blaðið - 18.04.2007, Blaðsíða 28

blaðið - 18.04.2007, Blaðsíða 28
MIÐVIKUDAGUR 18. APRIL 2007 er enn standandi STIGAMET íshokkígoös- ins Wayne Gretzsky þrátt fyrir aö hann | hafi lokið keppni fyrir hartnær 20 árum. ' Stigametið samanstendur af mörkum og stoðsendingum á einni leiktíð í NHL. STIG skilja að Lottomatica Roma, lið Jóns Arnars Stefánssonar í ítalska körfuboltanum, og Mont- | epaschi Siena sem situr á toppnum í deildinni. Lottomatica hefur gengið vel og ekki útilokað að það geri alvarlega atlögu að efsta sætinu. ithrottir@bladid.net mel gefur ekkl ( > ~ kostáséríhol- lenska landsliðið v meðan Marco Van Bastenstýrirþeirri skútu. Slæst hann þar í hóp með Ruud Van Nistelrooy en þeir félagar eru sammála um að Basten velji ekki bestu mennina í hvert skipti í landsleiki heldur taki persónulega vini fram yfir. Roy Keane sem gerthefurkrafta- '"-.J verk að margra mati sem stjóri Sund- gjw v >Æ erland hefur ekki 9ij| hugleitt að taka síðar ; 4 við af Alex Fergu- Hfl son hjá Manchester. Láta ýmsir að því liggja að í það starf sé hann sjálfkjörinn en þrátt fyrir allt er hann að þjálfa í fyrsta sinn og ólíklegt að hann taki við Un- ited nema hann sanni sig enn frekar. Austurdelld jffi slg Detroit Pistons 51 Chicago Bulls 49 Toronto Raptors 47 Miami Heat 44 Cleveland Cavaliers 48 Washington Wizards 40 New Jersey Nets 40 Oflando Magic 38 Franski landsliðs- ■ markvörðurinn jfjt Gregory sr'* Coupet auglýsir jhf. sjálfan sig grimmt þó stutt sé síðan ‘ ■ ■Híl hann samdi við Lyon til 2010. Segir hann ómögulegt að hafna tilboðum frá stórliðum á borð við Barca, AC Milan eða Bayern Miinchen en ekkert þessara félaga hefur sýnt honum áhuga hingað til. Bollaleggingar spekinga vestan- hafs um hver verði valinn besti leik- maður NBA-deildarinnar í vetur, MVP, eru allar á einn veg. Það verður leikskipuleggjandi Phoenix Suns, Steve Nash, sem hefur átt enn eitt glimrandi tímabilið og þykir mun fremri en helstu andstæðingar á borð við Kobe Bryant, Gilbert Ar- enas eða Dirk Nowitski. Aðeins eitt sæti er laust í úrslita- keppnina sem hefst innan tíðar og snýst baráttan þar milli Warriors og Clippers. Staða liða sem þegar hafa tryggt sig gæti breyst lítillega eftir lokaleikina en að öllu jöfnu ættu töflurnar að líta út eins og hér að neðan. Þau þrjú lið sem helst þykja likleg til að hampa meistaratitlinum koma öll úr vesturdeild NBA. Phoenix, Dallas og San Antonio en austan megin er helst veðjað á Detroit eða Miami jafnvel þó að Bulls og Rap- tors hafi unnið fleiri leiki en Miami. Eru íþróttafréttamenn þó sammála um að einu gildi hvaða lið úr austur- deild fari alla leið í úrslit. Titlinum verður hampað af vesturdeildarliði og þá er talið líklegast að stjórar Dallas þurfi að hliðra til á bikarhillu sinni að keppni lokinni. Vesturdeild Dallas Mavericks Phoenix Suns San Antonlo Spurs Utah Jazz Houston Rockets Denver Nuggets Los Angeles Lakers Golden State LA Clippers sigrar 66 Miðjumaðurinn Steve Sidwell sem hefurveriðlykil- í*«j maður í góðu gengi Reading ] á leiktíðinni er orðaður við Newcastle. Þar sjá þeir kappann sem eðal- mann við hhð Scott ( 3E Parker en brottför hans frá Reading mun þýða fleiri tæki- W færi fyrir Brynjar S Björn Gunnarsson. w Arftaki Michaels Schumacher strax fundinn? Húrrahróp fyrir Hamilton Fyrir réttum mánuði var