blaðið - 21.04.2007, Blaðsíða 24
blaðið
menning@bladid.net
Málverkasýning Péturs Péturssonar, Á s j ó n a, stendur nú yfir í
kaffihúsinu Energíu í Smáralind og stendur út aprílmálverk. Pétur
sýnir 10 landslagsmálverk, unnin með akríllitum á striga. Þetta er
ð.einkasýning Péturs og jafnframt sölusýning.
Dansdagur framundan
Alþjóðlegi dansdagurinn verður haldinn hátíðlegur þann 29.apríl
næstkomandi. Dagsetningin er til minningar um fæðingardag Jean-
Georges Noverre, sem fæddist árið 1727 og var mikill dansumbóta-
sinni. Haldið er upp á daginn um heim allan með fjölbreyttum hætti.
Sellósveit í
Salnum
Ohefðbundin myndlist
Sellósveit Sinfóníuhljómsveitar
(slands verður með tónleika í
Salnum, Tónlistarhúsi Kópavogs,
annað kvöld klukkan 20. Á efn-
isskrá eru m.a. verk eftir Heitor
Villa-Lobos og David Popper auk
frumflutnings á glænýju verki
Þórðar Magnússonar, Scherzto
fyrir níu selló. Að auki verður lesið
upp úr heimildaskáldsögunni
Baróninn eftir Þórarinn Eldjárn,
skáldsögunni Glataðir snillingar
eftir færeyska skáldið William
Heinesen og endurminningum
spænska sellóleikarans Pablo
Casals.
Tónar við hafið
Næstu tónleikar Tóna við hafið
í Þorlákshöfn verða á morgun í
Þorlákskirkju. Þá mun kvartettinn
Camerarctica spila verk eftir Oli-
ver Messiaen. Kvartettinn skipa
þau Ármann Helgason, klarinett,
Hildigunnur Halldórsdóttir, fiðlu,
Sigurður Halldórsson, selló og
Örn Magnússon, píanó.
Verkið sem þau flytja eftir Mess-
iaen nefnist Kvartett fyrir endalok
tímans og er eitt af mögnuðustu
kammerverkum tuttugustu aldar-
innar.
Eftir Hildi Eddu Einarsdóttur
hilduredda@bladid.net
Birgir Breiðdal, Biggi, opnar í dag
sýningu á verkum sínum í Gallerí
List við Skipholt 50A. Um er að
ræða nokkuð óvenjulega sýningu,
enda hefur Birgir lengst af starfað
við arkitektúr og bera verk hans
glöggt vitni um það.
„Þannig er að ég hef búið í ná-
grenni Mílanó í samtals um áratug
þar sem ég hef lært arkitektúr og
starfað í þeim geira. Samhliða því
hef ég verið að gera málverk, en í
dag starfa ég i ýmsum arkitekta-
verkefnum auk þess sem ég mála
myndir og er að klára lokaverkefni
við arkitektúr,“ segir Biggi. „Áhrif-
in úr arkitektúr eru reyndar mjög
sterk í málverkunum mínum, enda
eru þau hönnuð með það fyrir aug-
um að þau passi inn á heimilin, til
dæmis beint fyrir ofan sófa eða lóð-
rétt á litla veggi. Það má því segja
að þetta séu hálfgerðar mublur, eða
hönnunarvara fyrir heimilin."
Hann segir öll verk sín vera
hugsuð út frá heimilunum og að
þaðan fái hann innblásturinn. „Um-
gjörðin utan um alla myndlistina
er mér til dæmis afar mikilvæg og
ég legg mikla áherslu á að ramm-
arnir séu sérstakir. Á sýningunni í
Gallerí List er ég til dæmis með stál-
ramma sem koma frá frábærum
járnsmiðum úr listræna geiranum,
en stál, ásamt svörtum og hvítum
er mjög „inn“ í dag. Þannig eru
til dæmis litlu svokölluðu kubba-
verkin á þá leið að þau standa ío
sentímetra út úr veggnum í stáli,
á meðan ílöngu verkin eru bara í 5
sentimetra djúpum stálrömmum.
