blaðið - 21.04.2007, Blaðsíða 20

blaðið - 21.04.2007, Blaðsíða 20
20 LAUGARDAGUR 21. APRÍL 2007 blaðiö eivo., ótáðtvtt HÆGFU FLOKKARKIR ERU ORWIR SVO VlrtSTRlSMNAfclR OG VINSTRí FLOKKARKHR SVO HÆGRlSINNAÐlR r KasNlHGA&ARÁTTUNNl AO IAADURVE1T EKKEFT f HVAO MAOUR Á AÐ K3ÓSA RANN 12.. ^ ÉG ÆTlA A£ KJÓSA E\RÍK HAUK5SON Dorsi/^UO 07 Sverrir Einarsson Hermann Jónasson Geir Harðarson Bryndís Valbjamardóttir ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt Komum heim til aðstandenda ef óskað er Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar l .v> ■- ■ 'v"'; ■", ■ ' JlMÍíCöl SP/ HLEÐSLUR www.meistari.is FMBBE1® Mlilil í FLESmR GERBIR Vagnhöföa 7 110 Reykjavík Sími: 51 7 5000 IUugi Jökulsson skrifar um harmleiki á heimasióðum Harmleikir Nú er best að fara varlega. Svo ég verði ekki sakaður um Þórðargleði yfir harmleiknum í Tækniháskólanum í Virginíu. Enda er hún ekki til staðar. Sá voðaverknaður sem Cho Seung- hui efndi þar til var vitaskuld hryllilegri en orð fá lýst. Þar var bundinn voveiflegur endi á líf margra ungra efniskrakka, auk þess sem gamli Gyðingurinn Liviu Librescu átti betra skilið eftir að hafa lifað af helförina í seinni heimsstyrjöld en að vera skotinn til bana af viðurstyggi- legum minnipokamanni. En ég verð samt að segja að heldur þykja mér viðbrögðin á Vesturlöndum - og sérstaklega í Bandaríkjunum sjálfum - bera vott um hræsni. Harmleikurinn heima er verstur Meðan allir fjölmiðlar hér vestra hafa verið fullir af fréttum af fjöldamorðinu í Virg- iníu, þar sem 32 voru myrtir, þá hafa mörg hundruð manns verið myrt í írak. Þar hefur einmitt síðustu daga gengið yfir þvílík morðbylgja að hin hrjáða þjóð ír- aka hefur ekki mátt þola annað eins áður - og er þó ýmsu vön. En það er afgreitt í vestrænum fjölmiðlum í fáeinum setningum í hæsta lagi. Að sumu leyti er það skiljan- legt. Það er bara þannig að harm- leikir snerta okkur æ því meira sem þeir gerast nær okkur. Oft getur það virkað eins og helstil mikil hræsni - eins og þegar við erum miður okkar yfir mann- skæðu umferðarslysi hér heima en lyftum ekki einu sinni brún þegar við heyrum eina setn- ingu í útvarpsfréttunum um að 1.000 manns hafi dáið í fellibyl í Bangladesj. Og erum búin að gleyma því slysi um leið. Um svona viðhorf má vissu- lega hafa orðið hræsni eða önnur miður falleg hugtök, en það er og hræsni þó ekki ástæða til að fara langt út á þá braut. Manneskjan er einfaldlega þannig af guði gerð að tilfinningalega skynjar hún ekki atburði sem gerast í órafjar- lægð - nema þeir séu þeim mun stærri og groddalegri. Við getum reynt að auka skilning okkar og ábyrgð á meðbræðrum okkar og systrum í fjarlægum löndum en þessu grundvallarviðhorfi munum við þó seint breyta. Skrifaðar verða bækur umCho Seung-hui Þannig er skiljanlegt að fjöl- miðlar á Vesturlöndum sinni harmleik eins og þeim sem gerð- ist í Virginíu betur en samsvar- andi harmleik í trak - ekki síst af því það er því miður ekki mikil nýlunda þessa dagana að því þótt tugir manna láti lífið í morð- árásum í írak. En við getum nú samt alveg haft augun opin fyrir því hvort hræsnin keyri hér alveg um þverbak. Og um það eru vissulega dæmi. Bandaríkjamenn hafa nú eina ferðina enn lagst í þunga þanka um það hvað fær ungt fólk til að gyrða sig byssubeltum og hefja fjöldamorð á alsaklausum skóía- félögum sínum. Sálfræðingar, geðlæknar, atferlisfræðingar, skólamenn, fjölmiðlamenn og stjórnmálamenn hafa þegar tekið til máls - og náttúrlega trúarspekingarnir líka. Cho Seung-hui verður skoðaður og skilgreindur í þaula á næstunni, skrifaðar um hann bækur, gerðir um hann sjónvarpsþættir, talað um hann lon og don. Sem mun á endanum leiða til þess að sú hugmynd kviknar í huganum á einhverjum öðrum ömurlegum lúser að einmitt þetta sé leiðin til að fá athygli og jafnvel í vissum skilningi virð- ingu. Þótt það verði ekki fyrr en eftir dauðann. Sem mun á endanum leiöa til þess aö sú hug- mynd kviknar í hugan- um á einhvegjum öörum ömuriegum fúser aö einmitt þetta sé ieiöin tii aö íá athygii og jafnvél i vissum skiiningi virðingu. Byssumaðurinn sem hetja og hálfguð Að lokum verður niðurstaða Bandaríkjamanna sú að fylgjast verðibetur með sálarheill þeirra sem eiga undir högg að sækja. Það mun þó kannski ekki duga til lengdar. Menn höfðu fyrir löngu áttað sig á að Cho Seung-hui var hættulegur og skólafélagar hans höfðu meira að segja rætt um að hann væri einmitt líklegur til að fremja nákvæmlega svona fjöldamorð. Sálfræðingarnir munu hins vegar gera sitt besta til að Bandaríkjamenn þurfi ekki að horfast í augu við að samfélag þar sem hvaða minnipokamaður sem er getur fengið sér byssu og samfé- lag þar sem byssumaðurinn er dýrk- aður sem hetja og hálfguð, það mun alltaf ala af sér slfka menn sem Cho Seung-hui. Á sama tíma er því lítið sem ekkert sinnt hvað fær unga karla og konur til að ganga í dauðann í frak, gyrt sprengjubeltum sem þau vita að munu murka lífið úr blásak- lausum körlum, konum og börnum. Nei - það fólk er bara vondir hryðjuverkamenn sem rétt er að ráðast á með hernaði.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.