blaðið - 18.04.2007, Blaðsíða 2

blaðið - 18.04.2007, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 2007 blaöið VEÐRIÐ I DAG AMORGUN VÍÐA UM HEIM Víða bjart Hæg vestlæg átt og víöa bjart veður, en suðvestan 5 til 10 og smá slydda vestanlands þegar líður á daginn. Frost 0 til 7 stig, en hlýnandi síðdegis. Algarve Amsterdam Barcelona Berlín Chicago Dublin Frankfurt Léttir víða til Hægari síðdegis, úrkomulítið og léttir víða til. Hiti yfirleitt 0 til 7 stig, en næturfrost norðantil og vægt frost norðan- og austanlands. 24 13 21 20 18 13 24 Glasgow Hamborg Helsinki Kaupmannahöfn London Madrid Montreal 12 New York 14 Orlando 14 OSIÓ 13 Palma 15 París 22 Stokkhólmur 2 Þórshöfn 7 m 13 21 20 10 7 Í «v Ósætti mílli Vegagerðarinnar og verktaka vegna Grímseyjarferju: Gæti endað fyrir dómstólum Deila um kostnað Kostnaður 100 milljónir fram úr áætlun Afhending dregist um sjö mánuði Á FÖRNUM VEGI Fylgdist þú með landsfundi stjórnmálaflokks um helgina? Inga Margrét Róbertsdóttir Ég er skráð í annan flokkinn, en fylgdist ekki með fundinum. Sigfús Heiðarsson Nei, ekki neitt. Gunnar Ingi Stefánsson Ég fylgdist með hvorugum. Ágúst Svan Aðalsteinsson Nei, ég gerði það ekki. Sigurður Ólafsson Já, lítilsháttar í fjölmiðlum. Eftir Magnús Geir Eyjólfsson magnus@bladid.net Vegagerðin og Vélsmiðja Orms og Víglundar deila um kostnað vegna endurbóta á nýju Grímseyjarferj- unni. Vegagerðin er ósátt við hversu lengi endurbæturnar hafa staðið, auk þess sem hún er ekki tilbúin til að greiða það sem verktakinn fer fram á. Málið er í miklum hnút og gæti svo farið að það endaði fyrir dómstólum. Núverandi ferja, Sæfari, uppfyllir ekki lengur þær kröfur sem Evrópu- sambandið gerir til slíkra skipa. Þvi var ákveðið að kaupa notaða ferju frá írlandi og gera á henni endurbætur. Upphafleg verkáætlun gerði ráð fyrir að skipið yrði tilbúið 1. nóvember en samkvæmt núverandi áætlun, sem er sú þriðja í röðinni, á ferjan að vera tilbúin 25. maí næstkomandi. Gunnar Gunnarsson aðstoðarvega- málastjóri segir ólíklegt að endur- bótum verði lokið á tilsettum tíma. „í verkinu eru nokkrar magnaukningar sem að nokkru leyti skýra þennan drátt, en ekki að öllu leyti. Þeir hafa vafalaust aðrar skýringar á því. Við teljum að verkið hefði átti að geta gengið betur." Magnaukningarnar sem Gunnar nefnir eru endurbætur á skrokk sem flokkunarfélag skips- ins fór fram á auk þess sem Grímsey- ingar gerðu óskir um ákveðnar breyt- ingar eftir að verksamningurinn var gerður. Heildarkostnaður við ferjuna var áætlaður 250 milljónir. Skipið kost- aði rúmar 100 milljónir króna og samningurinn við Vélsmiðju Orms og Víglundar hljóðaði upp á 1,3 millj- ónir evra, um 115 milljónir íslenskra króna á núverandi gengi. Gunnar segir að þessi upphæð eigi eftir að hækka töluvert. Gerir hann ráð fyrir því að heildarkostnaður geti orðið 350 milljónir. Aðspurður útilokar Gunnar ekki að málið fari fyrir dómstóla. „Ég vona ekki. Annars veit maður aldrei því svo getur farið með öll mál. Það er hins vegar hin rétta leið ef aðilar ná ekki saman.“ Ferjan liggur í dag í flotkví í Hafnarfirði þar sem unnið er að endurbótum á henni. Eiríkur Ormur Víglundsson, framkvæmdastjóri Vélsmiðju Orms og Víglundar, segir málið á viðkvæmu stigi. Hann vill ekki tjá sig um kostnaðartölur vegna verksins en segir orsakir tafanna liggja hjá Vegagerðinni. „Verkáætl- unin hefur breyst því verkið hefur verið að breytast. Við höfum ekki gert neitt nema það sem þeir vilja láta gera.