blaðið - 18.04.2007, Blaðsíða 30

blaðið - 18.04.2007, Blaðsíða 30
42 MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 2007 blaðið Elskum Skipulag. Lífiö er bara miklu betra þegar allt er á sínum stað og hægt er að ganga að hlutunum vísum. Svo getur líka verið ótrúlega gaman ef maður er í stuði að taka allt i gegn og skipuleggja upp á nýtt. Eða hvað? Er kannski eitthvað að okkur? Langar í Euiit, fuiit af fötum. Það er bara svo dýrt ef maður ætlar að sleppa sér alveg. En nú eru að minnsta kosti verslanir stútfullar af flottum fatnaði og getur verið ansi erfitt að standast freistingarnar. En þá er líka í lagi að leyfa sér eitthvað af og til. fl / Líkar Við Barnasýningar. Þeim sem þykir yfirleitt ekki gaman í leikhúsi ætti allavega að þykja gaman á barnasýning- um með góðum húmor. Hver á líka ekki góðar minningar tengdar Linu langsokk, Ronju Ræningjadóttur og dýrunum í Hálsaskógi? Nú viljum við sjá félaga okkar Emil í Kattholti ásviði. Vitum ekki með Fóik sem á heimili þar sem gamla dótið er hvergi sjáanlegt. Hvar eru myndaalbúmin, bækurnar ykkar, allir smáhlutirnir sem þið keyptuð í Ikea, Tiger, Söstrene Grene... eðafarið þið kannski aldrei þangað og verslið þara í þúðum sem selja hönnun? Óper- sónuleg stíliseruð heimili með flókinni lýsingu eru bara ekki að gera sig. Það er pínu púkó að skipta öllu út á einu bretti. Bless bless inniit - útiit. Þetta er orðið gott. Þetta er ekkert skemmtilegt lengur. Okk- ur fannst gaman að fullnægja gægjuþörfinni með því að fá að sjá heimili fólks sem við þekkjum ekki en nú eruð þið eiginlega hætt því. Nú eruð þið aðallega með löng innskot um hreinsiefni og aðrar undarlegar kynningar á vörum sem við höf- um ekki áhuga á. Og svo er líka komið nóg af veggfóðri, rókókói, 0^ stólum eftir 7*1 < fræga hönnuði, svörtu og hvítu og há- 4 glans. Þolum ekki Fermingarveisl- ur. Fermingar eru orðnar eins og svo margt annað hátíð kaup- manna þar sem fólk er hvatt til þess að eyða tugum þúsunda í gjafir handa fermingarbörnum sem það þekkir ekki og þarf svo að sitja meðal ókunnugra ^og borða brauðtertu og i drekka appelsín i nokkra 1 klukkutíma. Sólbrún og sælleg Nú þegar vora tekur er um að gera að taka forskot á sæluna og verða sér úti um brúnkukrem til þess að fá roða í kinnarnar fyrr en ella. (Flash Bronzer frá Lancöme er rakagefandi efni sem gerir það að verkum að liturinn dreifist jafnt yfir húðina og smýgur strax inn í hana þannig að ekki er hætta á að efnið smitist i fötin. Árangurinn er fallega sólkysst húð á skömmum tíma. Þægilegt Þessa hettupeysu keypti ég í Cam- den í London en hana er hægt að nota við nánast hvað sem er. Hvaða flik langar þig mest í? Mig langar eiginlega mest i nýjan leðurjakka eins og er. Það er ekkert sérstakt merki sem ég hef í huga, bara einhvern floítan jakka helst brúnan eða svartan. 1 Hvers konar flikur notar þú rnest? Ég myndi segja að ég væri oftast bara i gallabux- um og þá í bolum eða sfyrtum við. iða sfyrtum > i fataskáf Af hverju er mest i fátaskápnum þinum? I fataskápnum mínum er^angmest af bolum, helst þá stuttermaboiumfen annars er kannski hægt að finna ýmislegt ^nað líka. Hverju færöu ekki nóg af? Ég fæ ekki nóg af bolum.og skyrtum, ég verð bara að segja það aftur. Hvaða verslanir eru i uppáhaldi? Hérna heima er það Elvis en ég fer oftast þangaö þegar ég versla