það ætlun yfirmanna McLaren að gefa hinum unga og óreynda Lewis Ham- ilton eins mikið svigrúm og stuðn- ing og hægt væri á næstu mánuðum og gefa ökuþórnum þannig góðan tíma til að læra að aka eins og þeir bestu í Formúlu 1. Áætlunin hefur aðeins breyst... nú er Hamilton farinn að kenna þeim. Þessi bráðefnilegi ökumaður sem enginn, ekki einu sinni hjá McLaren, hafði trú á að gerði nokk- urn skapaðan hlut sitt fyrsta tímabil og kannski aldrei er í dag skærasta Knattspyrna Barcelona - Getafe 18.35 SkjárSport___ Knattspyrna West Ham - Chelsea Schumacher sé strax fundinn en næsta keppni fer fram í Barcelona í næsta mánuði. íþróttir Skeytin inn Lokaleikirnir í NBA-deildakeppninni KR Islandsmeistarar Knattspyrnufélag Reykjavíkur er íslandsmeistari í körfuknatt- leik eftir kostulegan 83-81 sigur eftir framlengingu á Njarövík í úrslitakeppni lceland Express- deildar karla. Bauð leikurinn upp á spennu fram á lokamínútu og var frábær lokapunktur á einu farsælasta tímabili í íslenskum körfubolta um langa hríö. Sjaldan hafa vinsældir körfubolt- ans verið meiri. valinn bestur Pakkar saman Guðmundur Guðmundsson, þjálfari Fram í handbolta, hyggst hætta starfanum og snúa sér að öðru. Guðmundur gerði liðið að Islandsmeisturum fyrir ári en hafði þar áður komið víða við, þar á meðal sem landsliðsþjálfari. Boo Weekly, hvers nafn gæti útleggst “púaðu vikulega”, sigraði á Verizon Heritage-golf- mótinu vestanhafs á mánudag en mótinu varfrestað um einn dag vegna veðurs. Er þetta annar golfviðburðurinn í röð þar sem nánast óþekktir einstak- lingar skilja stórstjörnur eftir á lokasprettinum en stutt er síðan Zach nokkur Johnson kláraði Masters-mótið með stæl. Rétt á eftir Boo vini okkar kom hinn gamalkunni Ernie Els sem hafði sigurinn í höndum sér á tímabili. Beinar útsendingar www.europcar.is Upplifðu N 4 1 * Ni Kynntu þér tilboð okkar á bílaleigubílum Pantaðu bílinn hjá Europcar áður en þú leggur af stað Vió erum í 170 löndum. Upplýsingar og bókanir í síma: 565 3800 europcar@europcar.is Europcar ÞÚ LEIGIR MEIRA EN BARA BÍL. ■ Staðsetning Evrópukeppninnar 2012 ákveðin í dag: Ítalía eða fyrrum austantjaldsríki í dag tekur keppnisráð Evrópska knattspyrnusambandsins ákvörðun um hvar Evrópukeppnin i knatt- spyrnu árið 2012 fer fram. Valið stendur milli Ítalíu, Króatíu og Ung- verjalands eða Póllands og Úkraínu. Platini og kollegar hans þurfa ekki aðeins að taka ákvörðun um hvað sé best fyrir áhorfendur heldur í raun einnig hvað sé best fyrir knatt- spyrnuna í álfunni í heild. öll fjögur fyrrum austantjaldsríkin sem óskað hafa eftir að halda keppnina glíma við margvísleg félagsleg vandamál sem mörg hver væri hægt að leysa eða laga yrði keppnin haldin þar. Slíkar keppnir eru umfangsmiklar og tekjur af áhangendum og ferða- mönnum margfaldast með tilheyr- andi auknum fjölda starfa. Þess utan standa stórir oe falleeir leik- vangar eftir að keppni lokinni og fyrsta flokks æfingaaðstaða. Ekki veitir af, að minnsta kosti fyrir Pól- land, Úkraínu og Ungverjaland en staðan er betri í Króatíu eins og revndar eenei landsliðs beirra eefur til kynna. Italía er aftur á móti öruggt val. Þar er allt til alls og landið vinsælt meðal ferðamanna. Tekjur UEFA verða hærri en fótboltinn í álfunni mun efalítið veikiast.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.