“ Brynjólfur Árnason, sveitarstjóri í Grímsey, segir málið vissulega baga- legt fyrir íbúa Grímseyjar. Hann segist fá svör hafa fengið frá Vega- gerðinni enda virðist málið vera allt í hnút milli þessara tveggja aðila. Málið kemur þó ekki niður á sveitarfé- laginu enda þjónar Sæfari sínu verki vel, auk þess sem ferjan var fengin að Grímseyingum forspurðum. „Við vorum ekki að biðja um þessa ferju. Það kom upp að kaupa eitthvað gam- alt og notað og við vorum alltaf á móti þessu. Við bentum á það að þegar byrjað er að rífa upp gamalt og gera upp, er kostnaðurinn orðinn sá sami og við nýtt skip.“ Álver á Húsavík: Athuga áfram hagkvæmnina Ákveðið hefur verið að halda áfram hagkvæmniathug- un vegna hugsanlegs álvers á Bakka við Húsavík, að því er fram kemur í viljayfirlýs- ingu frá Alcoa, Norðurþingi og iðnaðarráðuneyti. Hafin verður innan skamms vinna við þriðja áfanga at- hugunarinnar í samstarfi við Landsvirkjun og Landsnet. í yfirlýsingunni segir að sú fram- tíðarsýn að byggja álver sem nýtir endurnýjanlega orku frá jarðvarma, og þar með vinnu- stað með öruggum störfum til lengri tíma á Norðurlandi, hvetji aðilana til að kanna til fulls möguleikana sem álver á Húsavík bjóði upp á. Iðnaðarráðherra: Átti fund með Alcoa Jón Sigurðsson, iðnaðar- og viðskiptaráð- herra, átti í gær fund með for- svarsmönnum Alcoa á íslandi. Jón greindi ríkisstjórninni ffá fúndinum í gær. MeðaJ þess sem rætt var á fundinum voru niðurstöð- ur kosninganija um stækkun álversins í Straumsvík. Aðspurður sagði Jón að um hefð- bundinn fund hefði verið að ræða. „Við eigum þessa fúndi nokkrum sinnum á ári. Þar er farið yfir stöðu og horfúr auk ýmissa hluta sem menn vilja ræða. Iðnaðar- ráðuneytið er þó ekki beinn aðili að ýmsum þeim efnum sem þessi fyrirtæki hafa á sínum borðum.“ Jón sagði engar ákvarð- anir hafa verið teknar á fundinum enda sé slíkt ekki venjan á þessum fundum. Sumardekk Öryggi bílsins byggist á góðum hjólbörðum GUMMIVINNUSTOFAN SP DEKK Skipholti 35, 105 RVK Sími: 553 1055 www.gummivinnustofan.is Opið: mán-fös 8-18 Iau9-15 Flugvöllurinn fer úr Vatnsmýrinni: Verður áfram í Reykjavík „Allir borgarfulltrúar í Reykjavík telja að flugvöllurinn eigi að fara úr Vatnsmýrinni," segir Gísli Mar- teinn Baldursson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. Hann segir það koma skýrt fram í niðurstöðu starfshóps sem unnið hefur að úttekt á flugvallarkostum á höfuð- borgarsvæðinu, að efnahagslegur ávinningur af því að færa flugvöll- inn úr Vatnsmýrinni sé meiri en kostnaðurinn við að byggja hann upp að nýju, þar sem hátt verð muni fást fyrir landið sem losnar. Samlcvæmt fréttatillcynningu frá Vinstri grænum hefur myndast samstaða um að flugvöllurinn verði færður á Hólmsheiði. Gísli neitar því. „Til greina kemur að hann fari upp á HóJmsheiði eða á Löngusker, en hvor kosturinn ur á þessum stöðum. Hins vegar verður valinn fer eftir niðurstöðu hafna borgarfulltrúar því að hann rannsóknar um veðurfarsaðstæð- verði fluttur til Keflavíkur.“

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.