blaðið - 21.04.2007, Blaðsíða 19
blaðið
LAUGARDAGUR 21. APRÍL 2007 19
Umrœðan
Jafnréttisátak og nútíma-
legir stjórnunarhættir
Konum í hópi stjórnenda Reykja-
víkurborgar fjölgaði mjög mikið á
þessum tíma. Þær voru örfáar þegar
Ingibjörg Sólrún hóf störf sem borg-
arstjóri en voru orðnar helmingur
stjórnenda þegar hún hætti enda
voru konur sérstaklega hvattar til
þess að sækja um stjórnunarstörf hjá
borginni. Öútskýrður launamunur
kynjanna minnkaði um helming frá
1995 til 2001.
Stjórnsýsla borgarinnar var
stokkuð upp og færð til nútímalegra
horfs. Ný vinnubrögð voru innleidd.
Allar stofnanir borgarinnar settu
sér markmið og unnu starfsáætl-
anir sem endurspegluðust í fjárhags-
áætlun. Settar voru nýjar, gegnsæjar
reglur í útboðs- og innkaupamálum í
samvinnu við Samtök iðnaðarins, fag-
mennska jókst á öllum sviðum og pól-
itískar ráðningar heyrðu sögunni til.
Orkuveita Reykjavíkur var stofnuð
með samruna Hitaveitu, Rafmagns-
veitu og Vatnsveitu Reykjavíkur.
Markmiðið var að stofna öflugt,
framsækið þekkingarfyrirtæki, sem
gæti staðið fyrir þróun og nýsköpun
á sviði orkumála og verið bakhjarl í
útrásarverkefnum.
Þjónustuátak fyrir börn og fuilorðna
Byggðar voru 100 nýjar leikskóla-
deildir og biðlistum eftir leikskóla-
plássum var útrýmt.
Byggt var við nær alla grunnskóla
borgarinnar og þeir einsetnir. Undir-
búið var átak í byggingu hjúkrunar-
heimila fyrir aldraða með samkomu-
lagi við heilbrigðisráðherra í maí
2002. Samkomulagið mætti andstöðu
hjá þáverandi fjármálaráðherra, Geir
H. Haarde, og ríkisstjórnin varði
aldrei þeim fjármunum í átakið sem
þurfti. Nú í vor, 5 árum síðar, var loks
tekin fýrsta skóflustungan að því
hjúkrunarheimili.
Menningarátakog mannvirki risu
Menningarlíf borgarinnar blómstr-
aði í borgarstjóratíð Ingibjargar
Sólrúnar. Reykjavík var menningar-
borg Evrópu árið 2000, Listahátíð
Reykjavíkur var efld til muna, nýjar
menningarhátíðir voru skipulagðar,
- Menningarnótt, Vetrarhátíð og Air-
waves. Listasafn Reykjavíkur var
opnað í Hafnarhúsi, nýtt aðalsafn
Borgarbókasafnsins var opnað í
Menningarlíf
borgarínnar
blómstraði í
borgarstjóratíð
Ingibjargar
1 Sólrúnar.
Ásta R. Jóhannesdóttir
Ingibjörg Sólrún lætur verkin tala
í þrennum kosningum treystu
Reykvíkingar Ingibjörgu Sólrúnu
Gísladóttur til að leiða stjórn borgar-
innar. Það er ljóst þegar farið er yfir
verk Reykjavíkurlistans árin 1994
- 2002 í tíð Ingibjargar Sólrúnar sem
borgarstjóra að hún var traustsins
verð. Hún lét verkin tala.
Umhverfisátak
Undir hennar forystu var grett-
istaki lyft í umhverfismálum með
gríðarlegri fjárfestingu í holræsagerð,
en frárennslismálin í borginni voru
komin í algeran ólestur eftir áratuga
stjórnartíð Sjálfstæðismanna. Það
verk var stærsta umhverfisverkefni
sem ráðist hefur verið í hér á landi.
Með dælu- og hreinsistöðvum fyrir
skólp var strandlengjan endurheimt
sem útivistarsvæði borgarbúa. Yl-
ströndin í Nauthólsvík er táknræn
fyrir þá breytingu.
Áburðarverksmiðjan með amm-
oníakstankana í mikilli nálægð við
íbúðahverfi var keypt og henni síðan
lokað. Lagðir voru göngu- og hjóla-
stígar um alla borg, sem stórbættu
aðstæður almennings til útivistar.
Tryggvagötu og nýtt útibú í Kringl-
unni. Tekin var ákvörðun um að
byggja tónlistar- og ráðstefnuhús á
hafnarsvæðinu í samstarfi við ríkið.
Menningartengd ferðaþjónusta varð
að veruleika í Reykjavík, borgin var
markaðssett sérstaklega og komst
á kortið sem vinsæll áningarstaður
fyrir ferðamenn. Ný og glæsileg
íþróttamannvirki risu. Nægir að
nefna skautahús í Laugardal, nýja
stúku við Laugardalsvöllinn, nýja
50 metra sundlaug í Laugardal, nýtt
frjálsíþróttahús við Laugardalshöll,
Egilshöll með yfirbyggðum knatt-
spyrnuvelli og skautasvelli, íþrótta-
hús KR, félagsaðstöðu fyrir Þrótt í
Laugardal, uppbyggingu á Fákssvæð-
inu og samkomulag um uppbygg-
ingu á Valssvæðinu og svona mætti
áfram telja.
Borgarlandið stækkaði verulega í
tíð Ingibjargar Sólrúnar sem borgar-
stjóra með sameiningu Reykjavíkur
og Kjalarness og hagsmunir höfuð-
borgarinnar voru þannig tryggðir til
framtíðar.
Framsókn hrakti hana úr
forystu í borginni
Það er ljóst að margir borgarbúar
vildu hafa Ingibjörgu Sólrúnu lengur
í borgarstjórastólnum en þau 9 ár
sem hún var borgarstjóri. Henni
var ekki gert það kleift. Framsókn-
armenn með Halldór Ásgrímsson
í fararbroddi stilltu henni upp við
vegg þegar hún tók varamannssæti
á lista flokksins síns í Alþingiskosn-
ingunum 2002 og tilkynntu henni
að þeir styddu hana ekki lengur sem
borgarstjóra vegna þess. Þá var henni
ekki lengur sætt. Það er ástæðan fyrir
því að Ingibjörg Sólrún gat ekki setið
út kjörtímabilið eins og hún hafði
sagst mundu gera. Framsóknarflokk-
urinn hrakti hana úr forystusæti
Reykjavíkurlistans, stjórnmálaafls
sem hún hafði leitt svo farsællega í
tæpan áratug.
Höfundur er þingmaður
Samfylkingarinnar í Reykjavík
Konur sem stjórnendur „Þær voru örfáarþegar
Ingibjörg Sólrún hófstörfsem borgarstjóri en voru
orðnar helmingur stjórnenda þegar hún hætti enda
voru konur sérstaklega hvattar til þess að sækja um
stjórnunarstörf hjá borginni. “
SIEMENS
Kryddaöu eldhusið
með heimilistækjum
frá Siemens.
Allt í eldhúsið.
Eldavélar, helluborð,
bakstursofnar, háfar,
uppþvottavélar,
kæliskápar og smátæki.
Espressó-kaffivélar í úrvali.
Ýmsar nýjungar s.s.
spanhelluborð með málmútliti,
lyftuofn og fleira.
Verið ávallt velkomin.
SMITH&
NORLAND
Nóatúni 4 • Sími 520 3000
www.sminor.is