blaðið - 12.04.2007, Blaðsíða 1

blaðið - 12.04.2007, Blaðsíða 1
ORÐLAUS » sioa 34 69. tölublað 3. árgangur fimmtudagur 12. apríl 2007 ■ KOLLA OG KULTURINN Jóel Pálsson saxófónleikari veröur með djasstónleika i kvöld á Domo en hann segist vera málaliöi tónlistarinnar og hafa áhuga á alls kyns músík |síða27 FRJALST, OHAÐ & U TOLVUR & TÆKNI Örvar Geir Friðriksson er stofnandi heimasíöunnar xbox360.is þar sem leikjatölvunni er loksins gert hátt undir höfði | síða2s Blóðug endalok Óeðlileg og viðbjóðsvaldandi endalok persóna sjást gjarnan í bandarískum bíómyndum og flest er reynt til að toppa það sem síðast sást í þeim efnum. Orðlaus birtir lista yfir átta blóðugustu dauðdaga kvikmyndasögunnar. Línur skýrast hjá íslandshreyfingunni Jón Baldvin íhugar framboð Orðaður við 2. sætið í Reykjavík norður ■ Stefnt að kynningu lista fyrir helgi ir'hiianð framhnð í ^ilfri Fcrile T-TinCTar^ til Vipfnr Tnn tplnir c»ti RmAi i cíntift í RpArlria\ríl Eftir Þröst Emilsson the@bladid.net Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi sendi- herra, utanríkisráðherra og formaður Alþýðu- flokksins, íhugar samkvæmt heimildum Blaðsins að taka sæti á framboðslista íslandshreyfing- arinnar fyrir alþingiskosningarnar 12. maí. Samkvæmt sömu heimildum er rætt um að Jón Baldvin skipi 2. sætið á lista flokksins í Reykja- víkurkjördæmi norður en Ómar Ragnarsson, formaður Islandshreyfingarinnar, leiðir listann í kjördæminu. Nafn Jóns Baldvins hefur ítrekað komið upp þegar framboðslistar íslandshreyfingarinnar eru til umræðu og sjálfur lýsti hann stuðningi við fyr- irhugað framboð í Silfri Egils. Hingað til hefur Jón Baldvin neitað öllum framboðshugleiðingum og hann vildi fátt segja um þær í gærkvöld. „Ef ég væri það þá verðurðu áreiðanlega var við það þegar að því kemur,“ sagði Jón Baldvin þegar hann var spurður að því hvort hann væri á leið- inni í framboð. Ljóst er að Margrét Sverrisdóttir leiðir lista Islandshreyfingarinnar í hinu Reykjavíkurkjör- dæminu og væntanlega mun Ósk Vilhjálmsdóttir skipa 2. sætið. Hún hafði áður verið orðuð við leiðtogasætið í Suðvesturkjördæmi en nú er rætt um að Sigurlín Margrét Sigurðardóttir varaþing- maður leiði listann í Suðvesturkjördæmi. Óvíst er hvort og þá hvar Jakob Frímann Magnússon tekur sæti. Bæði 3. sætið í Reykjavík suður og eitt- hvert efstu sætanna í Norðvesturkjördæmi eru nefnd. Forystumenn íslandshreyfingarinnar vildu fátt segja um skipan á framboðslista flokksins í gær- kvöld. Mikill taugatitringur ku vera í herbúðum Islandshreyfingarinnar, þar sem takast á annars vegar fylking Margrétar Sverrisdóttur og þeirra sem fylgdu henni frá Frjálslynda flokknum og hins vegar Ómarsarmurinn svokallaði eða græni armur- inn, félagar úr Framtíðarlandinu og fleiri. I gærkvöld var enn verið að skáka til mannskap eins og það var orðað en stefnt er að því að kynna framboðslista í öllum kjördæmum í dag eða á rnorgun. Gegn Þjórsárvirkjunum Þriðjungur kjósenda í Suðurkjördæmi er hlynntur virkjunum í neðri hluta Þjórsár, en tveir þriðju eru þeim andvígir. Þetta kemur fram í nýrri könnun sem Félagsvísindastofnun Hl gerði fyrir Stöð 2. Spurt var hvort viökomandi væri hlynntur eða andvígur því að virkjað verði í neöri hluta Þjórsár. NY SENDING

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.