blaðið - 18.04.2007, Blaðsíða 4

blaðið - 18.04.2007, Blaðsíða 4
blaöiö Betra grip Umboðsaöili MMMMMS á íslandi VERKSTÆÐ' Lágmúla 9 • Reykjavík ■ Sími 5 333 999 Skútahrauni 9 • Hafnarfirði • Sími 5 333 992 www hí^frpir Tire$tone 04V/DIV FÓLKSBÍLADEKK • JEPPADEKK MÓTORHJÓLADEKK • SENDIBÍLADEKK VÖRUBÍLADEKK ?Ég hef hafið stökf á 101 Hárhönnun, skólavörðustíg 8 Gamlir sem nýir kúnnar eru velkomnir. Hrönn Baldvinsdóttir 101 Hárhönnun/ S. 551-3130 Spæni og hör færðu í Húsasmiðjunni Ögurhvarfi* ásamt úrvali af öðrum vörum fyrir hestamanninn 4 MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 2007 LANDHELGISGÆSLAN Samstarf við Bandaríkin Stefnt er að því að samstarfssamningur verði undirritaður í ágúst milli Landhelgisgæslu (slands og bandarísku strandgæslunnar um leit og björgun, samvinnu um reglubundna upplýsingamiðlun um vöktun skipaferða, þjálfun, æfingar og starfsmannaskipti. Samningurinn er í samræmi við samkomulag um samstarf í varnar- og öryggismálum frá því í september 2006. Stofnfrumurannsóknir Frjálslyndir tefja lagabreytingu ■ Vísindasiöanefnd ósátt ■ Fósturvísum er hent við glasafrjóvganir Eftir Hlyn Orra Stefánsson hlynur@bladid.net „Rannsóknir á fósturvísum eru hluti af voninni sem við höfum um lækn- ingu við MND-taugahrörnunarsjúk- dóminum. Lækningin er engin í dag. Ég trúi því ekki að við íslendingar séum slíkir afturhaldsseggir að taka ekki þátt í rannsóknum á fóst- urvísum, en því miður ákvað Frjáls- lyndi flokkurinn að beita sér gegn slíkum rannsóknum," segir Guðjón Sigurðsson, formaður MND félags- ins á fslandi, sem er mjög óánægður með að tillaga Sivjar Friðleifsdóttur heilbrigðisráðherra um breytingu á lögum um tæknifrjóvganir skyldi ekki hafa verið samþykkt. Við framkvæmd glasafrjóvgunar- meðferðar í æxlunarskyni eru búnir til fleiri fósturvísar en nýtast í þessu skyni. Ástæðan er sú að fósturvís- arnir frjóvgast aldrei allir og með þessu móti aukast líkurnar á að til verði lífvænlegir fósturvísar til upp- setningar í legi konunnar. Hingað til hefur umframfósturvísum verið eytt, en ef tillaga heilbrigðisráð- herra hefði verið samþykkt hefði mátt nota umframfósturvísana í rannsóknarskyni. „Frjálslyndir heimtuðu umræður um málið, sem á síðustu dögum þings þýðir að frum- varpið er ekki tekið fyrir. f stað þess að henda umframfósturvísum má nota þá til rannsókna, það er það grátlegasta,“ segir Guðjón. Kristinn H. Gunnarsson segir ástæðu þess að Frjálslyndi flokk- urinn vildi ekki samþykkja breyt- ingartillöguna vera i samræmi við athugasemdir vísindasiðanefndar. „Vísindasiðanefnd benti á að frum- varpið væri það opið að hún gæti eiginlega ekki sinnt sínu eftirlitshlut- verki. Þegar menn heimila tilteknar rannsóknir þarf einhver að veita leyfið og einhver að hafa eftirlit með að farið sé að tilteknum lögum. í þessu tilviki er það vísindasiðanefnd sem á að hafa það hlutverk, en frum- varpstextinn var það opinn að þeir sögðu að í honum fælist í raun engin stefna. Því yrði samkvæmt textanum að samþykkja allar beiðnir um stofn- frumurannsóknir sem berast.“ Kristinn segir Frjálslynda flokk- inn í sjálfu sér ekki vera andsnúinn því að hafnar verði rannsóknir á fósturvísum. Hins vegar þurfi frá- gangur laganna að vera þannig að skýr mörk liggi á milli þess sem má gera og þess sem ekki má gera Skýrlögþurfa að gilda um stofnfrumurann- sóknir Kristinn H. Gunnarsson, Frjálslynda flokknum Frjálslyndir heimtuðu um- ^ ræður um málið Guðjón Sigurösson, formaður MND félags- ins á fslandi í þessum efnum og menn verði að gera sér nákvæma grein fyrir því hversu langt menn vilja ganga. „Samkvæmt frumvarpinu átti að vera áfram bannað að framleiða fóst- urvísa eingöngu í rannsóknarskyni. En þegar tæknifrjóvgun á sér stað eru frjóvgaðir margir fósturvísar, þannig að menn vita þegar þeir búa til fósturvísana að þeir verða með í höndunum fósturvísa sem þeir munu geta notað til rannsókna. Eins og frumvarpið var orðað hefðu þvi auðvitað verið framleiddir fóst- urvísar einungis í rannsóknarskyni," segir Kristinn. Launamunur kynjanna eykst: ísland á Evrópumet Launamunur kynjanna er 28 prósent á íslandi en að meðaltali 15 prósent í löndum Evrópusambands- ins. Horfur eru á að launamunurinn aukist en minnki ekki, að því er kom fram í erindi Lilju Mósesdóttur, hag- fræðings og prófessors, á fundi Rann- sóknastofu í kvenna- og kynjafræðum og Kvennahreyfmgarinnar i gær. „Þegar konur mennta sig og fara upp í stjórnunarstöður eykst launa- munur kynjanna af því að launa- dreifingin er mikil og konur fá yfirleitt stöður sem eru neðarlega á launaskalanum. 1 raun og veru má segja að konur fari úr störfum þar sem launadreifingin er lítil og Vanmat á hefðbundnum kvennastörfum Leikskóla■ kennarar að störfum í stöður þar sem launadreifingin er mikil,“ bendir Lilja á. Til að koma í veg fyrir aukn- ingu launamunarins þarf að fjölga konum í hæst launuðu stjórnun- arstörfunum, að mati Lilju. „Þær þurfa að komast í bankastjóra- stöður og aðrar slíkar stöður auk þess sem afnema þarf launaleynd sem er almenn meðal stjórnenda." Eina af ástæðunum fyrir miklum launamun kynjanna á Islandi segir Lilja vera mikla atvinnuþátttöku kvenna hér. „Hátt hlutfall þeirra er með grunnmenntun og í lág- launastörfum og þær draga þá með- allaun kvenna niður. Þar að auki eru vísbendingar um að vanmat á hefðbundnum kvennastörfum sé meira vandamál hér en á hinum Norðurlöndunum.“

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.