blaðið - 17.04.2007, Blaðsíða 3

blaðið - 17.04.2007, Blaðsíða 3
blaðÍA ÞRIÐJUDAGUR 17. APRÍL 2007 MATUR -19 PÓSTURINN allur pakkinn Bandaríkjamenn hafa mikið yndi af tölfræði og að birta lista hvers konar. Hér er nýjasti listinn yfir þá tíu kylfinga sem löngu er kominn tími á að vinni stórmót. 10. Colin Montgomerie 9. Charles Howell 8. Rory Sabbatini 7. Stephen Ames 6. Stuart Appleby 5. Sergio Garcia 4. Paul Casey 3. Padraig Harrington 2. Henrik Stenson 1. Adam Scott Öryggi og hraði Það skiptir höfuðmáli að mikilvaegar sendingar lendi á réttum stöðum. Þegar kemurað hraðsendingum erum við sérfræðingarnir. - Láttu okkursjá um allan pakkann. www.tnt.is - simi: 580 1010 Yfir þúsund í sumar almennir félagsmenn frá að hverfa meðan slíkt stendur yfir. Hart er barist um lausa rástíma hjá flestum klúbbum landsins þegar líður að lokum vinnudags í viku hverri. Hafa klúbbar suðvestanlands í vaxandi mæli skorið upp herör gegn þeim sem ekki mæta þó þeir eigi frátekinn rástíma og mun því Verða framhaldið í sumar. Verður þá viðkomandi refsað með einhverjum hætti og hjá stöku klúbb getur sá hinn sami ekki bókað rástíma á vin- sælasta tíma næstu mánuði á eftir láti hann hjá líða að tilkynna forföll. Hafi einhver hug á að byrja í golfi þetta sumarið kann að vera að auð- veldara sé að hefja leik á mótum en að reyna að komast reglulega að hjá stærstu klúbbunum í sumar. Aldrei hafa áður verið skipulögð jafn mörg golfmót og í sumar en upplýsingar um þau má finna hjá hverjum klúbbi fyrir sig á golf.is eða í golfhandbókinni sem gefin verður út og dreift til allra klúbb- meðlima. Meirihluti þeirra er sem betur fer opinn öllum sem þátt vilja taka en æ fleiri eru þó sérstök boðs- mót fyrirtækja og stofnana og verða UM FARINN VEG Yfir hundrað íslendingarfóru holu í höggi í fyrra en fjöldi þeirra sem það gera hefur vaxið í sam- ræmi við almenna fjölgun golfiðkenda. Algengt var áður fyrr að fjöldinn væri milli 40 og 70 talsins en betri vellir, betri útbúnaður og almennt betri þjálfun skilar sér í betra spili og þegar allt gengur eftir holu í höggi. Ml urvegarinn Zach John- son er milli tanna á fólki í heima- landi sínu eftir að hann tjáði sig op- inberlega um mikla trú sína og hversu hún hefði mikil áhrif fyrir sig á golfvellinum. Eru margir argir yfir að trú sé blandað saman við keppnisíþróttir á þennan hátt enda eigi drottinn lítið skylt við leiki á borð við þann að hamra hvíta kúlu ofan í jörðina. Undarlegt þykir mörgum íslendingnum að fresta þurfi stórmótum erlendis vegna hvass- viðris og rign- inga og hvað ekki. Hér á landi þykir frekar týra ef slíkt er ekki til staðar þegar pokinn er hífður á öxlina og finnst engum mikið um þó aðeins blási. Fá mót hefðu verið hér haldin ef sömu viðmið væru hér og erlendis.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.