blaðið - 21.04.2007, Blaðsíða 8

blaðið - 21.04.2007, Blaðsíða 8
8 LAUGARDAGUR 21. APRÍL 2007 blaöi6 UTAN ÚR HEIMI SÓMALÍA ★ Varað við hörmungum Flóttamannahjálp Sameinuðu þjóðanna hefur varað við síversnandi ástandi fólks sem hefur flúið heimili sín í Mogadishu, höfuðborg Sómalíu, sökum mikilla bardaga undanfarið. Talið er að 200 þúsund manns hafi flúið heimili sín frá lokum síðasta árs. Stjórnmálamenn ákærðir Þrír liðsmenn Dansk folkeparti hafa verið ákærðir til lögreglu vegna herferðar flokksins gegn múslímskum liðsmanni Enhedslisten. Ákæran var lögð fram eftir að liðsmenn Dansk folkeparti gagnrýndu hinn 25 ára Asmaa Abdol-Hamid ítrekað fyrir að ganga um meö höfuðslæðu. Slæmt samband við Rússa Peter Mandelson, framkvæmdastjóri hjá Evrópusambandinu, segir að traust milli ESB og Rússlands hafi ekki verið minna frá lokum kalda stríðsins. Mandelson sagði lítið traust milli aðilanna orsakast af deilu um orkumál, en bæði ESB og Rússar saka hinn um að nota orkumál sem pólitískt vopn. Kína: Stíflur tifandi tímasprengjur Kínverski aðstoðarvatns- málaráðherrann Jiao Yong segir að mörg þúsund illa byggðar stíflur í landinu séu sem tifandi tímasprengjur. Jiao lét ummælin falla í kjölfar þess að tíu metra há stífla í Gansu héraði, í norðurhluta Kína, sprakk með þeim afleiðing- um að stórt landsvæði lagðist undir vatn, brýr skemmdust og 1.700 manns í fjórum þorpum neyddust til að flýja heimili sín. Ríkisstjórnin hefur tilkynnt að til standi að stórauka fjár- magn til lagfæringar á stíflum sem eru í slæmu ásigkomu- lagi á næstu þremur árum. iffbfí'sa M6GA OMGGA-3 1300 mg d. 80 hylki m tS?) híplheilsa ^oas/O^ wfexBH ••haföu þaó gott Kosningabaráttunni í Frakklandi lokið: Frakkar ganga að kjörborðinu Sarkozy mælist efstur í skoðanakönnunum B Margir enn óákveðnir Eftir Atla ísleifsson atlii@bladid.net Kosningabaráttunni fyrir frönsku forsetakosningarnar lauk í gær, en kjörstaðir munu opna í Frakklandi í fyrramálið. Nýjustu skoðanakann- anir sýna enn hægrimanninn Nico- las Sarkozy með góða forystu og Segolene Royal, forsetaefni sósíal- ista, á hæla hans. Athygli vekur að hátt í fjörutíu pró- sent aðspurðra hafa enn ekki gert upp hug sinn um hvern þeir ætli að greiða atkvæði í kjörldefanum á morgun. Yfirvöld hafa sett blátt bann við birtingu skoðanakannana í dag, sem og hvers kyns kosninga- fundi. Tólf manns eru í framboði í fyrri umferðinni, en síðari umferð- inn fer fram að tveimur vikum liðnum, þar sem kosið verður milli þeirra tveggja sem fá flest atkvæði í fyrri umferðinni. Þó að allt bendi til þess að Sarkozy og Royal berjist um hylli kjósenda í síðari umferð- inni, útiloka Frakkarekki að sagan gæti end- u r t e k i ð sig og Y'JHI'í eitthvað óvænt gerst á lokasprettinum. Margir Frakkar minnast þess með hryllingi þegar hægri öfgamaðurinn Jean-Marie Le Pen hafði óvænt betur gegn sósíalistanum Lionel Jospin í fyrri umferðinni árið 2002 og atti kappi við Jacques Chirac Frakklandsfor- seta í þeirri siðari. „Ég beini þeim orðum til kjósenda að flykkjast á kjörstað í fyrri umferð- inni,“ sagði Royal í útvarp- sviðtali í gær, en búist er við að þátttakan verði betri en fyrir fimm árum síðan. Sarkozy, Royal, Le-Pen og miðju- maðurinn Francois Bayrou héldu öll til suðurhluta landsins til að ljúka kosningabaráttu sinni. Sar- kozy fór til Marseille, Le Pen til Nice og Bayrou til bæjarins Pau í heimahéraði sinu í Pýreneafjöllum. Royal hélt til Toulouse þar sem José Luis Rodriguez Zapatero, forsætis- ráðherra Spánar, mætti til að lýsa yfir stuðningi við framboð hennar. Vegna mikils fjölda óákveð inníi lriAe- Sarkozy og Royal beint spjótum sínum að Bayrou og bæði segja hann standa með hinum frambjóð- andanum. „Um árabil áleit ég hann vera hægrimann. Að undan- ? > ., förnu hefur hann hins S vegar breyst og er nú ij ÉHhL frambjóðandi vinstri- I afla. Spurningin er 4 hins vegar hvort hann I J hafi spurt kjósendur ipr hvort þeir væru sam- ý þykkir því,“ sagði Sar- ™ kozy i samtali við franska fjölmiðla. Rúmlega milljón manns eru að kjósa í fyrsta sinn í frönskum forsetakosningum, sem er mesta fjölgunin í aldarfjórðung. Flestir þeirra eru ungt fólk og Frakkar sem búsettir eru erlendis, en erfitt hefur reynst að segja til um hvaða frambjóðendir njóti mests fylgis meðal þessa fólks. Notast verður við rafræna kosningu í nokkrumhér- uðum lands- SKOÐANAKÖNNUN iPSOS (20. APRÍL): Nicolas Sarkozy 30% Segolene Royal 23% Francois Bayrou 18% Jean-Marie Le Pen 13% Aðrir 16% sérstaklega gagnrýnt þá fyrirhögun og sagt hana vera óáreiðanlega. Vegna mikils atvinnuleysis og óeirðanna í úthverfum Parísar- borgar og víðar árið 2005 hefur kosningabaráttan að mestu snúist um atvinnumál, innflytjendamál og vaxandi glæpatiðni landsins. Leiðarahöfundur franska dagblaðs- ins Le Monde hvatti kjósendur til að kjósa þannig að Sarkozy og Royal kæmust í síðari umferð forsetakosn- inganna. „Það er mjög mikilvægt að tveir fulltrúar sem hafa skýra og andstæða sýn á hvernig þjóðfélags- málum skuli háttað verði teflt fram í síðari umferðinni.“ Skoðanakann- anir sýna að kom- ist Sarkozy og Royal í síðari umferðina muni Sar- kozy hafa sigur. Samfylkingin 1IFJÖLSKYLDU-OG HOSDÝRAOARDURINN '»,* 11 'í..ur«* » Víi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.