blaðið - 21.04.2007, Blaðsíða 22

blaðið - 21.04.2007, Blaðsíða 22
 blaðið Hrannar Pétursson, upplýsingafulltrúi Vodafone Hrannar er nýráðinn til Vodafone eftir að hafa gegnt starfi upplýsinga- fulltrúa Alcan í Straumsvík síðastliðinn 8 ár. Frá ráðningunni hafði verið gengið snemma árs en samkvæmt samkomulagi lauk Hrannar ákveðnum verkefnum áður en hann gengi til liðs við Vodafone. 22 LAUGARDAGUR 21. APRIL 2007 folk@bladid.net HVAÐ FIlsjNST ÞER? Fékkstu flottara gsm- númer hjá Vodafone? „Já, og flottari gemsa, úr áli.“ HEYRST HEFUR ÞAÐ má finna ýmislegt nytsamlegt til kaupa á uppboðsvefnum eBay. Þar á meðal er Fálkaorðan, sem bannað er samkvæmt lögum að selja. Orðan kostar þar um hálfa milljón en óvíst er hvort hún sé ósvikin eða ekki. Uppátækið ætti þó ekki að koma á óvart því á hverju ári veitir forseti fslands tugum manna orðuna, í einhverri af sínum fimm útgáfum, fyrir ýmiss konar störf í þágu þjóðarinnar, á einn eða annan hátt. Að einhver af þessum hundr- uðum fólks sé í fjárhags- kröggum, ætti því ekki að koma á óvart... ÍSLENDINGAR skiptast í tvær fylk- ingar þegar kemur að skoðunum á talsetningu og þýðingu væntan- legrar kvikmyndar um Hómer Simpson og fjölskyldu. Hinn bráðsnjalli Davið Þór Jónsson mun snara myndinni yfir á hið ástkæra ylhýra og hefur þegar gefið í skyn á bloggsíðu sinni að heimabær Hómers, Springfield, muni heita Lindarhagi. I athugasemdakerf- inu er þó önnur uppástunga, sem virðist gera fyllilegt tilkall til nafngiftar- innar. Springfield = Hveragerði... SKIPTAR skoðanir eru á því hvort byggja eigi upp brunarústir mið- bæjarins í upprunalegri mynd. Á bloggsíðum keppast menn við að rífast um málefnið sem virðist jafn heitt og bruninn sjálfur. Vilhjálmur borgarstjóri virtist þó taka af allan vafa í beinni útsendingu þegar hann sagði, með slökkviliðshjálm á höfði, að svæðið yrði vissulega byggt upp aftur eins og það var. Segja menn Vil- hjálm hafa verið fullsnöggan til svara, allt að því eld-snögg- ann... Ljósmyndasýningin Sporlaust: BLOGGARINN... Ævintýri í Þjóðminjasafninu Eftir Trausta Salvar Kristjánsson traustis@bladid.net Katrín Elvarsdóttir heldur ljós- myndasýningu í Þjóðminjasafninu á morgun, sunnudag, klukkan 15. Nefnist sýningin Sporlaust og er hugmyndin sprottin af málverki af Hans og Grétu sem Katrín átti í æsku. „Jú, það er rétt. Það kannast ef- laust margir við þessa mynd þar sem Hans og Gréta eru að ganga eftir skógarstígnum. Ævintýrið þekkja allir og Sporlaust er í raun lítil saga, eða ævintýri sem ég segi í myndum. Ég er ekki að endurgera eða endursegja sjálft ævintýrið um Hans og Grétu, heldur þetta magn- aða andrúmsloft ævintýranna og heim barnsins,“ segir Katrín. „Hefði ég ekki orðið Ijós- myndari hefði ég kláriega farið í kvikmyndaskóla. Mínarhelstu fyrirmyndir koma úr kvikmyndaheim- inum, hinir og þessir leikstjórar, „Myndirnar eru teknar í fyrra- sumar þegar stórfjölskyldan hittist í Toscana-héraði, nánar tiltekið í fjöllum norðan við Flórens þar sem krakkar eru að leik í skóginum. Ég reyndi að endurskapa þá tilfinningu sem ég fékk sjálf við að horfa á mál- verkið. Þarna er viss óvissa, engin stemning er augljós. Þarna eru bæði dökkar og drungalegar myndir sem og rómantískar, en ég læt þó alfarið áhorfendum eftir túlkunina." Katrín er fædd á Isafirði en hefur búið víðsvegar um heiminn. „Sem barn og unglingur var ég lengi í Sviþjóð. Eftir að hafa fengið áhuga á Ijósmyndun fór ég í nám í Boston, ætli ég hafi ekki verið um 23 ára þá. Síðan fór ég að kenna ljós- myndun í Danmörku í tvö ár en flutti svo aftur til Bandaríkjanna, til New York. Ég kom svo heim til Islands 2004 og hef verið að kenna ljósmyndun við Listaháskólann.