blaðið - 17.04.2007, Blaðsíða 6

blaðið - 17.04.2007, Blaðsíða 6
22 • GOLF ÞRIÐJUDAGUR 17. APRÍL 2007 blaðiö Heilsa Wlatur Börn&Uppeldi Heimili&Hönnun Húsbyggjandinn Viðskipti&Fjármál Vinnuvélar Bílar Konan Árstíðabundin sérblöð Auglýsingasímar: Magnús Gauti 510-3723 Kolbrún Dröfn 510-3722 PLUSMINUS of sportvisio www.plusminus. n i s Ástríöa ] Stíll Reisn Suöurlandsbraut 4 I sími 517 0317 Endalaust flæði af glæsilegum vörum Það er sama gamla sagan. Ekki er fyrr búið að endurnýja kylfu eða kylfur í golfpokanum fyrir tímabilið, með mikilli fyrirhöfn og meiri vangaveltum en þegar keypt er fyrsta íbúðin, en að ný lína af sömu vöru er kynnt til sögunnar með pomp og prakt. Sú nýja eðlilega sögð margfalt betri en fyrri vörur og „nýja græjan“ orðin jafn úrelt og dags gamalt dag- blað í samanburði. Til að auðvelda valið, þeim sem hugsa sér til hreyfings þetta sum- arið, fékk tímaritið Golf 40 áhuga- menn til liðs við sig til að meta og mæla nýjustu vörurnar á mark- aðnum og gefa einkunn með hliðsjón af fjölmörgum þáttum. Ættu niðurstöðurnar að gefa góða mynd, enda kylfingarnir 40 með forgjöf frá o til 20 og á öllum aldri. Besti driverinn (sjá töflu) Yonex Cyberstar Nanospeed (Nanospeed 10,5 grafítskaft) STÓRIDÓMUR: Frábært en venju- legt útlit. Ekkert hönnunarkjaftæði að trufla. Minni tilfinning en með öðrum kylfum íflokknum. Lítið fyrirgefandi. Taylor Made r7 Draw (Fujikura 10,5 grafítskaft) STÓRIDÓMUR: Besti driverinn. Stillanlegur upp að marki. Auðveld- ara að draga boltann eftir hentug- leika. Langur, beinn og áreiðan- legur driver. Ping Rapture (Aldila VS 10,5 grafítskaft) STÓRIDÓMUR: Beinn og mjög fyrirgefandi. Góð almenn lengd og tilfinning frábær. Útlitið getur farið með suma. Nike SasQuatch Sumo (Diamana 10,5 grafítskaft) STÓRIDÓMUR: Mest fyrirgefandi í könnuninni. Jafnvel slæm höga ná sæmilegri og beinni lengd. Áber- andi Ijótastur. MacGregor MacTec NVG2 Draw (Fujikura Quadra 10,5 grafítskaft) STÓRIDÓMUR: Fallegur og færir góða tilfinningu. Vinnur vel gegn slæsi en lengd er takmörkuð. Hljóðið fór með suma. Cobra Speed LD (Aldila NV-F 10,5 grafítskaft) STÓRIDÓMUR: Full af orku og öryggi. Góð tilfinning þó að bungulaga hausinn falli ekki í allra kram. Fyrirgefur vel og högglengd almennt ágæt. Callaway Big Bertha 460 (Aldila NVS 10 grafítskaft) STÓRIDÓMUR: Mest fyrirgefandi driverinn í hópnum. Tilfinning og hljóð það sama í góðum eða slæmum höggum. Knýr boltann hátt upp og lengdin fyrir vikið ekk- ert til að hrópa húrra fyrir. Cieveland HiBore XL (Aldila NV 10,5 grafítskaft) STÓRIDÓMUR: Áreiðanlegur með- aldriver. Stjórnast sæmilega en venj- ast þarf útlitinu. Lengd og tilfinning í meðallagi. Hljóð fór í taugarnar á mörgum. ★★★★★ Frábær ★★★★ Mjög góöur ★★★ Góður ★★ Sæmilegur ★ Lélegur Útlit Tilfinning Fyrirgefandi Leikgleði Högglengd Yon Cle Cal Mac Pin Nik Cob Tay ★★★★ ★★★ ★★★★ ★★★★ ★★★★ ★★ ★★★ ★★★★★ ★★ ★★★ ★★★ ★★★★ ★★★★ ★★★ ★★★★ ★★★★ ★★ ★★★ ★★★★★ ★★★ ★★★★ ★★★★★ ★★★★ ★★★★ ★★ ★★★ ★★ ★★★ ★★★ ★★★★ ★★★★ ★★★★ ★★ ★★★ ★★★ ★★★★ ★★★★ ★★★★ ★★★★★ ★★★★ Fjöldi stjarna 13 15 17 17 17 18 19 21 ENGAR MALAMIÐLANIR, NJOTUM LIFSINS Tlt FUiLS!

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.