blaðið - 21.04.2007, Blaðsíða 2

blaðið - 21.04.2007, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 21. APRÍL 2007 blaöi6 Á MORGUN Úrkoma Slydda eða snjókoma og hiti i kringum frostmark fyrir norðan, en dálítil rigning með köflum syðra og 2 til 8 stiga hiti. VÍÐA UM HEIM Algarve Amsterdam Barcelona Berlín Chicago Dublin Frankfurt 19 11 17 9 16 14 17 Glasgow Hamborg Helsinki Kaupmannahöfn London Madrid Montreal 11 6 6 8 15 24 7 New York Orlando Osló Palma París Stokkhólmur Þórshöfn -1 19 8 23 19 6 5 Fór fram á dómkvaðningu kunn- — _ áttumanna Jónas Garðarsson ásamt — - verjanda sínum, Kristjáni Stefánssyni. Ný gögn í máli Jónasar Garðarssonar: Skert dómgreind vegna heilaáverka ■ Mat tveggja sérfræðinga ■ Stýrði bátnum af skerinu ■ Villandi innsiglingarljós VEÐRIÐ I DAG Úrkoma Ailhvöss eða hvöss NA-átt og slydda eða snjókoma norð- og norðvestan- lands, annars mun hægari vindur og rigning með köflum. Kólnar, einkum norðan til. Á FÖRNUM VEGi Er sumarið komið? Díana íris Guðmundsdóttir: Svona „semí“. Rakel Ýr Ólafsdóttir: Nei, það er frekar kalt enn þá. Gísli Gíslason: Ég bý í Danmörku og þar er sumarið komið. Eiríkur Árni Guðmundsson: Nei, ekki alveg. Eiríkur Árni Guðmundsson: Nei, ekki alveg. Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur ingibjorg@bladid.net Áverkar á heila skertu tímabundið hæfi Jónasar Garðarssonar, fyrr- verandi formanns Sjómannafélags Reykjavíkur, til að taka rökréttar ákvarðanir. Þetta kom fram í nýjum gögnum í málflutningi fyrir Hæstarétti í gær, að því er Kristján Stefánsson, hæstaréttarlögmaður og verjandi Jónasar greinir frá. „Þetta er mat tveggja lækna, heila- sérfræðinga, sem kvaddir voru til af héraðsdómi. Jónas hafði farið fram á dómkvaðningu kunnáttumanna,“ segir Kristján. Jónas var í fyrra dæmdur í þriggja ára óskilorðs- bundið fangelsi fyrir manndráp af gáleysi. Hann krefst sýknu en ákæruvaldið þyngri dóms. Tvennt lést þegar skemmtibátur Jónasar, Harpa, steytti á Skarfaskeri á Viðeyjarsundi haustið 2005. Jónas, sem var undir áhrifum áfengis þegar slysið varð, var fundinn sekur um stórfellda vanrækslu sem skip- stjóri bátsins og fyrir að hafa ekki kallað strax á björgunarlið. Við aðalmeðferð málsins fyrir Hér- aðsdómi Reykjavíkur hélt Jónas því fram að hann hefði ekki verið við stýrið þegar slysið varð, heldur Matt- hildur Harðardóttir. Matthildur lést í slysinu og einnig sambýlismaður hennar, Friðrik Ásgeir Hermanns- son. Dómurinn féllst ekki á þá skýr- ingu Jónasar að Matthildur hefði verið undir stýri. Taldi dómurinn að Jónas hefði gert sig sekan um að reyna að koma ábyrgð yfir á þá sem létust í sjóslysinu. Jafnframt að Matthildur hefði lifað af slysið hefði Jónas brugðist við með eðlilegum hætti. Á meðan hún var neðan þilja að huga að sambýlismanni stýrði Jónas bátnum af skerinu. Jónas kvaðst hafa vankast við höggið þegar báturinn strandaði og því ekki muna eftir sér fyrr en hann var í sjónum eftir að bátnum hvolfdi. I dómsorði Héraðsdóms Reykja- víkur var bent á að sneiðmynd af höfði ákærða, sem tekin var við komu á slysadeild, hefði ekki leitt neitt athugavert í ljós. Jafnframt þótti ýmislegt annað benda til að ákærði hefði ekki verið með skerta meðvitund. Heildstætt kort af Reykjavíkur- höfn var einnig lagt fram í málflutn- ingi fyrir Hæstarétti í gær. Um er að ræða kort af ytri og innri höfninni sem ekki hafði áður verið lagt fram. „Það sýnir að innsiglingarljósin í Reykjavíkurhöfn kunna að virka eins og villuljós. Sakborningur telur að þar sé komin skýring á slysinu. Ekki vegna þess að gefnar hafi verið rangar upplýsingar eða röng ákvörðun tekin, heldur hafi slysið orðið vegna þess að baujur hafi verið þannig staðsettar að þær villa um fyrir sjófarendum í myrkri,“ segir Kristján Stefánsson, verjandi Jónasar. NÝSKÖPUN, BÆTT HAGSTJÓRN OG ÁBYRG UMHVERFISSTEFNA ÍSLANDSHREYFINGIN UfaJuiL Úrræði fyrir geðveika og vegalausa: Nýtt heimili brátt opnað 'lýtt heimili fyrir heimilislausa r ekki geta nýtt sér önnur úrræði ður opnað á næstu mánuðum. geta tíu einstaklingar dvalið lýr 1 hitavenusiuiuM * ■ Lyglnnl llkast ipið vildi mast burt Blaðið 18. apríl á sama tíma. Ætla má að heimilið nýtist 20 til 30 einstaklingum á árs- grundvelli,“ segir Einar Njálsson, verkefnisstjóri átaks félagsmála- ráðuneytisins í þjónustu við geðfatlað fólk. Sveinn Magn- ússon, framkvæmdastjóri Geðhjálpar, sagði í viðtali við Blaðið í gær að á skrá hjá sér væru á sjötta tug vegalausra geðfatlaðra en að á skrá ráðu- neytisins væru þeir níu til tíu. Einar bendir á að sam- kvæmt skýrslu samráðs- hóps um heimilislausa í Reykjavík frá haustinu 2005 eigi 45 til 55 einstaklingar hvergi höfði sínu að halla á hverium tíma. „Nokkrir í Á sjötta tugáskrá Sveinn Magnússon, framkvæmdastjóri Geðhjálpar þeim hópi eiga við fötlun að stríða vegna langvarandi geðröskunar.“ Sveinn sagði einnig sjónum fé- lagsmálaráðuneytisins nú einkum beint að þeim sem væru á stofn- unum. Einar segir átakið í upp- byggingu þjónustu fyrir geðfatlað fólk beinast að öllum sem þurfa á nýjum úrræðum að halda. „Það ein- skorðast ekki við þá sem dveljast á sjúkrastofnunum,“ leggur Einar áherslu á.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.