blaðið - 21.04.2007, Blaðsíða 14
14 LAUGARDAGUR 21. APRÍL 2007
blaðið
Bretland:
Nafnbótarann-
sókn lokið
Lögregla í Bretlandi hefur til-
kynnt að hún hafi lokið rannsókn
á þeim ásökunum um hvort heið-
ursnafnbætur hafi fengist gegn
greiðslu innan breska stjórnkerf-
isins. Rannsóknin hefur staðið
í um eitt ár og hefur skýrsla lög-
reglu verið send til ríkissaksókn-
ara. Að sögn lögreglu hafa 136
manns verið yfirheyrðir vegna
málsins.þar á meðal forsætisráð-
herrann Tony Blair og margir af
nánustu samstarfsmönnum hans.
Lögregla hefur ekkert sagt
til um hvort að mælt sé með
málsókn á hendur nokkrum og
það komi í hlut ríkissaksóknara
að taka ákvörðun um slíkt.
Blóóbaóið í Virginia Tech:
Rannsaka fjöldamorðin
Átta liggja enn á sjúkrahúsi Sýning myndbands moröingjans gagnrýnd
Eftir Atla ísleifsson
atlii@bladid.net
Tim Kaine, ríkisstjóri Virginíu, hefur
skipað óháða rannsóknarnefnd til
að rannsaka fjöldamorðin í Virginia
Tech háskólanum á mánudaginn þar
sem Cho Seung-hui, 23 ára nemi við
skólann, skaut 32 til bana áður en
hann tók eigið lif. Nefndinni er gert
að skoða þá meðferð sem Cho fékk
í aðdraganda skotárásanna, auk at-
burða mánudagsins. Yfirvöld hafa
verið gagnrýnd fýrir að hafa hunsað
merki þess að hætta steðjaði af Cho,
en hann var ekki talinn heill á geði.
Kaine sagði það ekki vera hlut-
verk rannsóknarnefndarinnar að
leitast við hverjum væri um að
kenna, heldur frekar að vinna að
því að harmleikir sem þessir end-
urtaki sig ekki. Átta liggja enn á
sjúkrahúsi vegna árásanna, en eru
ekki talin í lífshættu. Fyrstu fórnar-
lömbin voru voru borin til grafar á
fimmtudaginn.
Rektor skólans hefur tilkynnt að
þeir 27 nemendur sem létust í árás-
unum munu allir hljóta gráður frá
skólanum.
Lögregla og aðstandendur
fórnarlambanna hafa gagnrýnt
ákvörðun bandarísku sjónvarps-
stöðvarinnar NBC að birta
myndir og myndskeið sem Cho
tók af sjálfum sér milli skotárás-
anna tveggja á mánudagsmorgn-
inum og sendi NB.C. Lögregla
segir myndirnar bæta litlu við
rannsóknina, en þær sýna Cho
reiðan þar sem hann beinir
meðal annars byssu að mynda-
vélinni. NBC sendi frá sér yfirlýs-
ingu í gær _þar sem ákvörðunin
er varin.
Fallínna félaga minnst Nem- ;
endurnir sem létust i aiasunum
munu allir hljóta grádur frá f/
skólanum.