blaðið - 11.04.2007, Blaðsíða 31

blaðið - 11.04.2007, Blaðsíða 31
blaðið MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 2007 3 9 Sýn kl. 18.30 Barist í Bítlaborginni Bein útsending frá síðari leik Liverpool og PSV í átta liða úr- slitum Meistaradeildar Evrópu. Heldur PSV áfram að koma á óvart? Liverpool sigraði í keppn- inni 2005 og þeir vita hvað þarf til. Fyrri leik liðanna í Hollandi lauk með öruggum sigri Li- verpoolmanna og því ætti að vera nánast formsatriði fyrir Englendingana að klára leikinn. PSV-menn eru þó sýnd veiði en ekki gefin og ætti enginn að afskrifa þetta magnaða lið. Skjár einn kl. 22.00 Líf eftir kjarnorkustríð Það er ekkert sældarlíf að búa í smábænum Jericho. Eftir að Bandaríkin verða fyrir röð kjarn- orkuárása fer allt líf úr skorðum og ringulreið er hið ríkjandi stjórn- arform. Hjálpin berst loks til íbúa Jericho en er hún frá óvininum? Er hægt að treysta matvæla- sendingunum í kínverskum umbúðum? Bæjarbúar hafa ekki þolinmæði til að bíða svara og allt er í hers höndum. Jonah og gengið hans er enn til vandræða og það eru ekki allir sammála um hvernig sé best að taka á málunum. RÚV klukkan 21.35 Tómt vesen á spítalanum Hinir stórgóðu gamanþættir Scrubs eiga alltaf dyggan hóp aðdáenda enda engin furða þar sem þættirnir skarta frá- bærum húmor með mörgum kostulegum persónum. Aðal- persóna þáttanna er læknirinn J.D. og verður að segjast að iíf hans sé einstaklega flókið og erfitt viðureignar. Samstarfs- fólk hans er meira og minna léttruglað og sjúklingarnir eru lítið skárri. Það er stórleikarinn og snillingurinn Zach Braff sem fer með aðalhlutverkið. Top Gear í útrás: Einblínt á bandaríska bíla Bresku bílaþættirnir Top Gear eru einstakt fyrirbæri í sjónvarps- heiminum. Sjaldan hafa sjón- varpsþættir um jafnþröngt við- fangsefni höfðað til jafnmargra og eru margir af tryggustu aðdá- endum þáttanna fólk sem hefur ekki minnsta áhuga á bifreiðum. Nú virðist sem bandarískur al- menningur fari senn að fá sinn skerf af breskum gæðahúmor þar sem viðræður standa nú yfir að gera bandaríska útgáfu af Top Gear. Núverandi þáttastjórnendur Jeremy Clarkson, Richard Hamm- ond og James May munu að öll- um líkindum sjá um að stjórna bandarísku þáttunum sem munu verða með mjög svipuðu sniði og þeir bresku. Þó mun verða lögð enn meiri áhersla á bandaríska bíla og er líklegt að þeir félagar muni hafa nægt efni til að moða úr vestanhafs. Fyrir skömmu gengu sögusagn- ir þess efnis á netinu að hinir geysivinsælu þættir lykju senn göngu sinni en ljóst er að ef þess- ar fréttir standast að Top Gear á meira en nóg bensín eftir í tank- inum. Opna kerfið Þinn tími er kominn! 1. Almenn þjálfun, þol, styrkur og liðleiki 2. Púltími, hressileg upphitun, ýmist á palli eða gólfi, styrktar- og liðleikaþjálfun 3. Pallatími, samsett spor, mikil brennsla 4. Lóðatími, upphitun ýmist á palli eða á gólfi, unnið með þyngd og mótstöðu, lóð, stangir, teygjur 5. Liðleikaþjálfun, upphitun, styrktar- og slökunarteygjur 6. Yoga 7. Bræðingur, líkamsrækt með dansívafi, salsa, mambo, samba, jazz, funk og stuð 8. MfíL - Magi, rass og læri 9. Stöðvaþjálfun, fjölbreyttir vaxtamótunartímar Nú geturðu gerst áskrifandi að líkamsrækt JSB Betra verð í áskrift, aðeins 3.990 kr. á mánuði Glæsilegur nýr tækjasalur! Barnagæsla - Leikland JSB Vertu velkomin í okkar hópí Stundatafla fyrir 0| ina 1 cerfið mán þri mið fim fös lau sun 06:30 4. 5. 1. 1. 1. 07:30 1. 1. 1. 9. 1. 08:30 5. 1. 4. 1. 1. 09:30 1. 10:30 7. i. 11:30 6. 12:15 2. 1. 4. 8. 1. 13:30 1. 1. 9. 14:30 1. 8. 1. 15:30 1. 16:30 4. 1. 1. 1. 6. 17:30 1. 7. 3. 1. 1. 18:25 1. 1. Ath. númerin útskýra tímana DRNSRflEKT ,|SB leggur línumar Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • Bréfasími 581 3732 • jsb@jsb.is • www.jsb.is

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.