blaðið - 21.04.2007, Blaðsíða 38
38 LAUGARDAGUR 21. APRÍL 2007
blaöiö
Sigurður Þ. Ragnarsson
veourfréttamaour
Eins og endurræst tölva
Sumarið leggst afar vel í mig, enda bendir flest til að framundan sé blíðskapar-
sumar þegar tekið er bæði mið af þjóðtrú og lengstu veðurlagsspám. Þetta helst í
hendur að þessu sinni og því er ég afar brattur.
Fátt er skemmtilegra en að ferðast um eigið land í blíðskaparveðri og það fer
um mann fiðringur þegar maður horfir yfir spárnar en við megum reyndar ekki
gleyma því að það var svipuð staða uppi á síðasta ári og sumir segja að það hafi
aldrei komið sumar á suðvestanverðu landinu í fyrra. Ég minni þá á að þjóðin
hefur fjárfest sem aldrei fyrr í alls kyns ferðabúnaði svo sem hjólhýsum og felli-
hýsum og þá er bara að hreyfa sig til og elta sólina.
Ég hef miklar væntingar varðandi ferðalög innanlands og það má ekki líða sumar
án þess að maður kíki norður á Akureyri. Það er algert lykilatriði og jafnnauðsyn-
legt og að draga andann. Akureyringar hafa yfir að ráða einu fallegasta bæjarstæði
landsins og þar nærir maður sálina. Síðan er mjög mikilvægt fyrir hvern mann
þegar harði diskurinn er orðinn fullur að leggjast út í náttúruna og horfa upp til
himins og sjá kynjamyndir í skýjunum. Þá er maður eins og endurræst tölva.
Nú er sumarið loksins
komið, að minnsta kosti
samkvæmt almanakinu.
Veðrið þessa dagana
er kannski ekki upp á
marga fiska hér á Fróni,
en það er greinilegt að
sumarið leggst einstak-
lega vel í landsmenn að
þessu sinni. Að minnsta
kosti bar ekki á öðru
þegar Blaðið leitaði
svara hjá fimrn ólíkuni
íslendingum.
Blaöið/fhkki
ATH. ÞETTA EINSTAKA TILBOÐ GILDIR AÐEINS UM HELGINA.
20% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM AUKAHLUTUM.
OPNUNARTIMI
FIMMTUDAG, 12-16
FÖSTUDAG, 10-18
LAUGARDAG 10-18
SUNNUDAG 10-18
EF ÞU FESTIR KAUP A EINU AF VOLDUM LMC HJOLHYSUM
ÞESSA HELGI SPARAR ÞÚ 400.000 KR.
VEGNA OPNUNNAR VÍKURVERKS AÐ VÍKURHVARFI 6,
GEFUR LMC í ÞÝSKALANDI ÖLLUM KAUPENDUM 200.000,-
AFSLÁTT AF VÖLDUM LMC HJÓLHÝSUM.
EINNIG GEFUR VÍKURVERK KAUPENDUM AUKAHLUTAPAK,
AÐ VERÐMÆTI 200.000,- KR.
EINSTAKT TILBOÐ!