blaðið - 18.04.2007, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 2007
blaðið
INNLENT
ÞYNGDARPUNKTUR BÚSETU
Færist til austurs á höfuðborgarsvæðinu
Þyngdarpunktur búsetu á höfuðborgarsvæðinu, sem
er reiknað meðaltal búsetu allra íbúa svæðisins, hefur
færst um 44 metra til austurs undanfarið ár. Hann er nú
í bakgarði við Goðaland 5 í Fossvogi. Þyngdarpunkturinn
hefur frá því mælingar hófust verið í Fossvogshverfi.
HRAÐAKSTUR i BREIÐHOLTI
Þrjú svipt ökuleyfi
Þrír ökumenn, tvær konur og einn karlmaður, eiga yfir
höfði sér ökuleyfissviptingu eftir að þau voru staðin að
því á mánudaginn að keyra á yfir 60 kílómetra hraða
á götum þar sem hámkarkshraði er 30 kílómetrar á
klukkustund. Öll voru tekin í Breiðholti.
HAFNARFJÖRÐUR
Neikvæð rekstrarniðurstaða
Rekstur Hafnarfjarðarbæjar fyrir fjármagnsliði er jákvæður
um 805 miiljónir króna á árinu 2006 sem er í takt viö áætl-
anir. Rekstrarniðurstaða ársins er neikvæö um 833 millj-
ónir króna samanborið við 1122 milljóna króna jákvæða
niðurstöðu árið 2005.
Fallbarátta West Ham:
Garðar Thór
til bjargar
Enska knattspyrnufélagið
West Ham hefur leitað til Garð-
ars Thórs Cortes til að veita leik-
mönnum og stuðningsmönnum
félagsins innblástur fyrir leik
félagsins gegn Englandsmeist-
urum Chelsea sem fram fer á Up-
ton Park, heimavelli West Ham,
í kvöld. Á fréttavef Reuters segir
að þetta sé í fyrsta skipti sem
Garðar Thór syngur opinberlega
fyrir knattspyrnuleik.
West Ham rær nú lífróður
í deildinni og þarf á þremur
stigum að halda í fallbaráttunni.
Liðið er með 29 stig og er í næst-
neðsta sæti, nú þegar liðið á eftir
að spila fimm leiki á tímabilinu.
Héraðsdómur:
Vægari dómur
sökum aldurs
Tveir piltar voru í gær
dæmdir í Héraðsdómi Reykja-
ness fyrir fjölmörg brot um vor
og sumar 2005, er þeir voru á
17. aldursári. Eru þeir dæmdir
fyrir nokkur innbrot og þjófn-
aði, vörslu fíkniefna og fyrir
líkamsárás.
Þeir höfðu báðir verið
ákærðir áður fyrir sambæri-
leg brot. Annar piltanna var
dæmdur til fjögurra mánaða
skilorðsbundinnar fangelsis-
vistar, en hinn aðeins til 100
þúsund króna sektargreiðslu.
Ungur aldur drengjanna kom til
refsílækkunar.
Vísindaveiðar hefjast:
Bræla
á miðunum
Bræla var á miðum og lítið
hægt að veiða í gær á fyrsta degi
hrefnuveiðitímabilsins, að sögn
Gunnars Bergmanns Jónssonar,
formanns Félags hrefnuveiði-
manna sem sér um veiðarnar
fyrir Hafrannsóknastofnun.
Um er að ræða síðasta hluta
vísindaveiða stofnunarinnar, en
ákveðið var árið 2003 að veiða
skyldi 200 hrefnur í vísinda-
skyni. Af þeim á eftir að veiða 39
dýr, þar af verða 5 veidd í apríl.
Minningarathöfn Nemendur
háskólans heyrðu orð forsetans á
minningarathöfn ígær.
Cho Seung-Hui Morðinginn
stundaði enskunám við skólann.
Blóðbaðið í Virginia Tech-háskólanum:
Hann reifst við kærustuna áður en
morðæðið greip hann.
Morðinginn er 23 ára
Suður-Kóreumaður
■ Reiði beinist að lögreglu og skólastjórn ■ Reifst við kærustu sína
Eftir Atla isleifsson
atlii@bladid.net
Lögregla í Blacksburg í Virginíu
hefur tilkynnt að tilræðismaðurinn í
fjöldamorðinu í Virginia Tech-háskól-
anum hafi verið Cho Seung-Hui, 23
ára Suður-Kóreumaður. Hann stund-
aði enskunám við skólann og bjó á
háskólalóðinni.
Mikil reiði ríkir í garð lögreglu
og skólayfirvalda í Virginia Tech-
háskólanum fyrir að hafa ekki gert
nemendum og starfsfólki fyrr við-
vart um að byssumaður gengi laus á
lóð skólans á mánudagsmorgninum.
Cho skaut 32 nemendur og kennara til
bana áður en hann svipti sig lífi með
þvi að skjóta sjálfan sig i höfuðið. Að
sögn lögreglu særðust einnig fimm-
tán manns í árásinni og voru fluttir á
sjúkrahús.
