blaðið - 21.04.2007, Blaðsíða 6
6 LAUGARDAGUR 21. APRÍL 2007
blaöiö
INNLENT
HAGSTOFAISLANDS
Launavísitala hækkar
Launavísitala í marsmánuði 2007 hækkaði um 0,3
prósent frá fyrri mánuði og mælist nú 313,2 stig. Launa-
vísitalan hefur hækkað um 9,7 prósent síðastliðna tólf
mánuði. Launavisitala sem gildir við útreikning greiðslu-
marks fasteignaveðlána í maí 2007 er 6.852 stig.
ÖLVUNARAKSTUR
Taldi sig hafa fengið hjartaáfall
Héraðsdómur Reykjaness svipti í gær karlmann ökurétt-
indum í tvö ár fyrir ölvunarakstur. Maðurinn bar pví við
að hann taldi sig vera fá hjartaáfall og því hafi hann ekki
átt annarra kosta völ en að aka undir áhrifum. Á miðri
leið á spítalann hvarf verkurinn en hann var tekinn.
STRÆTÓ BS.
Nýr framkvæmdastjóri
Stjórn Strætó bs. ákvað í gær að ráða Reyni Jóns-
son í stöðu framkvæmdastjóra félagsins og hefur
hann hafið störf. Reynir tekur við af Ásgeiri Eiríks-
syni sem lét af störfum í byrjun febrúar. Reynir er
viðskiptafræðingur og stundar meistaranám.
Nígería:
Kjörseðlar
ekki komnir
Maurice Iwu, formaður yfir-
kjörstjórnar nígerísku forseta-
kosninganna, tilkynnti í gær
að kjörseðlar væru enn ekki
komnir til landsins, en fyrir-
hugað var að kjörstaðir opnuðu
í morgun.
Iwu sagði að sökum þessa
gæti opnun kjörstaða hugsan-
lega tafist um tvær klukku-
stundir, en fréttaskýrendur
segja útilokað að hægt sé að
dreifa milljónum kjörseðla um
víðfemt landið fyrir þann tíma.
Iwu lét ummælin falla á blaða-
mannafundi þegar hann var
spurður út fréttir þess efnis að
vörubíll fylltur kjörseðlum, þar
sem þegar væri búið að merkja
við fulltrúa stjórnarflokks
landsins, hefði fundist. Iwu
sagði það vera óhugsandi þar
sem kjörseðlarnir „væru enn á
leið til landsins “, en þeir voru
prentaðir í Suður-Afríku.
Vlrðing fyrir umhverfi Ofanvatnslausnir Tilboð í lóðir
1» n'M
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur
ingibjorg@bladid.net
Rammaskipulag nýs bæjarhluta í
Garðabæ, Urriðaholts, hefur hlotið
verðlaun bandarískra arkitekta-
samtaka, Boston Society of Arc-
hitects. Undirritaður var í gær sam-
starfssamningur Garðabæjar og
Urriðaholts ehf. um uppbyggingu
bæjarhlutans.
„Verðlaunin eru veitt fyrir framúr-
skapandi skipulag sem unnið hefur
verið frá grunni með sjálfbæra
þróun og virðingu fyrir umhverfi
og samfélagi að leiðarljósi," segir
Arinbjörn Vilhjálmsson, skipu-
lagsstjóri Garðabæjar. Að skipu-
laginu hafa unnið breskir, banda-
rískir og íslenskir arkitektar og
skipulagsfræðingar.
Lögð hefur verið áhersla á að
íbúar fái sem best notið útivistar
og nálægðar við Urriðavatn og
Heiðmörk. Grænir geirar ganga
í gegnum hverfið og þjóna sem
útivistarsvæði, gönguleiðir og
skjólbelti trjáa. Gnægð verður af
göngu- og hjólreiðastígum, svo og
umferðargötum sem eru hannaðar
sérstaklega til að tryggja hóflegan
umferðarhraða.
Gert er ráð fyrir um það bil 1.625
íbúðum í suðurhlið holtsins, ofan
við Urriðavatn og um 150 þúsund
fermetrum atvinnu- og þjónustu-
húsnæðis í viðskiptastræti á norð-
anverðu holtinu.
Lögð er áhersla á að Urriðaholt
skari fram úr í umhverfismálum.
Sem dæmi má nefna að til að tryggja
náttúrulegan vatnabúskap í Urriða-
vatni er úrkoma ekki látin renna
í hefðbundin niðurföll, heldur í
jarðveginn með svokölluðum of-
anvatnslausnum. „Þegar byggð er
reist á svona svæði hneigist hún til
að þurrka landið upp. Allt ofanvatn
fer beint í skólpræsakerfið og beint
út í sjó. Rannsóknir á Urriðavatni
leiddu í ljós að vatnabúskapur þess
er að mestu leyti tilkominn af of-
anvatni sem safnast í holtinu. Þess
vegna var ákveðið að grípa til sér-
stakra ofanvatnslausna," greinir Þór
Steinarsson hjá Urriðaholti ehf. frá.
Að sögn Þórs var alltaf unnið út frá
því að vernda umhverfið og lífríkið
haft í forgrunni við allt skipulagið. í
tengslum við ofanvatnslausnirnar
verður til dæmis byggingarefni húsþaka
að vera úr umhverfisvænum málmum.
Samkomulag er um að Urriðaholt
ehf. taki þátt í kostnaði við uppbygg-
ingu skóla og íþróttamannvirkja í
Urriðaholti sem nemur rúmlega 1,3
milljörðum króna. Urriðaholt ehf.,
selur byggingarréttinn að lóðum á
svæðinu ásamt tilheyrandi leigulóð-
arréttindum. Sala á lóðum hefst 15.
maí næstkomandi og munu kaup-
endur eiga að gera tilboð í þær.
Verslun ORMSSON aö Lágmúla 8 hefur verið endurnýjuð frá grunni
OPIÐ ELDHÚS í SÝNINGARSAL ALLA HELGINA
Fjöldí girnilegra opnunartilboða!
OPIÐ HÚS ALLA\ HELGINA
Opið laugardag frá kl. 11-16
og sunnudag frá kl. 13-17.
ORMSSON
LÁGMÚLA 8 • SÍMI 530 2800 • www.ormsson.is
Ástralía:
Draugaskip
áreki
Mannlaus seglskúta fannst
með vélar í gangi og mat á
borðum undan norðaustur-
strönd Ástralíu í gær. Ekkert
hefur spurst til þriggja manna
áhafnar skútunnar, sem er tólf
metrar að lengd, síðan hún lagði
úr höfn frá Airlie Beach á leið til
Townsville í Queensland.
Tólf þyrlur sveima nú um á
svæðinu í leit að áhafnarmeð-
limum, 56, 63 og 69 ára karl-
menn. Björgunarmenn eru mjög
undrandi vegna málsins. „Vélar
og tölvur voru í gangi um borð,
kveikt var á fartölvu á einu borð-
inu, talstöðvar virkuðu og búið
var að leggja mat á borð. Þetta
er mjög skrýtið,“ sagði Jon Hall,
talsmaður björgunarsveitar i
Queensland.