Þannig eru myndirnar á vissan
hátt þrívíðar og í kubbaverkunum
er sami massinn og í þeim stærri
þó svo að þau séu þrisvar sinnum
styttri. Ég notfæri mér þetta í
rýminu á sýningunni þar sem ég
læt kannski tvö verk standa hlið
við hlið þar sem annað nær tíu
sentimetra út úr veggnum en hitt
bara fimm. Þannig verður þetta
dálítill leikur með skugga og slíkt,
enda er það algert grunnatriði í
arkitektúr að hafa skilning fyrir
rýminu.“
Biggi segist leggja áherslu á að
verk sín geti jafnt notið sín saman
á vegg sem og ein og sér. „Ég passa
upp á það til dæmis varðandi lita-
samsetningu og form. Svo hefur
það líka ótrúlega oft gerst að ég
hef gert málverk með það fyrir
augum að það ætti að vera lárétt á
veggnum, en svo hefur kaupandi
þess hengt það lóðrétt á vegginn
„Umgjörðin um verkin er
mér mjög mikilvæg." Birg-
ir Breiðdal opnar sýningu í
GalleríList í dag.
sinn, og öfugt. Mér er í raun al- frá því að vera hefðbundin mynd-
veg sama hvernig fólk snýr mynd- list,“ segir hann að lokum.
unum hjá sér enda er það bara Sýningin opnar í Gallerí List
smekksatriði. Þetta er því langt klukkan 13 í dag.
ÁTT ÞÚ LEYNDARMÁL?
ÉRT ÞU fáÍféÍNGUR?
ÍSLANDHEFIRBREYST Á INWf&NUM ÁRUM í BNA
AFRÍKUSTU ÞJÖOflÆFC. HEMJR EITURLYFJA
HffLR IMIURNAST 06 UFJNlAMt FJÖUŒLA
BREYST. LlTLAÍSLAND Á BREYTTNGASKEYÐI.
ÍSLEM2MGMR ER N?R BÓKAHOKKLR ÞAR SEM
FJÖUBLAHEMJR, VffiSKFTAHEVUR 0GINHKVWR
ÍSLANDS MfETASTÍ SKBWILBQUM BÓWJM ÞAR SB1
EKKB7T EREGE) UDAN.
ÍSLBCHNGAR FÁST f ÖUiM BÖKABÚOJM
GERS™ ÁSKRIFMni AF í SLEM5INGLM í SÍ W 557 -3100
EÐA SEMXJ PÓST Á BAEKlRsflAEKlR. IS
Fjórir nýir einþáttungar
Leikfélagið Hugleikur hefur ný-
lokið sýningum á leikritinu „Eplum
og eikum“ eftir Þórunni Guðmunds-
dóttur, og nú standa yfir sýningar á
„Bingó“ eftir Hrefnu Friðriksdóttur
í samstarfi við Leikfélag Kópavogs.
Að auki sýnir félagið nú um mundir
fjóra nýja einþáttunga í Þjóðleikhús-
kjallaranum. Þetta er ekki í fyrsta
sinn sem Hugleikur sýnir i kjallar-
anum, enda hefur félagið verið þar
með reglulega dagskrá síðustu tvö
árin undir yfirskriftinni „Þetta mán-
aðarlega“.
Þættirnir sem sýndir verða að
þessu sinni eru „Fyrir“ eftir Hrefnu
Friðriksdóttur í leikstjórn Kristínar
Nönnu Vilhelmsdóttur, „Eigin raun“
eftir Sigurð H. Pálsson í leikstjórn
Þórunnar Guðmundsdóttur, „Þriðju-
dagskvöld" eftir Þórunni Guðmunds-
dóttur í leikstjórn Rúnars Lund og
,Þriðji dagurinn" eftir Sigurð H. Páls-
son í leikstjórn leikhópsins.
Dagskráin verður aðeins sýnd
tvisvar, á morgun, sunnudaginn
22.apríl og fimmtudaginn 26.apríl
og sýningar hefjast klukkan 21.00.
Miðaverð er 1000 krónur.
Kínaferð
Þessa dagana stendur íslenski
dansflokkurinn í ströngu við und-
irbúning sýningarferðar til Kína.
Dansarar og starfsfólk ÍD halda
af stað næstkomandi miðvikudag,
25.apríl og er þetta fyrsta sýningar-
ferð flokksins til austurlanda fjær.
Hópurinn mun meðal annars
vera í opnunaratriði einnar stærstu
nútímadanshátíðar Asíu, Guangd-
ong Modern Dance Festival í Gu-
angzhou, sem þykir mikill heiður.
Mikill áhugi er fyrir sýningum
íslenska Danshópsins í Kína og hef-
ur töluvert verið fjallað um hann í
kínverskum netmiðlum og ýmsum
tímaritum.
íslenski dansflokkurinn sýnir í
þremur kínverskum borgum, Sjang-
hæ, Guangzhou og Beijing. Á efn-
isskrá eru verkin Lúna eftir Láru
Stefánsdóttur, Happy New Year eft-
ir Rui Horta og Open Source eftir
Helenu Jónsdóttur.
í undirbúningi
Mynd/Golli
íslenski dansflokkurinn.
Töluvert hefur verið fjallað
um hann i kínverskum net-
miðlum og ýmsum timaritum.