blaðið - 18.04.2007, Blaðsíða 20
32 MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 2007
blaöiö
Sumartónleikar
VoxFox
Sumartónleikar sönghópsins
VoxFox verða haldnir í Iðnó,
sumardaginn fyrsta (19. apríl)
klukkan 20.00. Á þessum tón-
leikum verður flutt efni sem allir
eiga að kannast við. Þar má m.a.
nefna lög frá Bítlunum, Billy
Joel, Bobby McFerrin, Abba, Be-
ach Boys og Magga Eiríks, allt í
búningi sex radda.
VoxFox er sex manna söng-
hóþur sem sérhæfir sig í
flutningi verka a cappella,
eða án undirleiks. Hópurinn
leggur mikið upp úr vönduðum,
skemmtilegum og krefjandi
útsetningum. Efnistök eru afar
fjölbreytt, popp, rokk, djass og
klassík.
VoxFox skipa: Þórdís Sævars-
dóttir, Vigdís Garðarsdóttir, Lilja
Dögg Gunnarsdóttir, Gunnar
Thorarensen, Hreiðar Ingi
Þorsteinsson og Sverrir Örn
Hlöðversson.
Maöur veröur aö
rækta garðinn sinn.
Voltaire (Birtingur)
Afmæhsborn dagsins
LUCREZIA BORGIA MENNINGARVINUR, 1480
LEOPOLD STOKOWSKITÓNSKÁLD, 1882
FRANZVON SUPPÉTÓNSKÁLD, 1819
Hilmir Snær ..Nú er komið aö Irumsýn-
ingu og þá reynir á samspilid vid áhorfend■
ur. Þetta er fyrir þá gert og eftir frumsýn-
ingu mun verkið halda áfram að þróast."
Rafmagnað andrúmsloft
Tveggja alda
minning Tómasar
Félag um átjándu aldar fræði
heldur málþing um Tómas
Sæmundsson í fyririestrarsal
Þjóðarbókhlöðu á2. hæð laugar-
daginn 21. apríl 2007. Málþingið
hefst kl. 13.30 og því lýkur um
kl. 16.30.
Flutt verða fjögur erindi:
„Ég má með engu móti missa
þig“
Vínátta Tómasar og Jónasar
eins og hún birtist í bréfa-
skriftum þeirra
Steinunn Haraldsdóttir, MA í
íslenskum bókmenntum
Á mótum tveggja tíma. Guð-
fræði Tómasar Sæmundssonar
Hjalti Hugason, prófessor í
kirkjusögu
Viðhorf Tómasar Sæmunds-
sonar til fræðsiumála
Ingi Sigurðsson, prófessorí
sagnfræði
Tómas Sæmundsson og Jón
Sigurðsson
Sigurður Líndal prófessor
kvöld frumsýnir Þjóðleikhúsið
leikritið Hjónabandsglæpi eft-
ir Eric-Emmanuel Schmitt en
leikrit hans Abel Snorko býr
einn og Gesturinn hafa notið
mikilla vinsælda meðal íslenskra
áhorfenda. Leikstjóri sýningarinn-
ar er Edda Heiðrún Backman. Hilm-
ir Snær Guðnason og Elva Ósk Ól-
afsdóttir fara með hlutverk Róberts
og Elísabetar sem hafa búið saman
í fimmtán ár. Róbert glímir við
minnisleysi eftir höfuðhögg. Þegar
hann reynir að endurheimta minn-
ið upphefjast óumflýjanleg átök um
sannleikann í hjónabandi þeirra.
„Leikritið fjallar um sambönd og
það hvernig manneskjur fara að
því að lifa saman í því sem kallað
er hjónaband. í verkinu er meðal
annars spurt: Hvers konar samn-
ingur er hjónabandið? Virkar þessi
samningur og er hann þess virði
að hann sé gerður? Stöndum við
við hann? Einstaklingar svíkja oft
þennan samning og glæpirnir sem
gerðir eru í hjónabandinu geta ver-
ið ýmiss konar,“ segir Hilmir Snær
um efni leikritsins.
Flókinn og skáldlegur texti
Hilmir Snær og Elva Ósk eru einu
leikarar sýningarinnar og eru á
sviðinu allan tímann. „Við þurfum
á allri okkar einbeitingu og orku
að halda því þetta er mikill texti.
Hann er flókinn, skáldlegur og um
leið mjög fallegur. Það er gaman að
flytja hann,“ segir Hilmir. „Það hef-
ur verið mjög skemmtilegt og þægi-
legt að vinna með Elvu sem er mjög
næm leikkona. Við höfum unnið
saman áður og þekkjumst vel og
það hefur kannski stytt okkur leið
á æfingaferlinu.
Samvinnan við alla þá sem koma
að sýningunni hefur verið einstak-
lega góð. Þetta er eitt af skemmti-
legri æfingaferlum sem ég hef upp-
lifað. Engar uppákomur, rifrildi út
af smáatriðum og annað slíkt sem
getur gerst í Ieikhúsi. Þetta gekk allt
einstaklega vel.“
Rafmagnað andrúmsloft
Um sambandið milli leikenda
og áhorfenda meðan á sýningu
stendur segir Hilmir: „Á sýningum
myndast bylgjur milli áhorfenda og
leikara. Þetta er eins og með GSM-
síma, við sjáum ekki bylgjurnar
en heyrum rödd í símanum. Þeg-
ar maður stendur á sviði og er að
miðla texta þá er maður að senda
frá sér bylgjur. Áhorfendur skynja
þetta og svara með sínum bylgjum.
Til verður rafmagnað andrúmsloft.
Stundum gerist það að maður finn-
ur enga strauma og það er vont, en
sem betur fer gerist það sjaldnar en
hitt.“
Þegar Hilmir er spurður hvort
hann sé sáttur við sýninguna segir
hann: „Nú er komið að frumsýn-
ingu og þá reynir á samspilið við
áhorfendur. Þetta er fyrir þá gert og
eftir frumsýningu mun verkið halda
áfram að þróast. Ég er ánægður með
það hvernig við ætlum að mæta
áhorfendum á frumsýningunni."
menningarmolinn
Sendibílar
til leigu
C4RGO 566 50301 www.cargobilar.is jf
Stjörnulögfræð-
ingur fæðist
Þennan dag árið 1857 fæddist
bandaríski lögfræðingurinn Clar-
ence Darrow. Hann er best þekktur
fyrir vörn sína í Aparéttarhöldunum
svonefndu þar sem kennarinn John
Scopes var ákærður fyrir að kenna
þróunarkenningu Darwins. Leikrit-
ið ásamt kvikmyndagerð þess, In-
herit the Wind, er byggt á þessum
frægu réttarhöldum og áherslan
er þar á kröftugri og greindarlegri
vörn Darrows. Skjólstæðingur hans
var reyndar dæmdur í peningasekt
en Scopes og Darrow voru hinir sið-
ferðilegu sigurvegarar.
Darrow hafði aðaltekjulind sína
af vörn í morðmálum. Hann var
harður andstæðingur dauðarefs-
inga og enginn skjólstæðinga hans
fékk dauðadóm. Hann beitti sér
einnig í verkalýðsmálum og var ein-
arður talsmaður þeirra sem minna
máttu sín. Eftir að hafa dregið sig í
hlé frá lögfræðistörfum sneri hann
sér að skriftum og var eftirsóttur
fyrirlesari.