“ Katrín segist lengi hafa haft áhuga á fleiri listum en ljósmyndun. „Ég er mikil kvikmyndaáhuga- kona. Hefði ég ekki orðið ljós- myndari hefði ég klárlega farið í kvikmyndaskóla. Mínar helstu fyr- irmyndir koma helst úr kvikmynda- heiminum, hinir og þessir leik- stjórar. Af ljósmyndurum eru það annars gömlu meistararnir i París í kringum þar-síðustu aldamót sem ég dái mest, sem og Brassai, hann er líka í miklu uppáhaldi." Katrín segist ekki vera mikil græju- kona þegar kemur að fagi sínu. „Nei, ég er voðalega lítil græju- kona. Ég hef ekki tamið mér mikla eftirvinnslu og nota photoshop nán- ast ekki neitt. Ég skipulegg frekar hverja myndatöku vel og nota mögu- leikana sem myndavélin býður upp á. Auðvitað mistekst hellingur en ég tek þá bara fleiri myndir fyrir vikið. Ég notaði til dæmis gamla Holgu-plastmyndavél fyrir Spor- laust verkefnið, en fékk mér þó full- komna stafræna vél nýverið, sem ég er voða hrifin af en er enn þá að læra á! Annars kemur áhuginn ekki frá græjunum, heldur er það hvað þú notar græjurnar til að gera, sem á hug minn allan.“ Katrín er strax byrjuð að huga að næsta verkefni. „Ég verð með sýningu hjá ASl í byrjun júní. Þær myndir verða allar teknar út um glugga á húsum á þekktum stöðum en verða þó ekki í þessum hefðbundna póstkortastíl heldur verða þær í hálfgerðri móðu svo að staðsetningin virðist óljós, nema vel sé rýnt í myndina,“ sagði Katrín að lokum. Katrin Elvarsdóttir Segist ekki vera nein græjukona Af Samfylkingunni „Það er ögn kátbroslegt að fylgjast með hinum ýmsu myndum sem tilvist- ar- og ímyndarkreppa Samfylkingar- innar tekur þessa dagana. Sem mest á nú að gera úr þvíað hún eigi sér nú aldeilis stóra og mikla systurflokka í Skandinavíu, fyrst og fremst. Svo mik- ið er mönnum í mun að slá sér upp á svo ,fornemmum‘ félagsskap að flokk- ar þessir heita nú ekki lengur nöfnum sinum í skrifum s ímyndarsmiða Sam- fylkingarinnar en eru aðeins kallaðir systurflokkurinn hér eða systurflokkurinn þar.“ Sigurjón Pálsson sigpai.biog.is Ómarktækur Ómar „Heldur hef ég ekki í mér að segja mikið um Ómar og hans framboð, það væri eins og að snúa upp á lopp- una á íkorna eða að sparka í hreindýr. Ég ber mikla virðingu fyrir honum sem persónu en sem stjórnmála- manni tek ég ekki mark á honum. Það erþó ekkert ólíklegt að ég kjósi hann ég er bara ekki búinn að gera það upp við mig. [...] Ég er allavega á móti þviað rífa niður Kárahnjúkavirkjun og stoppa stóriðjuna. Við getum ekki lifað á því að rækta radísur og rabba- bara það er morgunljóst, svo held ég að alvarleg- um kynferðisbrotum muni fækka um leið og Húsvíkingar fá eitthvað að gera.“ n Már Gunnarsson marsu.blog.is Brunarústir eftirlíkinga „Mér finnst með ólíkindum hvernig fréttamenn Ijósvakamiðlanna hafa dásamað kofana sem brunnu í mið- bænum á miðvikudaginn. Einkenni- legt að vera einungis með sagnfræö- ing og húsafriðunarmann til þess að svara fyrir það hvað eigi að gera við rústirnar. Er ekki rétt að sýna allar hliðar á málinu og fá málsaðila sem sjá kostinn við að losna við þessi hús af reitnum. [...] Ég heldað það hafi varla verið upprunaleg fjöl í þessum húsum. Ég skil ekki þessa blessuðu fornaldardýrkendur sem geta staðið fyrir framan rústirnar og haldið því fram að þarna hafi verið 300 ára gamait hús. “ Freyr Einarsson blogg.visir.is/freyreinarsson Su doku 8 3 2 1 5 7 8 9 2 6 4 2 5 3 1 9 4 8 7 2 5 6 1 3 9 4 2 8 6 8 4 Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar. HERNIAN eftir Jim Unger & by United Media, 2004 © LaughingStock IntemaUonal IncAflst. Það stendur: „Dagurinn þinn verður fyrir miklum áhrifum frá Neptúnusi."
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.