blaðið - 19.04.2007, Blaðsíða 1

blaðið - 19.04.2007, Blaðsíða 1
Borgardætur 14 ára | Gott gengi Amiinu i. Ellen Kristjánsdóttir heldur upp j Stúlkurnar úr hljómsveitinni S; á fjórtán ára starfsafmæli Borg- j Amiinu eru nýkomnar heim m ^ ardætra á djasshátíö í Garðabæ I úr tónleikaför frá Bandaríkj- Jj § um helgina ásamt stallsystrum i unum og plata er væntanleg ■ | sínum og Stórsveit Reykjavíkur. ! frá þeim í sumar. ■ Tangó vinsæll Bryndís Halldórsdóttir, stofnandi | Tangófélagsins, segir að tangó | krefjist gífurlegrar einbeitingar, 1 næmni og samhæfingar á milli I tveggja einstaklinga. SÉRBLAл 73. toiublað 3. árgangur fimmtudagur 19. apríl 2007 FRJALST, OHAÐ & OV 46,1% 4 37,4% Betri 14,3% Verri 2,1% Sambæri- Veit legt ekki Telur þú fjárhagslega stöðu þín vera betri, verri eða sambærilega og fyrir fjórum árum? Flestir telja stöðu sína betri Hátt í 50 prósent telja fjárhagslega stöðu sína vera betri en fyrir fjórum árum, samkvæmt skoðanakönnun Blaðs- ins. Rúmlega 37 prósent aðspurðra telja hana sambærilega og rúm 14 prósent telja hana verri. Harpa Njáls félagsfræðingur telur að staðan hafi heldur batnað hjá fólki á síð- astliðnum fjórum árum miðað við sínar rannsóknir. FRETTIR »10 Vilja niðurgreiðslu „Við viljum að viðtalsmeðferð hjá sálfræð- ingum á einkastofum sé niðurgreidd á sama hátt og viðtalsmeðferð hjá geðlæknum," segir Halldór Kr. Júlíusson, formaöur Sálfræðingafélags íslands. „Félagið hefur kært úrskurð áfrýjunarnefndar samkeppnismála sem komst að þeirri niðurstöðu að heilbrigðisyfirvöldum bæri ekki semja við sálfræðinga líkt og það semur við geðlækna. Málflutningur vegna málsins hófst í gær. FRÉTTIR » 2 Um 170 létust í röð sprengjuárása Rúmlega 170 manns létust og á þriðja hundrað særðust í röð sprengjuárása í Bagdad, höfuðborg (raks, í gær. Mannskæðasta árásin varð í Sadr- hverfinu, þar sem að minnsta kosti 120 létust og rúmlega hundrað særðust þegar bílsprengja sprakk á fjölmennum markaði. Sjónarvottur segir að mörg fórnarlambanna hafi verið konur og börn. FRÉTTIR » 4 Tvö af elstu húsum landsins stórskemmdust HAUNTED VALKS2006 SLÖKKVitlj) Stórbruni ■ Slökkvistarf stóð fram á nótt ■ Kviknaði í út frá Ijósum í lofti Eftir Magnús Geir Eyjólfsson magnus@bladid.net Gríðarlegt tjón varð í stórbruna í miðbæ Reykjavíkur þegar eldur kom upp í Lækjargötu 2 og Austurstræti 22 um tvöleytið í gær. Sjónarvottar sáu eld í loftræstingu Upplýsinga- miðstöðvarinnar í Austurstræti, þar sem söluturninn Fröken Reykja- vík var áður til húsa, þaðan sem hann breiddist hratt út í nærliggj- andi húsnæði. Líklegt þykir að kviknað hafi í út frá ljósum í lofti Upplýsingamiðstöðvarinnar. Allt tiltækt slökkvilið á höfuðborg- arsvæðinu var kallað á staðinn auk þess sem óskað var eftir aðstoð Bruna- varna Suðurnesja. Greiðlega gekk að ráða niðurlögum eldsins í Lækjar- götu en slökkvistarf í Austurstræti, þar sem Pravda er til húsa, gekk hins vegar erfiðlega þar sem mikill eldur var í þaki hússins. Var á endanum brugðið á það ráð að rífa þakið af húsinu. Búið var að mestu leyti að ná tökum á eldinum um kvöldmat- arleytið í gærkvöldi en slökkvistarf stóð langt fram á nótt. FRÉTTIR » 6 Besti ferðafélaginn! OFFROAD Dömu og herra Nr. 69533-4 Stærðir: 36-47 <2CCO Litir: blackB offwhite □ Verö: 10.995 kr.- Kringlan - Laugavegur - Smáralind Hestar á róandi á Rolling Stones Dýravinir hafa farið fram á að fyrirhugaðir tónleikar hljómsveit- arinnar Rolling Stones í Belgrad, höfuðborg Serbíu, verði fluttir þar sem til stendur að gefa þrjú hundruð hestum í nálægum hesthúsum róandi lyf til aö halda þeim rólegum meðan á tónleikunum stendur. Búist er við að rúmlega 100 þúsund manns muni sækja tónleik- ana sem verða á stærsta reiðvelli borgarinnar, í júlímánuði og munu hestarnir einungis vera í nokkurra metra fjarlægð frá sviðinu. Dýra- vinirnir segjast munu beina orðum sínum beint til Mick Jagger takist þeim ekki að sannfæra skipuleggj- endur um að flytja tónleikana. NEYTENDAVAKTIN » ■ é Verð á lítra af mjólk Verslun Krónur Verslun Krónur 11-11 85 Krónan 73 10-11 85 Nettó 74 Bónus 72 Nóatún 80 Hagkaup 80 Samkaup 80 Lítraverð í krónum í verslunum á höfuöborgarsvæðinu Upplýsingar frá Neytendasamtökunum GENGI GJALDMIÐLA USD SALA 65,160 % -0,11 ▼ GBP 130,94 0,13 ▲ DKK 11,89 0,01 ▲ • JPY 0,543 0,27 ▲ ■ EUR 88,61 0 ♦ GENGISVÍSITALA 119,6 0,17 A ÚRVALSVÍSITALA 7.831,01 0,25 A Tilvalið í bústaðinn Traust og örugg húsgögn sem henta vel í hvaða bústað sem er -HÖSCflCH-fl 4lTI[íllLlt> Sérverslun með barnahúsgögn og fylgihluti

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.