blaðið - 21.04.2007, Blaðsíða 4
4 LAUGARDAGUR 21. APRÍL 2007
blaöiö
INNLENT
LYFJAAKSTUR
Gripinn í bóli bjarnar
Karlmaður á þrítugsaldri var í fyrradag handtekinn
fyrir lyfjaakstur, en hann var staðinn að verki í porti
lögreglustöðvarinnar við Hverfisgötu. Þangað hafði
hann komið til að hitta kunningja sinn, sem einnig
var í haldi lögreglu fyrir að aka undir áhrifjum lyfja.
VATNSLEKI
VIS bótaskylt fyrir hönd OR
Vátryggingafélag íslands er bótaskylt fyrir hönd Orkuveitu
Reykjavíkur vegna lekans sem varð á Vitastíg í miðbæ
Reykjavíkur á miðvikudagskvöldið. Ásgeir Baldursson,
framkvæmdastjóri vls, segir ekki búið að meta hversu háa
upphæð um sé að ræða en að það liggur fyrir eftir helgi.
LOGREGLUMAL
Lánaði bílinn í ölæði
Karlmaður á miðjum aldri kom á lögreglustöð í fyrra-
dag til að kæra þjófnað á bíl. Þegar betur var gáð reynd-
ist maðurinn hafa lánað bílinn sinn fyrir hálfum mánuði.
Þá var maðurinn við drykkju og mundi öll málsatvik að
því undanskildum hverfékk bílinn að láni.
AUGLYSING FRA YRR-
KJÖRSTJÓRN REYKJAVÍK-I
URKJÖRDÆMIS NORÐUR
UM MÓTTÖKU FRAM-
Reykjavíkurborg BOÐSLISTA OG FLEIRA
Framboðsfrestur til alþingiskosninga 12. maí 2007 rennur út föstudaginn 27.
apríl nk. kl. 12.00 á hádegi.
Yfirkjörstjórn Reykjavíkurkjördæmis norður tekur á móti framboöslistum þann
dag kl. 10.00-12.00 f fundarherbergi borgarráðs, Ráðhúsi Reykjavíkur við
Tjarnargötu.
Á framboðslista skulu vera 22 nöfn frambjóðenda. Hverjum framboðslista skal
fylgja skrifleg yfirlýsing allra þeirra sem á listanum eru um að þeir hafi leyft að
setja nöfn sín á listann. Framboðslista skal og fylga skrifleg yfirlýsing um
stuðning við listann frá kjósendum í hlutaðeigandi kjördæmi. Tilgreina skal
nafn meðmælanda, kennitölu hans og heimili. Fjöldi meðmælenda skal vera
330 að lágmarki og 440 að hámarki.
Engin kjósandi getur mælt með fleiri en einum framboðslista. Komi það fýrir
strikast nafn kjósandans út í báðum (öllum) tilvikum. Loks skal fylgja fram-
boöslista skrifleg tilkynning frá frambjóöendum listans um hvegir tveir menn
séu umboðsmenn listans.
Gæta skal þess um öll framboö að tilgreina skýrlega nafn frambjóðanda,
kennitölu hans, stöðu eða starfsheiti og heimili til þess að enginn vafi geti leik-
ið á því hverjir eru í kjöri. Mælst er til að framboöslistum og listum yfir með-
mælendur veröi skilað á tölvutæku formi.
Að öðru leyti er vísaö til ákvæða laga um kosningar til Alþingis nr. 24/2000,
með síðari breytingum.
Meðan kosning fer fram, laugardaginn 12. maí nk., verður aðsetur yfirkjör-
stjórnar í Ráðhúsi Reykjavíkur, þar sem talning atkvæða, að kjörfundi loknum,
mun fara fram.
Reykjavík, 20. april 2007
Yfirkjórstjórn Reykjavíkurkjórdæmis norður
AUGLYSING FRA YRR-
KJÖRSTJÓRN REYKJAVÍK
URKJÖRDÆMIS SUÐUR
UM MÓTTÖKU FRAM-
Reykjavíkurborg BOÐSLISTA OG FLEIRA
Framboðsfrestur til alþingiskosninga 12. maí 2007 rennur út föstudaginn 27.
april nk. kl. 12.00 á hádegi.
Yfirkjörstjórn Reykjavíkurkjördæmis suður tekur á móti framboðslistum þann
dag kl. 10.00-12.00 á bókasafni Hagaskóla, Fornhaga 1, II. hæð.
Á framboðslista skulu vera 22 nöfn frambjóðenda. Hverjum framboðslista skal
fylgja skrifleg yfirlýsing allra þeirra sem á listanum eru um að þeir hafi leyft að
setja nöfn sín á listann. Framboðslista skal og fylgja skrifleg yfirlýsing um
stuöning við listann frá kjósendum f hlutaðeigandi kjördæmi. Tilgreina skal
nafn meðmælanda, kennitölu hans og heimili. Fjöldi meðmælenda skal vera
330 að lágmarki og 440 að hámarki.
Engin kjósandi getur mælt með fleiri en einum framboðslista. Komi það fyrir
strikast nafn kjósandans út í þáöum (öllum) tilvikum. Loks skal fylgja fram-
boðslista skrifleg tilkynning frá frambjóöendum listans um hverjir tveir menn
séu umboðsmenn listans.
