blaðið - 21.04.2007, Blaðsíða 16
16 LAUGARDAGUR 21. APRÍL 2007
H
blaðið
Kynferðisbrot:
Sýknaður af
ákæru
Héraðsdómur Norðurlands
eystra sýknaði í gær mann af
ákæru um kynferðisbrot gegn
stúlku í samkvæmi hjá vina-
fólki þeirra síðastliðið haust.
Ákærði, sem fór í samkvæmið
með kærustu sinni, kvaðst
muna óljóst eftir sér í sam-
kvæminu vegna ölvunar en
athæfið hafi þó verið með vilja
stúlkunnar í herbergi þar sem
þau voru saman uppi í rúmi.
I dómsorði segir að frásögn
stúlkunnar hafi á köflum
verið harla óljós. Varhuga-
vert sé að telja sannað að
ákærði hafi framið það brot
sem honum er gefið að sök.
Rætt um að lengja starfsaldur hjúkrunarfræðinga:
Snýst alls ekki um að
taka réttindi af fólki
■ 40 prósent á leið á eftirlaun ■ Vantar 600 hjúkrunarfræðinga ■ Skorturinn eykst
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur
ingibjorg@bladid.net
„Það hefur gætt einhvers misskiln-
ings um að uppi séu hugmyndir um
að taka réttindi af fólki. Þetta snýst
alls ekki um það. Málið snýst um
hvort mögulegt sé að gera starfs-
umhverfið þannig að einhverjir
hjúkrunarfræðingar kjósi að vinna
lengur þótt þeir eigi rétt á að fara
á eftirlaun,“ segir Elsa B. Friðfinns-
dóttir, formaður Félags íslenskra
hjúkrunarfræðinga.
Vegna gríðarlegs skorts á hjúkr-
unarfræðingum hefur verið rætt
um ávinnings þess að þeir sem
eiga rétt á að fara á eftirlaun fresti
því. Um 40 prósent hjúkrunarfræð-
inga eiga rétt á eftirlaunum á allra
næstu árum. „Þetta eru stórir ár-
gangar sem útskrifuðust úr Hjúkr-
unarskóla Islands og eru á svokall-
aðri 95 ára reglu og eiga þess vegna
rétt á eftirlaunum þegar saman-
lagður lífaldur og starfsaldur er 95
ár,“ útskýrir Elsa.
Meðalaldur þeirra hjúkrunar-
fræðinga sem nú fer á eftirlaun er
64 ár. Það er mat Elsu að meðalald-
urinn kunni að lækka ef stóru ár-
gangarnir kjósa að fara á eftirlaun
þegar þeir eiga rétt á. „Það er auð-
vitað breytt viðhorf hjá hjúkrunar-
Lykilatriði að
hækka launin
Elsa B. Friðfinnsdóttir, for-
maður Félags íslenskra
hjúkrunarfræöinga
fræðingum eins og öðrum. Fólk
vill njóta lífsins við annað en vinnu
og svo er það orðið þreytt," bendir
Elsa á.
Samkvæmt nýlegri skýrslu Fé-
lags íslenskra hjúkrunarfræðinga
vantar tæplega 600 hjúkrunarfræð-
inga á landinu öllu til að þess að
leysa úr manneklunni. Á Landspít-
ala vantar á annað hundrað stöðu-
gildi. Alþingi samþykkti nýlega
fjárveitingu sem gerir háskólum
kleift að taka inn 153 nemendur í
hjúkrun frá og með þessu ári en
í ár útskrifast 111 hjúkrunarfræð-
ingar. I skýrslunni segir að ný-
nemar þurfi að vera um 190.
„Þrátt fyrir þessa ágætu viðbót
mun skorturinn á hjúkrunarfræð-
ingum halda áfram að aukast verði
ekkert meira að gert,“ leggur Elsa
áherslu á. „Það gagnast lítið að
útskrifa svo og svo marga hjúkr-
unarfræðinga ef þeir skila sér ekki
til starfa. Lykilatriðið er að hækka
launin. Við verðum ekki bara að
J