Bachelorette í
stórkostlegum flutningi, en það síð-
arnefnda er hugsanlega hennar allra
besta lag. Blástursveitin kryddaði
lögin skemmtilega og Jónas Sen átti
mjög góða innkomu á hljómborð og
píanó. Innkomu kvöldsins átti þó
hinn magnaði Antony, sem er þekkt-
ur fyrir verk sin með hljómsveitinni
The Johnsons. Hann söng dúett með
Björk og gerði það skínandi vel - eins
og Björk reyndar líka.
Tónleikar Bjarkar voru heildina
frábær skemmtun og langt ofar mín-
um væntingum. Björk sýndi á sér
skemmtilegar hliðar og þá sérstak-
lega í uppklappslaginu þar sem hún
hvatti Færeyinga og Grænlendinga til
Björk
(Laugardalshöll
„Magnað varað heyra
lög á borð við Pagan
Poetry og Bachel-
orette ístórkost-
legum flutningi, en I
það síðarnefnda er '\
hugsanlega hennar \ £ -*
allra besta lag. “ A,li Fannar Biarkaso"
atli@bladid.net
Tónleikar ★ ★★★
að lýsa yfir sjálfstæði. Lagið var kjána-
lega skemmtilegt og sýndi að pönkið
er alls ekki horfið úr þessum fram-
sæknasta íslenska tónlistarmanni
allra tíma.
Viltu grennast?
Viltu styrkjast?
Viltu slaka á?
Ókeypis prufutími
Frábært opnunartilboð
A
Faxafeni 12 • Sími 5881166 • Opið 06-20 virka daga
Ný byltingarkennd tækni
ULTRAT0NE