Gæta skal þess um öll framboð að tilgreina skýrlega nafn frambjóöanda,
kennitölu hans, stöðu eða starfsheiti og heimili til þess að enginn vafi geti leik-
ið á því hverjir eru f kjöri. Mælst er til að framboðslistum og listum yfir meó-
mælendur verði skilað á tölvutæku formi.
Aö öðru leyti er vísað til ákvæða laga um kosningar til Alþingis nr. 24/2000,
með síöari breytingum.
Meðan kosning fer fram, laugardaginn 12. maí nk., verður aðsetur yfirkjör-
stjórnar í Hagaskóla, þar sem talning atkvæða, að kjörfundi loknum, mun fara
fram.
Reykjavík, 20. april 2007
Yfirkjörstjórn Reykjavíkurkjördæmis suður.
Fyrstu viðbrögð Starfs-
menn Pravda og Hressó
berjast við eldinn áöur en
slökkvilið bar aö garði.
f A / *; Vjj
1 : i 1
Starfsmenn Pravda uppi á þaki:
Sprautuðu á reyk
með slökkvitæki
■ Lögregla verst frétta ■ Útilokar ekki íkveikju ■ Óvíst um afdrif húsanna
Eftir Magnús Geir Eyjólfsson
magnus@bladid.net
„Við vorum fjórir að spjalla saman
við stóra borðið niðri þegar bruna-
varnarkerfið fer í gang. Þá kemur
einhver utan af götu og segir okkur
að það rjúki úr milli húsanna, það
er sjoppunni og Pravda. Við fórum
upp með slökkvitæki en sáum
engan eld en sprautuðum samt á
reykinn,“ segir Magnús Benedikts-
son, rekstrarstjóri og meðeigandi á
Pravda.
f þættinum ísland i dag í gær-
kvöldi voru birtar myndir frá upp-
hafi brunans þar sem starfsmenn
Pravda og Hressó voru uppi á þaki
að reyna að slökkva eldinn áður en
slökkvilið kom á staðinn. Magnús
var einn þeirra og segir hann að
slökkvistarf starfsmannanna hafa
verið nokkuð ómarkvisst, enda at-
burðarrásin hröð og um ósjálfráð
viðbrögð að ræða. „Maður vissi
í raun ekkert hvað við vorum að
gera. Við sáum niðri á milliþakinu
að þar voru gaskútar og það rauk
þar allt í kring, þannig að okkur
leist ekkert á þetta. Nokkru síðar
kemur lögreglan og vísar okkur frá
af öryggisástæðum."
Hátt í 8o starfsmenn starfa í þeim
fyrirtækjum sem eldinum urðu að
bráð og er útlit fyrir að það missi
vinnu sína um sinn. Þar af störf-
uðu rúmlega 50 manns á Pravda og
verður þeim greint frá stöðu mála
á starfsmannafundi næstkomandi
þriðjudag. Magnús vonast til að
staðurinn verði opnaður á ný sem
allra fyrst, enda reksturinn gengið
vel að undanförnu. „Þetta kemur á
versta tíma þótt aldrei sé tíminn
góður.“
f fyrstu var talið að kviknað
hafði í út frá ljósum í lofti söfu-
turnsins en lögreglan útilokar
ekki aðra möguleika. Stefán Eiríks-
son, lögreglustjóri á höfuðborgar-
svæðinu, segir rannsókn miða vel
en vill ekki tjá sig nánar um fram-
gang hennar. Hann segir íkveikju
ekki útilokaða en rannsóknin bein-
ist þó ekki að íkveikju frekar en
öðru.
Málið er umfangsmikið og leitar
lögreglan allra mögulegra upp-
lýsinga, meðal annars úr eftirlits-
myndavélum í nágrenninu. Stefán
segist hafa skoðað einhverjar
þeirra mynda sem birtar voru í
gær og vildi koma því á framfæri
að allar upplýsingar um eldsupp-
tökin skipta máli. Því ættu þeir
sem hafa undir höndum myndir
eða annað sem skipt getur máli að
koma því á framfæri við lögreglu.
Niðurrifsstarf í brunarústunum
við Lækjartorg og Austurstræti var
í gær stöðvað þar til ákvörðun hefur
verið tekin um framtíð svæðisins.
Borgaryfirvöld funduðu í gær með
fulltrúum Minjaverndar, Árbæjar-
safns og Húsafriðunarnefndar þar
sem rætt var um hvað þyrfti að
vernda og hvernig ganga eigi frá
rústunum þannig að almenningi
stafi ekki hætta af. Engar form-
legar ákvarðanir voru teknar en
málið gæti skýrst frekar á morgun
þegar borgaryfirvöld funda með
hagsmunaaðilum.
Ljóst er að tjónið í brunanum
nemur hundruðum milljónum
króna. Vonir standa til að hægt
verði að endurreisa húsið að Lækj-
argötu 2 en alls er óvíst hvað verður
um Austurstræti 22, þar sem
Pravda var til húsa.
mjöoii fÓO% \ Smiöati
Símjúkurtí brauðlð, pónnuna og I bakiturinn
, Símjúkur d brauðið, pðnnuna og i baksturirm
lAfMiip
- vinsælasta viðbitið