blaðið - 11.04.2007, Blaðsíða 1
—
Kassaklif ur - GP5 ratleikir - Bátdsiglingar - Vatnaleikir - Frumbyggjc '
Upplýsingar og skráning á netinu:
www.ulfijotsvatn.is
Fyrir stráka og stelpur 8-12 ára - skipt í hópa eftir aldri
rKrassandi útilífsœvintýri - fjör og hópeflisandi!
INNRITUN ER HAFIN - Opið virka daga kl. 10-16 - sími 550 9800 - sumarbudir@ulfljotsvatn
MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL
AUGLÝSINGASÍMI: 510 3744 • AUGLYSINGAR@BLADID.NET
18
Allir í háttinn
20
Lesið fyrir
svefninn
21
Uppbygging
sjálfstrausts
22
lavefurinn
Islenvka
Oanska
LlfvísSndi
EWisvíslndl
Stjúpfjölskyldur
23
Kökur fyrir
krakkaafmælið
24
Hollustubækur
fyrir börnin
Fjölbreytt námsefni á Skólavefnum
Skólavefurinn var stofnaður í
byrjun árs 2000 og hefur vaxið
jafnt og þétt frá þeim tíma en vefur-
inn er nú stærsti náms- og fræðslu-
vefur landsins. Á vefnum er að
finna vandað efni fyrir leik-, grunn-
og framhaldsskóla og fróðleiksfúst
fólk á öllum aldri. „ Á w w w. skolavef-
urinn.is er að finna efni fyrir börn
á öllum skólastigum en við erum
með námsefni fyrir allan grunn-
skólann í öllum greinum bæði fyrir
kennara og nemendur og þjálfunar-
efni ýmis konar“ segir Ingólfur B.
Kristjánsson, ritstjóri vefsins.
„Núna erum við að einbeita okkur
að efni fyrir samræmdu prófin en
við erum með þjálfunárefni í öllum
samræmdu greinunum. Það er
auðvitað mjög þægilegt fyrir bæði
börn og foreldra að geta nálgast
allt þetta efni rafrænt. Á vefnum er
til dæmis að finna eldri samræmd
próf gagnvirk og krakkarnir geta
æft sig á þessum prófum og séð
hvað þau þurfa að bæta og annað
slíkt".
Að sögn Ingólfs er gríðarlegt
magn efnis að finna á vefnum sem
er nánast allt gagnvirkt. „Það er
eiginlega hægt að þjálfa sig í hverju
sem er, allavega því sem tengist
grunnskólanum. Foreldrar hafa
líka verið mjög ánægðir með skóla-
vefinn þar sem þeir geta setið með
barninu sínu og leyst verkefni með
þeim, en við erum nú þegar komnir
með um 4000 heimili í áskrift.“
Á Skólavefnum er hver þjálfunar-
stund ólík annarri en sérkennarar í
hverju fagi semja verkefnin. „Þarna
eru verkefni sem tengjast hverju
fagi og svo er alltaf hægt að auka
við sig með því að takast á við fleiri
verkefni, en Skólavefurinn hefur
líka reynst krökkum sem eiga við
einhvers konar lestrarörðugleika
að stríða mjög vel,“ segir Ingólfur.
Vefurinn er í stöðugri uppfærslu
og á hverju degi bætast við ný
verkefni eða efnisþættir ásamt
þroskandi leikjum. „Þetta er gríð-
arlega mikið notað og nú eru
um 97% allra grunnskóla orðnir
áskrifendur. Síðan eru framhalds-
skólar að sækja í auknum mæli
og leikskólar líka þannig að þetta
er farið að reynast mörgum vel,‘
segir Ingólfur B. Kristjánsson hjá
Skólavefnum.
Barnahúsgögn
Allt í barnaherbergið - sjón er sögu ríkari
II0 Uí-fi (N-tl 11-EIHllLID
Sérverslun með barnahúsgögn og fylgihluti
Fossaleynir 6-112 Reykjavík
Sími: 586 1000 - www.husgogn.is