blaðið - 18.04.2007, Blaðsíða 9
blaðið
MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 2007 9
Skoðanakönnun:
Vinstri grænir
bæta við sig
Vinstri grænir bæta við sig
mestu fylgi í Suðurkjördæmi
frá síðustu kosningum og
fengju tvo þingmenn en fengu
engan í síðustu kosningum.
Framsóknarflokkurinn tapar
mestu fylgi frá síðustu kosn-
ingum og mælist aðeins með
einn þingmann í stað tveggja.
Þetta er niðurstaða nýrrar
skoðanakönnunar um fylgi
stjórnmálaflokkanna í kjör-
dæminu sem gerð var fyrir
Morgunblaðið og RÚV.
Sjálfstæðisflokkurinn bætir
líka við sig fylgi og einum
manni. Flokkurinn fengi
fjóra þingmenn. Samfylking-
in tapar hins vegar tveimur
þingmönnum í kjördæminu
og fengi tvo í stað fjögurra.
Neitar að
flytja út
Kínverjinn Choi Chu hefur
tilkynnt borgaryfirvöldum í
Shenzhen í Kína að hann neiti
að selja íbúð sína f sex hæða
húsi í borginni, til að rýma
fyrir byggingu 88 hæða háhýsis.
Nágrannar hans hafa allir sam-
þykkt greiðslu frá yfirvöldum, en
Choi segir að greiðslan hafi verið
um þrisvar sinnum lægri en
raunverulegt virði eignarinnar.
Choi segir að ættingjar sínir
hafi búið þarna um margra
áratuga skeið. „Húsið hefur
tilfinningalegt gildi fyrir mig og
mína. Það er réttur minn að búa
hér. Gengi ég að boðinu væri
ekkert réttlæti til í heiminum.“
Launajafnrétti:
Ráðuneyti
vottar launin
Félagsmálaráðuneytið mun
veita fyrirtækjum vottun um
launajafnrétti kynjanna í
samvinnu við Háskóla Islands,
Háskólann á Bifröst og Há-
skóla Reykjavíkur. Þegar hafa
fýrirtækin Deloitte á Islandi,
Háskólinn í Reykjavík, Islands-
póstur og Orkuveitan ákveðið
að sækjast eftir jafnlaunavott-
uninni, og fleiri fyrirtæki
hafa lýst yfir áhuga á því.
Formaður Samtaka atvinnulífsins:
Leggur til styttra
samningstímabil
Efnahagsstjórn og kjarasamn-
ingar voru eðlilega meðal umræðu-
efna Ingimundar Sigurpálssonar,
formanns Samtaka atvinnulífsins, í
ræðu á aðalfundi samtakanna í gær.
Ingimundur sagði mikilvægt að
forysta verkalýðshreyfingarinnar
og Samtaka atvinnulífsins ræddu
fyrr en seinna þær meginlínur sem
koma til með að móta kjarasamn-
inga á næsta samningstímabili.
„Ástæða er til að huga sérstak-
lega að því hvort ekki sé rétt við
ríkjandi efnahagsaðstæður að
stefna að styttra samningstíma-
bili en undangengin ár og þá án
bindingar við endurskoðun taxta-
breytinga á samningstíma," sagði
formaðurinn.
Hann tók það fram að í undan-
förnum kjarasamningum hefðu
Samtök atvinnulífsins haft það sem
meginmarkmið að laun þróuðust
hér á landi í samræmi við það sem
gerist í samkeppnislöndum. „Þetta
markmið hefur enn ekki náðst. Það
er því enn brýnna nú að það náist
á næsta samningstímabili þannig
að hér festist ekki í sessi hærri verð- með tilheyrandi sveiflum á gengi
bólga og vextir en annars staðar krónunnar."
Ein besta heilsudýna'í heimi
IQ-CARE ahlagas! fullkomlega að líkamanum og Iryggir dypri og betri svefni.
IQ-CARE er svæðisskipt og gefur þvi réttan sluðning fyrir mjóbak og axlir.
IQ-CARE er með opnuri efniseigink'ika en fleslar vfj.rur ur skyldum efnum og andar því hetur.
IQ-CARE aðlagast hraðarað líkamanum en flest rum úr skyldum eínum.
IQ-CARE er ein slerkasla efnahlanda sem þrouð hefur verið t)g endist því lengur en sk\ Idai vorur
IQ-CARE þrystijöfnunarelnið er mikið notað og viðurkennt af s|ukrahusum og heilsustolnunum.
S-CAPE
WAIXHUGGER
Hjónarúm með
okkar bestu 1Q"0».RE heilsudýnu
Dæmi: 160 x 200 cm kr. 369.900 stgr.
Rúm sem dregst að veggnum þannig
að þú helst við hlið náttborðsins.
• Mest seldi botninn í heiminum.
• Upplýst þráðlaus fjarstýring með
öllum stillingum.i.
• Sterkir og hljólátir þýskir
lyftumótorar.
• Sér stilling fyrir höfuðlag.
• Öflugir nuddmótorar með
sjálfvirkum tímarofa.
• Einn allra sterkasti stálgrindarbotn
sem framleiddur er í dag.
• Öll liðarmót úr flugvélaplasti.
• 12 ára ábyrgð.
Loftrúm án rafmagns
SWISSMK'
50 ára reynsla
Hjónarúm með
okkar bestu IQHCARE heilsudýnu
Dæmi: 160 x 200 cm kr. 219.900 stgr.
Mest selda stillanlega rúmið
Frábær reynsla á ísiandi frá árinu 2000.
• Sterkirog hljóðlátir þýskir mótorar.
• Stýring er einföld og þægileg.
• Mýkra axlasvæði og stillanlegt
mjóbakssvæði.
• Hægt að fá stillanlega fætur sem
ráða hæð rúmsins.
• 5 ára ábyrgð.
Ef þig vantar gott og sterkt stillanlegt
rúm þá er BIFLEX lausnin.
Frí þrýstijöfnunarmæling
sem greinir hvaða dýna
hentar þér best
Listhúsinu Laugardal, 581 2233 • Dalsbraul 1, Akureyri, 461 1150
Opið virka daga 10:00 - 18:00 - laugardaga 11:00 - 16:00
www.svefn.is