blaðið - 21.04.2007, Blaðsíða 27

blaðið - 21.04.2007, Blaðsíða 27
Rafport Rafport ehf Óskar eftir aö ráða í eftirfarandi stööu • Sölumaður (rafvirki) Starfið felur í sér sölu og ráðgjöf á raflagnaefni af öllu tagi, og er skilyrði að viðkomandi sé með reynslu af slíku. Rafport ehf var stofnað 1985 og er með aðstöðu á Nýbýlavegi 14 í Kópavogi. Hjá fyrirtækinu starfa nú 16 manns og erum við að leita að fleiru góðu fólki til að stefna að sameiginlegum markmiðum okkar í framtíðinni. Við erum ört vaxandi fyrirtæki og erum með skýr markmið, okkar sérsvið er þekking og sala á raflagnaefni og stýrikerfum sem tengjast Ijósa- og hitastýringum, en þar erum við leiðandi fyrirtæki á íslenskum markaði, eins í rafmagnstöflum og búnaði þeim tengdum. Áhugasamir um fyrrgreind störf hafi samband við Jón Þór á netfang jonthor@rafport.is eða í síma 897-7383. Öllum umsóknum verður svarað. Starf í ferðaafgreiðslu Kynnisferðir ehf. óska eftir að ráða starfsmann til afgreiðslustarfa í Gallerý Kynnisferðum. Staðsetning afgreiðslustaðanna erá Hótel Loftleiðum, Hótel Sögu og á Hótel Nordicu. Unnið er á vöktum, opnunartími er frá kl. 08:00-20:00 alla daga ársins. Óskað er eftir traustri og áreiðanlegri manneskju, helst með reynslu af verslunarstörfum. Nauðsynlegterað umsækjendur hafi góða kunnáttu í íslensku og ensku, helst öðrum tungumálum og fallega framkomu. Umsóknir og ferilskrá má senda á netfangið sigridur@re.is eða í umslagi til starfsmannastjóra Kynnisferða ehf. í Vesturvör 6,200 Kópavogi. Umsóknarfrestur er til þriðjudagsins 2. maí 2007. BÓKASAFNS- FRÆÐINGUR VIÐ BÓKASAFN VESTMANNAEYJA Starf bókasafnsfræðings við Bókasafn Vestmannaeyja er laus til umsóknar. Bókasafn Vestmannaeyja er starfrækt í Safnahúsi Vestmannaeyjabæjar og er starfsemin þar fjöl- breytt. Safnahúsið hýsir meðal annars byggðasafn,listasafn,ljósmynda- safn og héraðsskjalasafn. f húsinu starfa 10 starfsmenn. Bókasafn Vestmannaeyja á í samstarfi við flest stærri almenningsbókasöfn landsins. Af land- fræðilegri stöðu Bókasafns Vestmannaeyja leiðir að það þarf að vera sjálfbjarga um flesta þætti bókasafnsþjónustu. Starfsvið: Bókasafnsvörður sér um daglegan rekstur bókasafnsins, m.a.öll innkaup á bókum, starfs- mannahald og daglegan rekstur safnsins ásamt því að sinna og hafa yfirumsjón með allri þjónustu við viðskiptavini. Hæfniskröfur: Krafist er BA háskólaprófs með bókasafns- og upplýsingafræði sem aðalgrein er jafngildir a.m.k 60 námseiningum. Sjálfstæði í vinnubrögðum, skipulagshæfi- leikar og færni i mannlegum samskiptum. Lögð er áhersla á skapandi hugsun, jákvæðni og drifkraft.Góð tölvukunnátta er æskileg. Næsti yfirmaður er framkvæmdastjóri stjórn- sýslu- og fjármálasviðs Vestmannaeyjabæjar. Kjör verða samkvæmt kjarasamningum launa- nefndar sveitarfélaga og stéttarfélags bóka- safns -og upplýsingafræðinga. Skriflegar umsóknir með upplýsingum um menntun og starfsferil sendist til: Vestmannaeyjabær Ráðhúsinu 902 Vestmannaeyjum merkt Bókasafn Nánari upplýsingar veitir Rut Haraldsdóttir framkvæmdastjóri stjórnsýslu -og fjármálasviðs Vestmannaeyjabæjar í síma 488-2000 eða á net- fangiðrutharalds@vestmannaeyjar.is Umsóknarfrestur er til 1. maí nk. Eykt-Höfðatorg-Borgartúni Vegna aukinna verkefna við uppbyggingu Höfðatorgs viljum við bæta við okkur starfsmönnum í eftirfarandi störf: • Kranamaður • Vélamaður • Trésmiðir • Trésmíðalærlingar • Verkamenn Helstu verkefni framundan: Uppsteypa á 19 hæða turnbyggingu. Uppsteypa á innkeyrslurampa fyrir bílageymslu. Innanhússfrágangur, almenn trésmíðavinna. Framkvæmdir í Höfðatorgi munu standa yfir næstu 5 árin. Leitað er eftir framtíðarstarfsmönnum auk undirverktaka til styttri tíma. Góð laun í boði fyrir rétta aðila. Umsóknum skal skilað á skrifstofu Eyktar að Lynghálsi 4,110 Reykjavík. Einnig er hægt að sækja um á heimasíðu fyrirtækisins, www.eykt.is. Nánari upplýsingar gefa verkstjórar: Baldvin Björnsson 822 4431 og Sigurður Elínbergsson 822 4427. Vinsamlegast athugið að launakjör eru ekki rædd í síma. eru helsta náttúruperla landsins og það erekki að ástæðulausu sem þær hafa verið kallaðar "Kaprí norðursins” Þær eru paradís bamafjöl- skyldna enda uppeldisskilyrði og þjónusta með því sem best gerist. Bið eftir leikskóla- plássi er hverfandi EYKT ÞEKKINGARFYRIRTÆKI í BYGGINGARIÐNAÐI Eyktehf. Lynghálsi 4 110Reykjavík Sími: 595 4400 Fax: 595 4499 Netfang: eykt@eykt.is , www.eykt.is Allar nánari upplýsingar um samfélagið er að fínna á vefsíðunum www.vestmannaeyjar.is og www.heimaslod.is www.vestmannaeyjar.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.