hér heima en annars i versla ég mest þegar ég er í útlöndum. Það eru þá lielst seconrl hand verslanir sem ég \ fer i eins og i Camden í London. Svo verð (ég að nefna eina búð sem heitir Hot Topic i Bandarikjunum en það er aðallega bolabúð ., og með svona allskyns rokkarafatnað. fcHvað skilur þú aldrei við þig? |i Ef ég á að nefna eitthvað sem ég skil aldrei við mig þa er það liklega síminn og kveikjarinn. Þórhallur Reynir Stef- ánsson, trommuleik- ari hljómsveitarinnar Lights on the High- way, segir boli og skyrtur vera í mestu uppáhaldi þó aö trom- musettið og kassagít- arinn séu langbestu kaupin. Hvaö gerirðu til þess að lita vel út? Ég get nú ekki sagt að ég eigi ein- hver fegrunarráð til að gefa. Ég nota ekki krem og er eiginlega aldrei vel rakaður. Bestu kaupin? Bestu kaupin sem ég hef gert eru liklega trommurnar mínar og kassagítarinn minn, ég get ekki sagt annað. Hversdagsflíkin Þessar Lee-galla- buxur nota ég mjög mikið. Bestu skórnir Sjúskuðu hvítu TUK-strigaskórnir sem ég keypti í Banda- ríkjunum eru alltaf í uppáhaldi. JKIassík Hvítu stuttermaskyrt- unaerhægtað í nota bæði dags- ' daglega sem og viö hátíðlegri í tilefni. Dökkbláa bindið Bindið keypti ég í Elvis sem er ein af uppáhaldsbúðunum mín- um hérna heima. Verslar mest erlendis..* oa þá aðallega boli... og Kannski skyrtur lika Rekur eins og yfirgefiö skip Rannsóknarblaðamaðurinn Ro- wena Price (Halle Berry) kemst að því að morðið á vinkonu hennar gæti tengst Harrisson Hill (Bruce Willis) sem er eigandi stærstu aug- lýsingastofu Bandaríkjanna. Price hefur störf hjá Hill og reynir að komast að sannleikanum með hjálp tölvusnillingsins Miles Hailey (Gio- vanni Ribisi). Yfirleitt hef ég gaman af kvik- myndum sem hafa hæga atburðarás og sniglast áfram. Þannig mynd- ir verða þó að hafa eitthvað, vera skemmtilegar og/eða spennandi. Perfect Stranger er hvorki skemmti- leg né spennandi. Hún er hundleið- inleg. Perfect Stranger á að vera tryllir. Perfect StrangerjfÉ^ Smárabíó, Borgarbíó Akureyri. James Foley \ • Mk Halle Berry, Giovanní Ribisi, Bruce Willis. V rr Atli Fannar Bjarkason atll@bladid.net Kvikmyndir ★ ★ Henni tókst þó ekki að trylla mig og tel ég mig nokkuð góðan hafa ekki sofnað yfir myndinni. Spenn- an er engin, en ljósu punktarnir eru þó nokkrir. Giovanni Ribisi sýnir stjörnuleik í hlutverki Miles. Atrið- in með honum eru þau skemmtileg- ustu og komu mér meira að segja nokkrum sinnum til að hlæja. Þá er Halle Berry stórglæsileg í hlutverki Price en útgeislun hennar er aðeins útlitinu að þakka, túlkun hennar er ekkert til að tala um - hún er hvorki góð né léleg. Bruce Willis er óttalega mínimalískur í hlutverki Harrison Hill, þarf lítið að sýna en skilar sínu vel. Perfect Stranger tekst ekki að halda neinu samhengi og virkar heldur ruglingsleg á köflum. Hana rekur eins og yfirgefið skip á rúm- sjó, öldurgangurinn er enginn og út- sýnið veldur vonbrigðum. Myndin verður ekki spennandi fyrr en hún Willis og Berry Perfect Stranger tekst ekki að halda neinu samhengi. strandar í endann og nær þá aðeins að hreyfa við manni. Of lítið of seint - Perfect Stranger er vel gerð mynd sem er langt frá því að vera skemmtileg. Henni mis- tekst ætlunarverk sitt og afsakanir hennar í endann eru í hæsta máta aumkunarverðar.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.