blaðið - 21.04.2007, Blaðsíða 17
blaðið
LAUGARDAGUR 21. APRÍL 2007 17
450 börn í áheyrnarprufur:
Framar vonum
fjölga nemendum, heldur einnig
hækka launin verulega. Það er sam-
hengi á milli nemendafjölda og
launa. Krakkar eru meðvitaðir um
hvaða laun eru í boði. Við verðum
að hækka launin til að halda því
fólki sem við höfum og til að vera
samkeppnisfær við aðrar háskóla-
greinar um að fá nýnema í okkar
fag.“
Landlæknisembættið hefur
lýst yfir áhyggjum af öryggi
sjúklinga vegna skorts á
hjúkrunarfræðingum.
Rúmlega 450 börn á aldrinum
7-14 ára skráðu sig í gær í áhevrnar-
prufur fyrir leiksýninguna Ovitar
eftir Guðrúnu Helgadóttur, sem
sýnd verður hjá leikfélagi Akur-
eyrar í haust. Þessi mikli fjöldi kom
forráðamönnum sýningarinnar í
opna skjöldu og var leikhússtjór-
inn, Magnús Geir Þórðarson, hæst-
ánægður með viðtökurnar.
„Það hefur verið gríðarleg leikhús-
vakning og við finnum fyrir miklum
áhuga ungs fólks og því gerðum við
ráð fyrir góðum viðbrögðum. En
þetta er framar björtustu vonum
og mjög gleðilegt að finna fyrir
þessum mikla áhuga sem leikhús-
inu er sýndur,“ segir Magnús.
Prufurnar fara fram á næstu
vikum og segir Magnús að öll
börnin fái tækifæri til að spreyta
sig. „Þótt aðeins 15 komist að kapp-
kostum við að þetta verði ánægjuleg
upplifun fyrir þau öll og þetta verði
skemmtileg lífsreynsla."
Verkið verður frumsýnt 15. sept-
ember næstkomandi. Leikstjóri er
Sigurður Sigurjónsson og Jón Ólafs-
son sér um tónlistina sem verður
frumsamin.
Afganistan:
Talibanar
yfirheyrðir
Tuttugu og fjórir Talibanar
létust í bardögum talibanskra
uppreisnarmanna við erlendar
og afganskar hersveitir í suður-
hluta Afganistans aðfaranótt
fimmtudags. Að sögn talsmanns
Bandaríkjahers særðust tveir
hermenn lítillega í bardögunum
sem stóðu í um sjö klukkustundir.
Rússland:
Kasparov
yfirheyrður
Rússneska leyniþjónustan
boðaði Garrí Kasparov, fyrrver-
andi heimsmeistara í skák, til
yfirheyrslu í gær vegna yfirlýs-
inga sem taldar eru ofstækisfullar.
Kasparov hefur gagnrýnt Pútín
Rússlandsforseta harðlega að
undanförnu og var handtekinn
eftir mótmæli á götum höfuðborg-
arinnar Moskvu um síðustu helgi.
Ný helmingaskipt húsnæðislán með lægri vöxtum
50% erlendar lágvaxtamyntir - 50% íslenskar krónur. Þannig færðu lánið á lægri
vöxtum en býrð við mun minni gengisáhættu en ef lánið væri 100% í erlendri mynt. Fáðu
nánari upplýsingar og ráðgjöf í útibúum Glitnis eða í þjónustuveri í síma 440 4000.
SAMANBURÐUR Á LÁNUM VEXTiR GENGISÁHÆTTA GREIÐSLUBYRÐI EIGNAMYNDUN
100% íslenskar krónur** 4,95% Engin Lág Hæg
NÝTT HELMINGASKIPT LÁN*** 4,50%* Hófleg Lág í meðallagi
100% erlend myntkarfa**** 6,14%* Mikil Há Hröð
M.v. vaxtatöflu og 1 manaða libor vexti 13.04,2007 ’ * Verðtryggí jafngreiðslnlán
** 50% íslenskar krónur / 50% erlent lán í CHF og JPY ** ” EUR, USD, GBP, CHF og JPY
GLITNIR