blaðið - 17.04.2007, Blaðsíða 5
blaðið ÞRIÐJUDAGUR 17. APRÍL 2007
Fyrsta flokks
golfskór
Skóframleiðandinn Ecco hefur
á stuttum tíma komist i röð þeirra
fremstu þegar kemur að golfskóm.
Ástæðan er einföld; skór þeirra eru
fallegir en umfram allt þægilegir
enda Ecco lengi verið í fararbroddi
með almenna götuskó.
Ecco notar ein-
staka tækni við
framleiðslu sína
á golfskóm og
í þeim er sér-
stakt efni sem
gefur sólanum og
skónum um leið
mýkt og nauðsynlega högg-
dempun. Ennfremur hafa Ecco-
skórnir lengi þótt vera með þeim
fallegustu enda er yfirlýst mark-
mið framleiðandans að framleiða
vöru sem bæði er falleg, notadrjúg
en umfram allt þægileg. Allir kylf-
ingar þekkja þreytu í fótum, iljum
og hælum þegar líður á hring.
Koma má í veg fyrir slíkt í góðum
skóm og þar er enginn með tærnar
þar sem Ecco hefur hælana.
Sumarlína Ecco þetta árið skartar
nokkrum nýjungum. Herralínan
Flexor býður upp á þægileg-
ustu skó sem fyrirtækið
hefur framleitt og
í dömulínu hefur
verið bætt við
nýjum Casual
Pitch-skóm sem
eru léttir, opnir
og afar þægilegir. Önnur breyting
frá Ecco eru nýir og betri takkar
en áður var. Mun þægilegra er að
skipta um takka með nýja kerfinu
en áfram verða eldri tegundir í boði
fyrir þá sem það kjósa.
Tungumál innfæddra golfara
Sem latína fyrir byrjendur
,Ég tók driverinn, tíaði hátt,
flengdi boltann og reyndi að
draga boltann eins nett og ég gat
og náði fínum hliðarspuna svo
þetta virtist ætla að takast en svo
kom gamla, feita slæsið í endann.
Betra þó en þetta svaka húkk
með hálfvitanum á síðustu braut.
Þá endaði boltinn í þykku röffi við
grinið og ég þurfti að chippa ofan
í fyrir erni.”
Svona lýsingar eru ekki óeðli-
legar þegar áhugakylfingar koma
saman en þetta er hreint og
klárt torf fyrir aðra að skilja. Af
því tilefni eru hér nokkur lykilorð
og hugtök og útskýrt hvað þau
merkja.
Fade (að feida boltann); Merkir
að svif boltans er rólegt frá vinstri
til hægri við skotmarkið.
Slice (að slæsa boltann); Harka-
legt flug boltans frá vinstri til
hægri sem endar ekki endilega
á eða nálægt brautinni. Slæs er
sjaldan eða aldrei notað vísvit-
andi enda í raun afleiðing af
lélegu upphafshöggi.
kylfa og notaðar i lengri skot á
brautum. íslenska útgáfan er
einnig gjarnan notuð þegar öfund
grípur um sig meðal spilafélaga.
Mulligan (mölli); Notað meðal
spilafélaga sé það ákveðið. Þýðir
að í lagi er að endurtaka fyrsta
skot eða eitt skot af teig á fyrstu
brautunum. Umrædd skot fara
oft annað en ætlað er. Aldrei
notað í keppni.
Draw (að draga boltann); Öfugt
við feid er það flug boltans frá
hægri til vinstri. Margir bestu kylf-
ingar heims nota þetta talsvert en
ekki er auðvelt að tileinka sér það.
Getur aukið rúll boltans við lend-
ingu og bætt þannig högglengd.
Hook (að húkka boltann); Flug
frá hægri til vinstri við skotmarkið
en með þeim hætti að nánast
er um u-beygju boltans að
ræða. Önnur afleiðing af lélegu
upphafshöggi.
Hybrid (hálfviti); Notað um nýja
tegund kylfa sem er afsprengi
venjulegra járnkylfa og tré-
Ftough (röff); Allur kargi eða gras-
bakki við snöggslegnar brautir
og grín. Jafnan erfiðara að hitta
boltann vel sé hann þar.
Chip (að chippa); Notað þegar
aðeins vantar nokkra metra inn
á púttgrín og lyfta þarf boltanum
aðeins áleiðis.
Handicap (forgjöf); Því betur
sem spilað er því meira lækkar
forgjöfin. Byrjendaforgjöf er 36
fyrir bæði kyn sem gróflega þýðir
að forgjöfin er dregin frá loka-
skori eftir hring. Þannig geta ólíkir
spilarar keppt sín á milli þrátt fyrir
misjafna getu.
Leiktu ápdVl
Láttu hnén ekki hcimla þér
Margir einstaklingar eru heftir í sínu daglega lífi vegna verkja í hnjám.
Þetta ástand orsakast meðal annars vegna líkamlega erfiðra vinnuaðstæðna,
íþróttameiðsla eða vegna þrótmar slitgigtar. Stór hluti þessara einstaklinga
þjáist meira en hann þyrfti. Glucomed er nýtt lyf notað til að draga úr
einkennum vægrar til meðalsvæsinnar slitgigtar í hnjám. Það inniheldur
glúkósamín sem er nátturúlegt efni í liðum.
GIuCOmd G2.5 rv>Q
60 tolluf Vni 03 05 8S Glucomed 625 mq GiúkövairMn m O 00 o
Tll aö draga úr elnkennum vægrar vo o
til meöaisvæsinnar siitgigtar.
ut Navamedic w
Glucomed®625 mg
Glucosamine
Ekki má nota Glucomed:
- ef þú ert með ofnæmi fyrir glúkósamíni, einhverju öðru af innihaldsefnunum eða skelfíski
- ef þú ert undir 18 ára
- ef þú ert þunguð eða með bam á brjósti
Gæta skal varúðar við notkun Glucomed ef þú þolir illa glúkósa, ef þú ert með vanstarfsemi í
nýrum eða lifúr eða ef þú ert með þekktan áhættuþátt fyrir hjarta- og æðasjúkdómum.
Tvær töflur (1250 mg) einu sinni á dag til að draga úr einkennum.
Lesið vandlega leiðbeiningar á fylgiseðli. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá