blaðið - 18.04.2007, Blaðsíða 22
MIÐVIKUDAGUR 18. APRIL 2007
34
blaoiö
Barnabókaverðlaun menntaráðs Reykjavíkur 2007 verða
« afhent við hátíðlega athöfn í Höfða í dag, miðvikudaginn 18.
apríl klukkan 16. Verðlaunin eru nú afhent í 35. sinn.
menning@bladid.net
Burtfarartónleikar í Salnum
Hugi Jónsson barítón heldur burtfarartónleika frá Nýja tónlist-
arskólanum næstkomandi laugardag, 21. apríl, klukkan 17 í
Salnum í Kópavogi. Á efnisskrá eru átta lög Henri Duparc við Ijóð
Jean Lahor, Charles Baudelaire o.fl. auk þekktra óperuaría.
Hálsfesti og harmleikir
Diddú og Hljóm-
skálakvintettinn
Hljómskálakvintettinn og Diddú
troða upp á fjölbreyttum fjöl-
skyldutónleikum í sal Lágafells-
skóla í Mosfellsbæ á morgun, sum-
ardaginn fyrsta, klukkan 14.30.
Hljómskálakvintettinn er skipaður
þeim Ásgeiri H. Steingrímssyni og
Sveini Þ. Birgissyni trompettleik-
urum, Þorkatli Jóelssyni hornleik-
ara, Oddi Björnssyni básúnuleik-
ara og Bjarna Guðmundssyni
túbuleikara. Tónleikarnir eru í boði
Mosfellsbæjar og Tónlistarfélags
Mosfellsbæjar og er aðgangur
ókeypis.
Abbababb!
á ferð og flugi
Leikarar úr leikhópnum Á senunni
koma víða fram á morgun, sum-
ardaginn fyrsta, og syngja lög úr
fjölskyldusöngleiknum Abbab-
abb! eftir Dr. Gunna. Þeir verða í
Reykjavík í félagsmiðstöðvunum
Hólmaseli og Miðbergi á milli
klukkan 14 og 15 og svo verða
þeir á Thorsplaninu í Hafnar-
firði rétt fyrir klukkan 16. Einnig
hyggjast leikararnir skemmta
við afhendingu Bókaverðlauna
barnanna í Borgarbókasafninu í
Grófinni klukkan 14.
Söngleikurinn Abbababb! er
sýndur í Hafnarfjarðarleikhúsinu
og hægt er að nálgast miða á
midi.is.
Frumraun
Specials
Viljum auka listrænan
prófíl bæjarins
Djasshátíð Garðabæjar hefst á
morgun, sumardaginn fyrsta, og
stendur í þrjá daga samfellt. Há-
tíðin er haldin í annað sinn, en í
fyrra var dagskráin alfarið byggð
í kringum innfædda og aðflutta
Garðbæinga. 1 ár verða listamenn
úr Garðabæ áfram áberandi en há-
tíðin er ekki einskorðuð við þá.
„Framtíðarstefnan er ekki sú að
þessi hátíð snúist bara um Garða-
bæ enda væri það ef til vill fullsjálf-
hverft. Pælingin er samt sú að vera
alltaf með einhver atriði annars
staðar frá en samt sem áður hafa
nokkuð sterkan fókus á bænum,“
segir Sigurður Flosason, tónlist-
armaður og listrænn stjórnandi
hátíðarinnar. „Þannig snúum við
okkur núna að yngsta listafólkinu
í bænum sem er að fást við djass,
þeim Maríu Magnúsdóttur og
Jóhannesi Þorleikssyni, auk þess
sem við heiðrum tvo eldri herra-
menn, píanóleikarana Árna Elfar
og Ólaf Stephensen, merkisbera
djassins í Garðabæ um áratuga
skeið, með tónleikum Agnars Más
Magnússonar djasspíanóleikara
sem er nýfluttur í Garðabæ. Þá
verða líka tvö önnur atriði sem
eru alls óskyld bænum en það eru
Stórsveit Reykjavíkur ásamt Borg-
ardætrum, sem ríða á vaðið með
tónleikum á fimmtudaginn klukk-
an 20.“
Aðspurður segir hann það leynt
og ljóst markmið með hátíðinni að
festa Garðabæ í sessi sem djassbæ.
„Við viljum auka listrænan prófíl
bæjarins út á við, enda hefur hann
af ýmsu að státa í listalífinu án þess
að hafa endilega verið að flagga því
mjög mikið. Því viljum við breyta,
enda höfum við fulla burði til þess,“
segir hann og bætir því við að sjálf-
ur sé hann aðfluttur Garðbæingur.
„En margir af krökkunum sem hafa
alist upp hér hafa leiðst út á þessa
djassbraut og ég gæti trúað að þann-
ig verði það áfram í framtíðinni.
Hér er ágætur tónlistarskóli sem
veitir nemendum góðan grunn fyr-
ir tónlistariðkun auk þess sem hér
er barnvænt umhverfi og vinsælt
svæði enda hafa margir flutt hing-
að annars staðar frá. Þannig að
sennilega eru margar og fjölbreyti-
legar ástæður fyrir því að hér er öfl-
ugt tónlistarlif."
