blaðið - 13.04.2007, Blaðsíða 1

blaðið - 13.04.2007, Blaðsíða 1
f i 4- ■ FOLK Hinn færeyski Jógvan Hansen hárgreiðslumaður varð sigurvegari k X-Factor keppninnar og hyggur á K; útgáfu plötu með sumrinu |s(ðais ■ MATUR Hólmfríður Porgeirsdóttir starfar hjá Lýðheilsustöð og telur íslendinga þurfa að borða meiri fisk svo hún gefur uþpskrift að fiskisúpu | síða24 70. tölublað 3. árgangur föstudagur 13. apríl 2007 FRJALST, OHAÐ & 0K^°!S! Kaupmáttaraukning Kaupmáttur ráðstöfunartekna heimil- anna hefur aukist um 60% frá árinu 1995 og á sama tíma hafa skuldir ríkissjóðs verið greiddar niður þannig að hann má heita skuldlaus. Þetta sagði Geir H. Haarde formaður Sjálfstæðis- flokksins meðal annars í setningarræðu 37. landsfundar flokksins í gær. f Engst í skuldafeni 600 leituðu í fyrra aðstoðar ráðgjaar- stofu um fjármál heimilanna vegna fjárhagseríiðleika. Þriðjungurinn var ein- stæðar mæður. Félagsmálaráðherra vill tryggja rétt skuldara með hugsanlegri lagasetningu um skuldaaðlögun og segir alla hagnast á slíku. FRÉTTIR » síða 8 Miklar framfarir Á fáum sviðum heilbrigðisþjónust- unnar hafa orðið eins miklar framfarir undanfarin ár og í sjúkraflutningum og menntun sjúkraflutningamanna að mati landlæknis. Hann segir að strjálbýlið valdi þó vissum erfiðleikum. Skoðanakönnun Blaðsins á fylgi flokkanna: Vinstri grænum fatast flugið ■ Fleiri óákveðnir ■ íslandshreyfingin nær sér ekki á strik Eftir Magnús Geir Eyjólfsson magnus@bladid.net Vinstri grænir mælast með 15,5 prósenta fylgi samkvæmt skoðana- könnun Blaðsins sem framkvæmd var síðastliðinn þriðjudag. Þetta er mun minna fylgi en í síðustu könnun fyrir mánuði en þá mældist VG með 23,6 prósenta fylgi. íslandshreyfingin á erfitt uppdráttar en fylgi hennar mældist einungis 2,4 prósent. „Þetta er með verri tölum sem við höfum séð lengi. Það eru greinilega sveiflur f þessu og heilmikil óvissa enn þá. Ég er samt ekki sáttur við þessa niðurstöðu fyrir stjórnarand- stöðuna f heild. En ég trúi því enn að ef stjórnarandstaðan stendur saman og berst vel takist að fella stjórnina og ná fram breytingum. Þetta verður harður slagur fram á síðasta dag,“ segir Steingrímur J. Sigfússon, for- maður VG. Steingrímur segir mögulegt að til- koma nýrra framboða hafi áhrif á niðurstöðuna.„Ég því miður óttast að kraftarnir séu farnir að dreifast mikið og jafnvel að einhver atkvæði falli dauð. Þessi viðbótarframboð trufla óneitanlega umræðuna og fólki getur fundist heildarsvipurinn á þeim framboðum sem sækja að stjórninni ekki nógu sterkur.“ í könnun Blaðsins mælist Sjálf- stæðisflokkurinn með 45 prósenta fylgi og hækkar um rúmlega tvö próesntustig frá síðustu könnun. Samfylkingin kemst aftur upp fyrir VG og mælist með 19 prósenta fylgi og Framsóknarflokkurinn og Frjáls- lyndi flokkurinn mælast jafnstórir, fá báðir 9 prósenta fylgi. Framboð Baráttusamtakanna mældist ekki. Framsóknar- Frjálslyndi Islands- Samfylkingin Sjálfstæiis- Vinsfri flokkurinn flokkurinn hreyfingin flokkurinn grænir Þetta er sveifla í öfuga átt mlðað vlð nýlegar kannanir Ómar Ragnarsson formaður Islandshreyfingarinnar Þetta verður harður slagur framá síðasta dag Steingrímur J. Sigfússon formaður VG Athygli vekur að óákveðnum hefur fjölgað frá síðustu könnun. 36,7 prósent aðspurðra sögðust enn ekki hafa gert upp hug sinn í sam- anburði við 31,3 prósent í síðustu könnun. Ómar Ragnarsson, formaður Is- landshreyfingarinnar, dregur nið- urstöðurnar í efa og á bágt með að trúa að grænu flokkarnir tveir, ís- landshreyfingin og VG, mælist ein- ungis með x8 prósenta fylgi saman- lagt. „Það er algjörlega á skjön við undanfarnar kannanir sem sýna mikla andstöðu við stóriðju og and- stöðu við virkjanir á Suðurlandi. Ég sé enga skynsamlega útskýringu á því af hverju þessir flokkar mælast með 10 prósenta lægra fylgi en áður. Þetta er sveifla í öfuga átt miðað við nýlegar kannanir." Skoðanakönnun Blaðsins er símakönnun sem gerð var mið- vikudaginn 11. apríl. 800 einstak- lingar með kosningarétt svöruðu könnuninni og er skipting jöfn eftir kyni og hlutfallslega jöfn eftir kjördæmum. 91,4 prósent svöruðu spurningunni „Hvaða lista myndir þú kjósa ef gengið yrði til kosninga nú?“ 54,7 prósent tóku afstöðu, 36,7 prósent sögðust óákveðin og 8,6 pró- sent sögðust hlutlaus eða ætla skila auðu. Sjá einnig síðu 4 T0NLIST » síða 32 I UEÐUR » síða 2 I VIÐTAL » síða 26 NÝSKÖPUN, BÆTT HAGSTJÓRN OG ÁBYRG UMHVERFISSTEFNA ÍSLANDSHREYFINGIN {*% tifiuulí Ujuí \ J Fjórfaldir Vildarpunktar til 20.apríl Allin sem safna Vildarpunktum fá nú fjórfalda Vildarpunkta þegar þeir versla hjá Qlís. Spila ekki á eigin balli Hljómsveitin Skátar heldur útgáfutónleika á morgun en þar ætla Skátar ekki sjálfir að spila lögin sín heldur hafa þeir fengið aðrar hljómsveitir til þess. Rigning Vaxandi SA-átt með rigningu, talsverð eða mikil sunnanlands. SA 13-18 síðdegis. Hiti 5 til 12 stig að deginum, en nokkuð svalara í nótt. Algengt krabbamein Eiríkur Jónsson, yfirlæknir á Landspítala Háskólasjúkra- húsi, segir að ísland sé meðal þeirra landa sem hafa hæst nýgengi blöðruhálskirt- ilskrabbameina í heiminum. Úi J2 Vildarpunktar OLÍS - við höldum með þér! FerwUng'2007 Frábær tilboð á rúmum, grjonastólum og púðum og fylgihlutum. - - OUarcð Afgreiðslutimi virka daga: 10-18 og lau.: 11-16 Reykjavik simi: 533 3500 - Akureyr: simi: 462 3504 Heilsurúm - dýnur - gjafavara - svefnsófar - stólar - sófar - grjónapúðar , '‘".fT iw' . Egilsstaðir: simi: 471 2954 Himfnn og haf / SlA

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.