blaðið - 17.04.2007, Blaðsíða 8
24 • GOLF
ÞRIÐJUDAGUR 17. APRÍL 2007 blaöið
Keppir hér heima í sumar
Birgir Leifur Hafþórsson atvinnu-
kylfingur hefur dvalið á íslandi síð-
ustu viku í fríi en innan tíðar heldur
hann út á ný en stíf dagskrá er hjá
honum næstu mánuði. Rúmlega 30
mót eru eftir á Evrópumótaröðinni
á árinu sem Birgir getur tekið þátt
í en hann þarf að verða meðal 125
efstu hvað verðlaunafé varðar til að
endurnýja keppnisrétt sinn á næstu
Evrópumótaröð.
Sá árangur er ekkert svo fjar-
lægur að mati Birgis en hann er
sem stendur númer 206 í röðinni
og enn eru fjölmörg mót eftir. „Ég
á alveg að geta það og mun einbeita
mér að því fyrst og fremst. En jafn-
vel þótt það takist ekki þá fer ég
bara aftur í forkeppnina og reyni
á ný. Mér finnst ég eiga mikið
inni og ég er ekki lakari spilari en
margir þeir sem þarna eru með
mér. í raun þarf ég að verða ofar-
lega í einu til tveimur mótum til
að fara langleiðina í hóp hundrað
efstu og það er ekki útilokað."
Birgir segist ánægður að koma
heim. Heimþráin sé til staðar en
hún minnki nokkuð við að fá hina
venjubundnu íslensku veðráttu
beint í fangið þegar lent sé. „Annars
geri ég ráð fyrir að koma og keppa
hér heima í sveitakeppninni í sumar
og hver veit nema ég taki fleiri mót
en það. Það kemur í ljós hvort það
hittir vel á.“
ÁRANGUR BIRGIS
Mót Árangur
Estoril Open de Portugal 81 sæti
Madeira Islands Open 43 sæti
TCL Classic 25 sæti
Enjoy Jakarta Open 59 sæti
South Afrlca Airways Open 82 sæti
Alfred Dunhill Open 118 sæti
Outdoor 06 Útivistarpakkinn
...alklæðnaður fyrir aktíft fólk
Útivistarjakki
Buxur
Flís undirföt / 'w
/ á
Flís peysa
Bakpoki 'x I
Hanskar
Hú,a ,uk\nn'.
Pd\uv PakVC
Hjá lcefin kaupiröu milliliöalaust af framleiöanda sem tryggir þér gæöavöru á betra verði.
Icefin,h>
Nóatúni 17
105 Reykjavík
s: 534 3177
icefin@icefin.is
www.icefin.is
UM FARINN VEG
Betraskor.is er heiti nýs
íslensks tölfræðivefs þar
sem kylfingar geta haldið
utan um skor sitt með ítarlegri
hætti en gerist og gengur.
Myndrænt útlit síðunnar gefur
skemmtilega mynd af gangi
mála og auðveldar kylfingum að
meta getu og árangur sinn yfir
lengri tíma.
Formfegurð er ekki það
fyrsta sem upp kemur í
hugann þegar skoðaðir
eru hinir nýju ferköntuðu dri-
verar sem eru að ryðja sér til
rúms. Nú síðast tilkynnti RAM
um nýjan slíkan grip en bæði
Nike og Callaway hafa framleitt
slíkar kylfur um nokkurt skeið.
Fá þeir nokkuð bærilega dóma
frá gagnrýnendum þrátt fyrir
útlit sitt en gott útlit kylfu hefur
löngum verið talið af hinu góða í
golfheimum.
Annika Sörenstam verður
frá keppni næsta mán-
uðinn vegna bakmeiðsla
sem hrjáð hafa hana um skeið.
Missir hún af að minnsta kosti
einu móti í kvennamótaröð-
inni bandarísku en hún hefur
reyndar fækkað til muna þeim
mótum sem hún tekur þátt í
þetta árið miðað við fyrri ár.
Hefur þetta komið af stað sögu-
sögnum um að hún ætli sér að
hætta en það blæs hún á.