blaðið - 17.04.2007, Blaðsíða 1
71. tölublað 3. árgangur
þriðjudagur
17. apríl 2007
IFÓLK
Marianne Sigurðardóttir frá Akranesi
er nýkrýndur unglingameistari í
fitness en hún hefur einnig lagt stund
á box, badminton og fimleika | síða 14
■ KOLLA OG KÚLTÚRINN
Porleifur Friðriksson sagnfræðingur
hefur skrifað sögu Dagsbrúnar og
segist hafa ákveðið að hafa þetta
hvunndagssögu félags og fólks | síðais
FRJALST, OHAÐ & OK
Skoðanakönnun Blaðsins um innflytjendur á íslandi:
NÝSKÖPUN,
BÆTT
HAGSTJÓRN
OG ÁBYRG
UMHVERFISSTEFNA
Flestir telja vandann lítinn
■ Tæp 17 prósent telja innflytjendur mikið vandamál ■ Landinn metur stöðuna raunsætt
Eftir Heiðu Björk Vigfúsdóttur heida@bladid.net
Tæp 17 prósent landsmanna telja að innflytjendur
á íslandi séu mjög mikið eða mikið vandamál, sam-
kvæmt nýrri skoðanakönnun Blaðsins. 23 prósent
telja innflytjendur mjög lítið eða lítið vandamál og
rúm 53 prósent ekkert vandamál.
Einar Skúlason, framkvæmdastjóri Alþjóðahúss-
ins, segir það jákvætt að meirihluti meti stöðuna
svona raunsætt því það séu engin raunveruleg
vandamál í gangi eins og staðan er í dag. Hann seg-
ist ekki hafa búist við svona jákvæðu viðhorfi í sam-
félaginu. „Mér hefur fundist umræðan fullneikvæð
á köflum. Það er því ánægjulegt að heyra að hún
hafi ekki náð dýpra en þetta. Meirihluti fólks virð-
ist sem betur fer ekki vera haldinn ástæðulausum
ótta, að minnsta kosti miðað við þessa könnun.“
Eitt af því sem Einar nefnir að þurfi að vinna
betur í er fræðsla. „Það þarf að auka mikið fræðslu
Telur þú að innflytjendur
almennt í samfélaginu. Það hefur í raun hver og
einn einhvers konar hlutverk. Það eru ekki bara
innflytjendur sem hafa það hlutverk að aðlagast
samfélaginu. Samfélagið á að aðstoða innflytjendur
og laga sjálft sig að breytingum sem verða.“
Capacent Gallup gerði skoðanakönnun á dög-
unum þar sem spurt var hvort setja verði strangari
reglur um heimildir útlendinga til að setjast að
á Islandi. 56,2 prósent sögðust vera hlynnt því að
setja strangari reglur. „Efvið ætlum að herða reglur
verður annaðhvort að segja upp EES-samingnum
eða Norðurlandasamningnum,“ segir Einar. „Það
er ekki hægt að herða þær að öðru leyti. Það er
varla hægt að gera þetta miklu stífara gagnvart
fólki utan EES en þetta er í dag. í febrúar voru til
dæmis einungis gefin út 20 atvinnuleyfi. Það er því
ekki mikið að gerast þar.“
Skoðanakönnun Blaðsins er símakönnun sem
gerð var miðvikudaginn 11. apríl. 800 einstaklingar
með kosningarétt svöruðu könnuninni og er skipt-
ing jöfn eftir kyni og hlutfallslega jöfn eftir kjör-
dæmum. 97,8 prósent svöruðu spurningunni „Telur
þú að innflytjendur á íslandi séu vandamál?" 6,9
prósent þeirra sögðust vera hlutlausir.
Sjá einnig síðu 6
FRÉTTÍR » síða 4
32 létust í
skotárásum
Að minnsta kosti 32 létust og á annan
tug særðust í tveimur skotárásum á lóð
Virginia Tech-háskólans í Virginíuríki í
Bandaríkjunum í gær. Fyrri árásin var
gerð á einni heimavist skólans snemma
að morgni að bandarískum tíma, en sú
síðari í byggingu verkfræðinema við
skólann um tveimur klukkustundum
siðar. Að sögn lögreglu er talið að tilræð-
ismaðurinn hafi verið einn að verki og er
hann látinn.
„Mér líður ekki vel og fólk er enn í sjokki,“
sagði Dagmar Kristín Hannesdóttir, sem
nemur sálfræði við Virginia Tech-háskól-
ann, í viðtali í kvöldfréttum Ríkisútvarps-
ins í gær. „Maður veit ekki hver er dáinn
og hvort maður hefur þekkt einhvern
þeirra.“ Hún sagði að nemendurnir
hefðu verið læstir inni í skólanum og
ekki vitað um hve mannskæð árásin var
fyrr en eftir að þeim var hleypt út klukku-
stund síðar.
Svo mannskæð skotárás hefur ekki
verið gerð í skóla í Bandaríkjunum frá
árásinni við Columbine-skóla í Colorador-
íki árið 1999.
Við hvalbyssuna Síðasti hluti hrefnuveiða Hafrannsóknastofnunar hefst í dag. Ákveðið var árið 2003 að veiða skyldi 200 hrefnur i vís-
indaskyni. Af þeim á eftir að veiða 39 dýr, þar af verða 5 veidd í apríl og dreifist restin yfir sumarmánuðina. Gunnar Jóhannsson í Félagi
hrefnuveiðimanna mundar hér hvalbyssuna. Hann er skipstjóri á Dröfninni sem fer eftir hrefnunum fimm.
o.
SÉRBLAÐ
» síður 17-24
VEÐUR
» síða 2
Byöur i heimsókn
Leikkonan Birgitta Birgis-
dóttir býður í heimsókn
á heimili sitt og síðan
ætlar hún að frumsýna
söngleikinn Gretti á
sunnudaginn.
Átta síðna
sérblaö um
golf fylgir með g.
Blaðinu í dag §-
Heldur hlýnandi
Suðvestan 5-10 með
smáéljum eða skúrum
um landið vestanvert,
en bjartviðri að mestu
eystra. Hlýnar heldur og
hiti 3 til 9 stig á morgun.
ÍSLANDSHREYFINGIN A
RENAULT SCENIC II
Nýskr: 06/2004, 2000cc
5 dyra, Fimmgíra,, Ekinn 30.000 þ.
Verð: 1.930.000
JbilolQnd.is^
575 1230
Renault
öruggari notaðir bílar
lér ★ ★ ★ ★
Veldu 5 styörnu
öryggi lífsins vegna!
RENAULT MEGANE II
Nýskr: 08/2003,1600cc
] 5 dyra, Hmmgíra, Biár, Ekinn
69.000 þ.
Verð: 1.350.000
RENAULT MEGANE II
Nýskr: 06/2005,1600cc
5 dyra, Fimmgíra, Ljósgrár, Ekinn
29.500 þ.
Verð: 1.790.000
TT-641
RENAULT LAGUNA II
Nýskr: 11/2003,1800cc
5 dyra, Fimmgíra, Rauður, Ekinn
70.000 þ.
Verð: 1.680.000
OWarcð
Afgreiðslutími virka daga: 10-18 og lau.: 11-16
Reykjavík sími: 533 3500 - Akureyri sími: 462 3504
Egilsstaðin sími: 471 2954
B ' * 30-^0 ^ afsláttvjf ',/ RÝMINGAR- 1SALA! SSLane'
Erum aö taka inn nýjar gerðir af rúmum frá Sealy og stólum og sófum frá Action Lane og þurfum að rýma verslun og lager af eidri gerðum.