blaðið - 18.04.2007, Blaðsíða 17

blaðið - 18.04.2007, Blaðsíða 17
blaöið MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 2007 17 Forréttindi að vinna með fötluðu fólki I maíbyrjun árið 2006 hóf ég störf hjá Svæðisskrifstofu málefna fatl- aðra í Reykjavík (SSR) eftir að hafa unnið með fólki sem hafði orðið undir í lífinu í hartnær níu ár. Sú vinna hafði vissulega gengið nærri mér, tekið ákveðinn toll af sjálfum mér og brunaeinkenni í starfi mínu voru farin að hrannast upp. Eftir talsverða umhugsun og umræður við fólk sem starfar á vettvangi og vinnur með fötluðu fólki, ekki síst við ágætan vin minn er veitir einu af sambýlum SSR forstöðu, ákvað ég að sækja um starf hjá stofnun- inni þótt ég hefði frekar litlar hug- myndir um hvað ég væri að fara út í. Efasemdir um getu mína og hæfni til að starfa á þessum vettvangi létu á sér kræla og ekki var laust við að einhverjir fordómar skytu upp kollinum. Umrœðan Því miður sitjum við ekki öll við sama borð Kenneth Páll Price Frábær starfsmannastefna Ég lét það þó ekki draga úr mér kjarkinn heldur sótti um. Viðtökur þær sem ég fékk við umsókn minni komu mér þægilega á óvart svo og upplýsingar þær er ég fékk um SSR og þeirra starfssvið, sú mikla og breiða þjónusta sem þar er veitt og frábær starfsmannastefna sem unnið er eftir. Manngæska, gleði og sameining virtist einkenna vinnustað þennan. Ég ákvað því að hefja störf á sambýli og það er eitthvað sem ég kem aldrei til með að sjá eftir. Vel var að því staðið að setja mig inn í nýtt starf og ég fékk svör við öllum mínum spurningum sem í byrjun voru ansi margar Lífsgleði Að hefja störf inni á heimili fimm ólíkra fatlaðra einstaklinga er kannski ekki svo auðvelt í byrjun. 1 mörg horn er að líta og margt þarf að læra. Að kynnast heimilisfólk- inu og gera sér grein fyrir ólíkum þörfum þess tekur tíma og einnig það að ná til einstaklinganna og tengjast þeim. Með umburðarlyndi, skilningi, kærleik, festu, ástúð og þolinmæði taka þessi kynni innan við mánuð. Það sem þú færð svo til baka frá heimilisfólkinu eftir þann tíma eru hreint ótrúlegir hlutir. Það sem einkennir flest fatlað fólk er þessi mikla lífsgleði og sú barns- lega einlægni sem frá þeim stafar, traust það sem þau setja á þig og væntumþykja sem ekki er háð neinum skilyrðum. Þau koma til dyranna eins og þau eru klædd og lifa flest í einfaldleika sem öllum væri hollt að tileinka sér. Margoft hef ég verið sleginn utan undir með blautri tusku þegar ég hef mætt í vinnu mína fullur sjálfsvorkunnar yfir því hvað ég eigi erfitt í mínu lífi. Þar hafa skjólstæðingar mínir komið til hjálpar og eftir ekki svo ýkja langan tíma hef ég hreinlega verið farinn að skammast mín fyrir hugsanir mínar. Þroskandi reynsla Að vinna með fötluðu fólki er þroskandi á allan hátt. Ég hverf æ meir og meir frá sjálfhyggju minni og eigingirni, gildismat mitt tekur breytingum og ég fæ tækifæri til að þroskast sem góð, jákvæð mann- eskja og læt gott af mér leiða meðal þeirra sem minna mega sín. SSR er góður vinnustaður sem hugsar vel um mig og þarfir mínar. Mér bjóð- ast ótal kostir til endurmenntunar og sem starfsmanni er hlúð vel að mér og mínum þörfum. Starfs- stöðvar þeirra eru misjafnar hvað fötlun varðar og búsetuform og þú getur valið á hvaða vettvangi þú vilt starfa. Störf mín hjá SSR hafa þegar gefið mér það mikið og vakið áhuga minn á þessum málaflokki að nú í vor hóf ég skólagöngu í Borg- arholtsskóla og stefni á að útskrif- ast sem félagsliði. Framtíðardraum- urinn er síðan að hefja nám sem þroskaþjálfi. Allt líf er dýrmætt Innan SSR hef ég fundið mína köllun. Þakka ykkur fyrir að vera til, fyrir að veita fötluðu fólki þá þjónustu sem þið veitið og okkur þessu eðlilega fólki innan gæsa- lappa tækifæri til að fá að starfa hjá ykkur og finna það sem við svo lengi höfum leitað að. Það tók mig sjálfan ekki svo ýkja langan tíma að áttá mig á að vinnan hjá SSR er á allan hátt mannbætandi og gef- andi. Allt líf er dýrmætt og hafi ein- hver orðið undir í lífinu ber okkur siðferðisleg skylda til að koma til hjálpar og vissulega getum við hjálpað á svo margvíslegan hátt. Eyðum fáfræðinni og fordómunum, verum til staðar reiðubúin að rétta út hjálparhönd þegar þess þarf. Við erum aldrei svo tímabundin að við getum ekki gefið ögn af því sem okkur hefur verið gefið. Náunga- kærleikur og umhyggja er það sem máli skiptir, því miður sitjum við ____________________________________;_________________ ekki öll við sama borð. Gleymum Höfundur starfar hjá Svæðisskrifstofu mál- því ekki. efna fatlaðra í Reykjavík l Barnsleg einlægni „Það sem einkennir flest fatlað fólk erþessi mikla lífsgleði og sú barnslega einlægni sem frá þeim stafar, traust það sem þau setja á þig og væntumþykja sem ekki er háð neinum skilyrðum. “ Lindab framleiðir þakrennur sem henta hvaða húsi sem er. Helstu kostir þeirra eru t.d.: • Fallegt útlit • Auðveldar í uppsettningu • Margir litir • Traustar og endingargóðar • Úr hágæðastáli • Fjöldi aukahluta • Áratuga reynsla á íslandi • Fást í byggingavöruverslunum um allt land Lindab Vjmet ÁREIÐANLEIKI - ÞJÓNUSTA - ÁRANGUR Gylfaflöt 9 112 Reykjavík Sími: 530 6000 Fax: 530 6021 www.limtrevirnet.is AUGLÝSINGASTOFA E.BACKMAN

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.