Sigurður segir að hátíðin í fyrra
hafi verið vel sótt og að hann sé
bjartsýnn á að svo verði einnig í
ár. „1 ár búum við reyndar svo vel
að Glitnir styrkir hátíðina þannig
að það er ókeypis inn á alla tónleik-
ana. Það er nóg að mæta í útibúið
við Garðatorg og sækja miða þar til
þess að tryggja sér sæti, og á með-
an húsrúm leyfir verður líka hægt
að fá miða við innganginn.“
Hátíðin hefst eins og fyrr seg-
ir annað kvöld, sumardaginn
fyrsta, með tónleikum Stórsveitar
Reykjavíkur og Borgardætra í Urð-
arbrunni, sal Fjölbrautaskólans í
Garðabæ klukkan 20 og eru allir
velkomnir.
hilduredda@bladid.net
Öflugt djasstónlistarlíf f Garðabæ
Siguröur Flosason, tónlistarmaður og •
listrænn stjórnandi hátíðarinnar.
Ný hljómsveit, Specials, þreytir
frumraun sína á Kringlukránni í
kvöld, siðasta vetrardag. Sveitin
sérhæfir sig í tónlist sjöunda ára-
tugarins, þar sem lög eftir Bítlana,
Stones, Kinks, Pretty Things og
fleiri eru í hávegum höfð.
Specials skipa þeir Óttar Felix og
Jonni Ólafs sem hafa gert garðinn
frægan með Pops ásamt Ingvari
Birni, gítarleikara og söngvara,
og Gumma Stefáns úr Úlfunum.
Félagarnir spila einnig á föstu-
dags- og laugardagskvöldið á
Kringlukránni.
Sumar í Pjóð-
minjasafninu
Fjölbreytt barnadagskrá er á Þjóö-
minjasafninu á morgun. Öll börn
fá blöðrur og frumlegir safnkenn-
arar hafa ýmislegt á prjónunum.
Huldustrákurinn Vöggur verður
með leiðsögn klukkan 14,15
og 16. Vöggur fer með börn og
fullorðna um safnið og segir frá
sýningargripunum.
í tilefni dagsins er ókeypis inn á
safnið og boðið upp á samfellda
dagskrá frá 14-17. Brugðið verður
á leik inni og jafnvel úti ef veður
leyfir og farið í snú-snú, teygju-
tvist og parís. Á Torginu er
sýningin „Með silfurbjarta nál í
ævintýraskógi Rousseau" og hin
ævintýralega, árlega tombóla
verður við Safnabúðina.
Ég brá undir mér betri fætinum
á laugardagskvöld og skellti mér á
frumsýningu á Hálsfesti Helenu í
Þjóðleikhúsinu. Verkið er nýtt og
eftir eitt þekktasta nútímaleikskáld
Kanada, Carole Fréchette. Hún skrif-
aði verkið eftir að hafa dvalið um
tíma í Líbanon árið 2000.
Helena er á heimleið af ráðstefnu
í borg í Austurlöndum nær sem er
að rísa úr rústum eftir stríðshörm-
ungar. Skyndilega ákveður hún að
verða eftir í von um að finna tapaða
perluhálsfesti sem áhorfendur fá
fulloft að heyra nákvæmar lýsing-
ar á. Á leið sinni um götur borgar-
innar með leigubílstjóranum Nabil
verða á vegi hennar innfæddir sem
eru sjálfir að leita að einhverju sem
þeir hafa misst.
Verkið er áhrifamikið og heim-
spekilegt. Þetta er einföld sýning
sem snýst meira um efnið og
ímyndunarafl áhorfandans en ytri
umgjörð. Leikmynd, lýsingu og
umbúnaði tekst þrátt fyrir einfald-
leika að draga mann á framandi
slóðir og reykelsisilmur og umferð-
arhávaði flutti mig samstundis
til Beirút í huganum. Leikararnir
stóðu sig fantavel, enda öll gríðar-
lega reynslumikil á sviðinu, þrátt
fyrir að persónu Helenu i túlkun
Eddu Arnljótsdóttur hafi tekist að
fara lítillega í taugarnar á mér. Hún
einhvern veginn virkaði á mig sem
þröngsýnn týpískur vesturlandabúi,
að minnsta kosti til að byrja með.
Arnar Jónsson var þó sérstaklega
Hálsfesti Helenu^*^
Þjóðleikhúsið (J
María Sigurðardóttir
Arnar Jónsson Edda Arnljótsdóttir Guðrún Snæfríður Gísladóttir Ingimar Björn Daviðsson ingimar@bladid.net
Leikhús ★ ★★^ i :
góður í sínum fjölmörgu hlutverk-
um. Það var hreint ótrúlegt að sjá
hann bregða sér í svo ólík gervi og
umbreytast rétt fyrir augunum á
mér. Guðrún Snæfríður Gísladóttir
náði á sama tíma einhvern veginn
ekki alveg að draga mig með sér í
þann stutta tíma sem hún var á svið-
inu. Eymd persónu hennar og sorg
náði ekki til mín. Hvort það er mitt
eigið kaldlyndi og tilfinningaleysi
eða eitthvað annað veit ég ekki.
Á þessum síðustu og verstu tím-
um er þetta verk sem hollt er að sjá.
Mig grunar að hálsfestin hennar
Helenu hafi verið eitthvað annað og
meira en skartgripur, og kannski
ekki minni missir fyrir hana en
fólkið á götunum sem hafði glatað
börnum og heimili. Þetta var áhrifa-
rík upplifun, og fróðleg innsýn í
heim sem okkur Vesturlandabúum
er að mestu hulinn, því eins og segir
í leikritinu, við getum ekki lifað
svona lengur.
Helana og Nabil „Fróðleg
innsýn í heim sem okkur Ves
turlandabúum er hulinn"