blaðið - 18.04.2007, Blaðsíða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 2007
blaöiö
UTAN ÚR HEIMI
EGYPTALAND
Verkfræðingur sakaður um njósnir
Yfirvöld í Egyptalandi hafa handtekið verkfræðing og
ákært fyrir að njósna fyrir ísraelsstjórn, en hann hefur
starfað við Egypsku kjarnorkustofnunina. Saksóknari
segir manninn hafa tekið gögn frá vinnustað sínum
með það fyrir augum að selja þau.
Birmingham óheiðarlegasta borgin
Birmingham er óheiðarlegasta borg Bretlands
samkvæmt nýrri rannsókn sem sagt er frá á
fréttavef Sky. Fyrirtækið sem framkvæmdi
könnunina skildi eftir, veski og lykla í miðborgum
nokkurra borga og skoðaði hvar þeim var skilað.
ÍTALÍA
Réttað yfir bandarískum hermanni
Réttarhöld hófust yfir bandaríska hermanninum
Mario Lozano í gær, en hann er sakaður um að
hafa drepið ítalskan leynilögreglumann í Irak
árið 2005. Lozano er sjálfur ekki viðstaddur
réttarhöldin.
Samræmd próf verði lögð niður:
Misjafn námshraði
Sveigjanleg skil grunnskóla og
framhaldsskóla verða lögfest og
samræmd próf í núverandi mynd
lögð niður. Þetta er ein af tillögum
starfshóps menntamálaráðherra
um umbætur í skólamálum.
„Með fljótandi skilum á að reyna
að hafa skólakerfið þannig að
menn geti komist í gegnum það á
sínum hraða. Fyrir einu og hálfu
ári voru hins vegar allir uppteknir
af styttingu náms til stúdents-
ígegná
eigin hraða
Eiríkur Jónsson,
formaður Kennarasam-
bands Islands
prófs,“ segir Eiríkur Jónsson, for-
maður Kennarasambands íslands.
Hann segir að vænta megi tölu-
verðra breytinga á skólakerfinu á
næstu árum.
Auk þess að lögfesta sveigjan-
leg skil grunnskóla og framhalds-
skóla leggur starfshópurinn til
að kennsluháttum verði breytt,
áhersla á færni- og viðhorfamark-
mið verði aukin sem og réttindi
nemenda. Jafnframt er lagt til að
fræðsluskylda og gjaldfrjáls skóli
verði til 18 ára aldurs og að stúd-
entspróf verði fjölbreyttara og áby-
rgð framhaldsskóla aukin. Lög um
framhaldsnám sem byggja ofan á
starfsnám í framhaldsskóla er ein
af mörgum tillögum starfshópsins
sem skipaður var í fyrrasumar.
SIEMENS
Allt í eldhúsið.
Eldavélar, helluborð,
bakstursofnar, háfar,
uppþvottavélar,
kæliskápar og smátæki.
Espressó-kaffivélar í úrvali.
Ýmsar nýjungar s.s.
spanhelluborð með málmútliti,
lyftuofn og fleira.
Verið ávallt velkomin.
SMITH&
NORLAND
Nóatúni 4 • Sími 520 3000
www.sminor.is
Vestfjarðanefnd skilar af sér skýrslu:
Vestfjarðaskyrslan kynnt
Nefndarmenn kynntu efni
skýrslu sem miðarað þvíað
efla atvinnulíf á Vestfjörðum
Tillögur um
áttatíu störf
■ Kostar 500 miiljónir á ári
■ Olíuhreinsistöð ekki á borði ríkisstjórnar
Eftir Magnús Geir Eyjólfsson
magnus@bladid.net
Samkvæmt tillögum nefndar um at-
vinnumál á Vestfjörðum munu skap-
ast 80 ný störf á svæðinu sem kalla
myndu á viðbótarkostnað fyrir rík-
issjóð upp á um 500 milljónir á ári.
Nefndin skilaði af sér skýrslu í gær
og eru lagðar fram 37 tillögur til að
styrkja atvinnulífið á Vestfjörðum.
Flestar snúa tillögurnar að að-
komu hins opinbera og hvernig
megi efla þær stofnanir sem þar
eru fyrir. Þá er lagt til að við endur-
skoðun framkvæmda í samgöngu-
áætlun á árinu 2008 verði áhersla
lögð á að flýta fyrirhuguðum fram-
kvæmdum á Vestfjörðum, sem nú
eru á langtímaáætlun. Einnig er lagt
til að lokið verði við uppbyggingu
GSM-farsímaþjónustu á öllum stofn-
vegum og uppbyggingu háhraða-
tengingar á afskekktum svæðum
fyrir árslok 2008.
Jón Sigurðsson, iðnaðar- og við-
skiptaráðherra, segir að tillögurnar
séu til þess fallnar að bæta búsetu-
skilyrði og öryggi fólks sem þarna
býr. „Þetta eru mjög metnaðarfullar
niðurstöður og nú þarf að vinna úr
þeim. Vinna nefndarinnar kemur
til vegna mjög sérstakra aðstæðna á
Vestfjörðum. Það eru fleiri svæði á
landinu sem þarf að skoða. Ég nefni
Húnaþing, Dalasvæðið, Norðaust-
urhornið og Suðausturland. Þetta
mun hjálpa okkur að vinna áfram í
þessum byggðamálum yfirleitt."
Hugmyndir um olíuhreinsistöð
á Vestfjörðum hafa vakið mikla
athygli og hefur Dýrafjörður verið
nefndur í því samhengi. Ekki er
vikið að því máli í skýrslunni að
öðru leyti en því að skorað er á sveit-
arstjórnir á Vestfjörðum að kanna
það nánar. Hugmyndin er ekki frá
nefndinni komin heldur er um til-
lögu frá íslenskum hátækniiðnaði
að ræða.
Geir H. Haarde forsætisráðherra
segir að ríkisstjórnin hafi ekki
enn tekið afstöðu til málsins enda
hefur erindi þess efnis ekki borist á
hennar borð. Þó mátti greina nokk-
urn spenning meðal ráðherranna
vegna hugmyndarinnar. „Við vitum
ekki hvort þetta kemur til með að
verða hagkvæmt eða fýsilegt á neinn
hátt. En olíuhreinsunarstöðvar eru
reknar víða um heim og þeirra er
þörf. Þetta er óneitanlega stór biti ef
reistur yrði 500 manna vinnustaður
á Vestfjörðum," segir Geir.
Sveltarfélaglð
ÁRBORG
Er þitt fyrirtæki sýnilegt?
Skráning í fullum gangi!
E&'
www.arborq2007.is
sb companv
Karlmaður dæmdur:
Með byssu í
varnarskyni
Mbl.is Maður með hlaðna
skammbyssu sem hann sagðist
fyrir dómi hafa ætlað sér að
nota ef á hann réðust óvin-
veittir menn, var dæmdur í
Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.
Hann hlaut 60 daga skilorðs-
bundið fangelsi fyrir fíkni-
efnabrot og vopnalagabrot.
Maðurinn var handtekinn í
október í bíl á bílastæði. Hann
var, samkvæmt fréttamiðlinum
mbl, með amfetamín, hass og
einn skammt af LSD í fórum
sínum. Þegar leitað var á mann-
inum á lögreglustöð reyndist
hann vera með hlaðna Taurus
357 Magnum skammbyssu á sér.
Maðurinn hefur ekki
hlotið dóm áður.