Spurningum ósvarað
Skotárásirnar í skólanum voru
tvær. Tveir létust í þeirri fyrri sem
átti sér stað á einni heimavist skólans
snemma á mánudagsmorgninum.
Um tveimur klukkustundum síðar
gekk Cho inn í Norris Hall, verkfræði-
byggingu skólans, þar sem hann skaut
þrjátíu manns til bana og særði nok-
kra til viðbótar. Nemendur segja að
skólayfirvöld hafi fyrst sent tölvupóst
og tilkynnt að byssumaður gengi laus
á skólalóðinni nokkrum mínútum
fyrir seinni árásina, rúmlega tveimur
tímum eftir þá fyrri. Fjölmörgum
spurningum er enn ósvarað og hefur
lögregla til að mynda ekki útilokað
að morðinginn kunni að hafa haft
vitorðsmann og ekki fuliyrt með
skýrum hætti hvort skotárásirnar
tvær tengjast.
Forsetinn hryggur
George Bush Bandaríkjaforseti
sagðist í viðtali við fjölmiðla vera
mjög hryggur og skelfdur vegna árás-
arinnar við háskólann, sem er sú
mannskæðasta í nútímasögu Banda-
ríkjanna. Bush og Laura, eiginkona
hans, sóttu minningarathöfn um
fórnarlömb voðaverksins við skólann
síðdegis í gær. Þjóðarleiðtogar hafa
margir vottað Bandaríkjamönnum
samúð sína, þar á meðal Elísabet
Bretadrottning. Atburðurinn er lík-
legur til að vekja upp umræðuna
um skotvopnalöggjöfina í Bandaríkj-
unum á nýjan leik. Þannig gagnrýndi
John Howard, forsætisráðherra Ástr-
ala, bandaríska skotvopnamenningu
harðlega á fréttamannafundi sínum í
gær og sagði hana vera mjög neikvætt
afl í samfélaginu.
Myrti vel metna fræðimenn
Greint hefur verið frá nöfnum
flestra fórnarlambanna, sem voru
aðallega úr hópi nemenda við skól-
ann. Tveir hinna látnu voru mikils
metnir fræðimenn, Liviu Librescu,
einn af leiðandi fræðimönnum heims
í loftferðaverkfræði, og umhverfis-
verkfræðingurinn G.V. Loganathan.
Skólayfirvöld háskólans hafa tilkynnt
að öll kennsla falli niður þessa viku
og að verðfræðibyggingin Norris
Hall, þar sem flest fórnarlömbin voru
myrt, verði lokuð það sem eftir lifir
skólaársins.
Reifst við kærustuna
Fréttastofa Sky segir að árásirnar
hafi átt sér stað eftir að Cho reifst heift-
arlega við kærustu sína sem hann
sakaði um að hafa átt í sambandi við
annan mann. Cho á að hafa tekið upp
skammbyssu og skotið mann ogkonu
sem mættu á vettvang til að stilla til
friðar eftir að tilkynning barst um
rifrildi. Cho á svo að hafa náð í skot-
færi og haldið til verkfræðibygging-
arinnar, í um átta hundruð metra
fjarlægð frá heimavistinni. Þar lokaði
Sorg nemenda Afallið
fyrir háskólasamfélagið
er mikið. Þrír nemendur
úr Virginia Tech.
- 4*. „
hann inngangi byggingarinnar með því að 31 lágu i valnum, þar með tal
keðju og hóf skothríð sem lauk með inn hann sjálfur.
Mannskæöar skotárásir í bandarískum skólum
Apríl 2007 Maí 1998
24 ára karlmaður drepur 32 á heimavist og Nemandi drepur tvo og særir 22 nemendur
í skólastofum í Virginia Tech-háskólanum í í Oregon. Foreldrar drengsins fundust myrt-
Virginíu áður en hann fremur sjálfsvíg. ir á heimili sínu skömmu síðar.
Október 2006 Mars 1998
Charles Carl , Tveir þrettán og ellefu ára drengir koma
Robertsdrepur —-—^ brunavarnakerfinu
fimm stúlkur og —... í skóla sínum
særirfimm til íál já>. — I Jonesboro i
viðbotar í skóla í W Arkansas af
Amish-samfélagi í Pennsyi- staðogdrepa
vaníu áöur en fremur sjálfsvlg. fjóra nemendur
Mai s 2005 og einn kennara.
Sextán ára strákur drepurfimm nemendur, Agúst1966
kennara og öry jqisvörð í skóla indjána í Charles Whit-
Minnesota. Shákurinn hafði drepið afa man fer upp í
sinn og félaga hans skömmu áður. f klukkutuin á lóð Texas-háskóla í
April 1999 Austin, drepur
Tveir unglingar drepa tólf nemendur og sextán manns og særir 31 með riffli á 96
einn kennara í Columbine-skólanum í Col- mínútum áður en lögregla skýtur hann til
orado áður en þeir fremja báðir sjálfsvíg. bana.