blaðið - 17.04.2007, Blaðsíða 2

blaðið - 17.04.2007, Blaðsíða 2
ÞRIÐJUDAGUR 17. APRÍL 2007 blaöiö Útsölustaðir: Esar Húsavík, Dalakjör Búðardal, Snyrtivöruverslunin Nana Lóuhólum, Heimahornið Stykkishólmi, Smart Vestmannaeyjum, Efnalaugin Vopnafirði, Pex Reyðarhrði Glæsilegt aukablað um stangveiði kemur út 18 • GOLF Einn giæsilegasti 18 holu völlur á landinu - sex golfbílar til leigu á staðnum. KIÐJABERG í GRÍMSNESI Golfvöllur og útivistarparadís Lœknar mæla með þessum haldara verð kr. 3.990.- .ynja.is www Slmi 544 4088 Ahrifin Óhætt er að mæla með því að kylf- ingar sem áhuga hafa á að bæta leik sinn verulega fari í sveiflumælingu hjá Nevada Bob. Úttekt Blaðsins leiðir í ljós að fyrir áhugamann hvers upphafshögg enda mun oftar utan brautar en innan skiptir sköpum að fara í slíka mælingu. Þótt ekki sé um neina töfralækningu að ræða er það mat blaðamanns að sér- sniðnar kylfur bæti frammistöðuna umtalsvert. Mynd af blaðamanni má finna í orðabókinni undir orðinu slæs sem flestir ef ekki allir þekkja sem ein- hverju sinni hafa dúndrað kúlu af teig á golfvelli. Slæs er langstærsta vandamál meirihluta áhugakylfinga í golfinu og ekki kemur út golftíma- rit án þess að um þetta vandamál sé skrifað. Telst spekingum til að al- mennt hlutfall „krónískra slæsara” sé 50 - 65 prósent og allt að 95 pró- sent meðal þeirra sem hafa hærri for- gjöf en 20. Þessar tölur má auðveld- lega heimfæra hingað til Islands að sögn fagmanna hjá Nevada Bob. Sérsniðin þjónusta Með sveiflumælingu er hægt að sérsníða kylfur að smekk og getu hvers einstaklings og klukku- stund í slíku prófi getur gert gæfu- muninn þegar á brautir er komið í sumar. Fagmenn Nevada Bob geta að henni lokinni sagt til um hvers konar kylfa hentar hverjum og einum miðað við sveiflu og hraða. Hvaða sköft henta best kylfuhraða og jafnvel komið með tillögur um að þynna eða þykkja grip á hverri Glæsilegur 18 holu golfvöllur í einstakri náttúrufegurð og góð veitingaaöstaða í golfskála fyrir kylfinga, gesti og gangandi. Höggæfingasvæði með boltavél, púttflöt og par 3 æfingavöllur. Bjóðum nyja félaga velkomna i Golflúbb Kiöjabergs. Uppl. í síma 486 4495 eða gkb@emax.is Tjaldsvæöi við Hestvatn. Lax- og silungsveiöi í Hvítá. Rástímapantanir á golf.is Pantanir fyrir hópa f sfma: 486 4495 eða gkb@emax.is strax augljós kylfu. Að henni lokinni er hægt að kaupa nýja með þeim breytingum sem mælt er með eða breyta eldri kylfum. Úrval hjá Nevada Bob er umtalsvert en sérbreytingar aðrar taka frá nokkrum dögum til tveggja vikna og fer eftir framleiðanda. Fimm prófaðar Blaðamaður er meðalmaður á alla lund í golfinu. 15 í forgjöf og hefur hangið þar um kring í tvö ár án sjáanlegra framfara. I þessu tilfelli voru aðeins driverar til skoðunar en með þeim slæsar blaðamaður mun meira en með öðrum kylfum í pokanum. Fimm mismunandi nýjar kylfur voru próf- aðar, með mismunandi halla á haus, mismunandi sköftum og gripum. Golf er leikur nákvæmninnar og hver einasta breyting hefur áhrif til góðs eða ills og hægt að sjá það með berum augum í tölvu meðan á mælingunni stendur. Sköft skipta heilmiklu máli og næsta ómögu- legt er fyrir hinn venjulega kylfing að meta áhrif þeirra enda getur re- gular skaft frá einum framleiðanda verið stiff skaft hjá öðrum. Aðeins með mælingu er hægt að fá úr því skorið hvað hentar sveifluhraða og tækni hvers og eins. Að lokinni mælingu fékk blaða- maður þær tvær kylfur lánaðar sem best komu út í prófinu. Um var að ræða Ping G5 með 10,5 gráða halla og Grafolloy Prolaunch Blue skaft og Ping Rapture með 12 gráða halla og Ping TFC 909D skafti. Bæði sköftin regular en engu að síður með mis- munandi togi (torque) og í raun ótrúlegt hvað Grafolloy-skaftið var miklu stífara þó bæði sköft væru í regular flokki. Báðar komu best út fyrir sveifluhraða blaðamanns sem mældist 92. Niðurstaða Slegnir voru hundrað boltar með hvorri kylfu fyrir sig í nýrri og stórbættri aðstöðu Keilis í Hafnar- firði. Með Ping G5 heppnuðust sjö af hverjum tíu höggum að meðal- tali þar sem boltaflug var gott. Ár- angur með Rapture sem hefur 12 gráða halla og er nýjasta útgáfan frá Ping var betri; átta af hverjum tíu höggum voru ásættanleg. Meiri halli á kylfuhaus getur í mörgum til- fellum vegið á móti slæsi en það er þó ekki algilt og hefur lítið að segja fari hallinn yfir tólf gráður. Högglengd reyndist afar svipuð þrátt fyrir muninn á kylfunum tveimur. Lengstu högg með báðum náðu 230 metrum en meirihlutinn um og yfir 200 metrum. Hvort tveggja, högg og högglengd, er betri árangur en umræddur blaðamaður hefur áður náð að jafnaði en áber- andi jákvæðasti þátturinn var þó sá að hið eitraða slæs minnkaði óumdeilanlega. Engin hræðileg slys til hægri urðu í neinu af þeim 200 höggum sem slegin voru þó að meirihlutinn lentivissulega enn tölu- vert hægra megin við miðju. Oftar mátti þó flokka slík högg undir fade heldur en slæs en munurinn er sá að fade er rólegt boltaflug hægra megin við miðju brautar meðan slæs er áberandi flug til hægri og oft- ast nær vel út af braut. Samantekt Engin spurning er í huga blaða- manns að sveiflumælingin borgaði sig. Hver og einn kylfingur er mis- munandi. Hæð og þyngd, tegund sveiflu og hraði er mjög frábrugðið frá manni til manns og standi vilji til að bæta sig er sveiflumæling hjá Nevada Bob einhver besta fjárfest- ing sem hægt er að gera. Þessi blaða- maður hefur í það minnsta fengið meira sjálfstraust eftir 200 bolta með sérsniðnum kylfum en hann hefur haft í golfinu hingað til.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.