blaðið - 21.04.2007, Blaðsíða 39

blaðið - 21.04.2007, Blaðsíða 39
blaðið LAUGARDAGUR 21. APRÍL 2007 39 íedikta Jónsdóttir starfsmaöur ráðgjafi í Maöur lifandi Heilsan 1 fyrirrúmi Ég hef góða tilfinningu fyrir sumrinu og ég ætla að sjá til þess að ég fái eins mikla sól í kroppinn og ég mögulega get, enda er það mjög mikilvægt. Ég vona að sumarið verði sólríkt þó svo að það geti auðvitað verið dálítið happadrætti hér á landi. En það þarf svo sem ekki endi- lega að vera sól, við fáum líka D-vítamín þótt það sé skýjað. Það er um að gera að vera eins mikið úti- við á sumrin og maður mögulega getur og fara út að hjóla, ganga og klífa fjöll. Sjálf geri ég þetta allt og á sumrin fer ég helst ekki í búðir eða neitt annað nema það sé rigning. Á góðviðrisdögum sæki ég frekar hjólið mitt eða skelli mér út í sveit. Ég held að fólk sé almennt alveg jafn dug- legt að hugsa um heilsuna eins og á öðrum tímum árs, nema reyndar þegar það er á ferðalagi. Margir kvarta undan því að það sé erfitt að nálgast lífrænan og hollan mat á ferðalögum, en gott ráð við því er að birgja sig upp af slíkum mat áður en haldið er af stað. Ég hvet fólk líka til þess að noa tækifærið í sumar og rækta eigið grænmeti og kryddjurtir úti í garði eða á svölunum. Heimasætan sótt til Brasilíu Þegar sumar og vetur frýs saman getur framtíðin varla verið annað en björt. Þetta verður ábyggilega yndislegt sumar og enn þá bjartara ef Islandshreyfingin nær mönnum áþing. I sumar ætla ég að róa á mínum sjókajak um Breiðafjörðinn og fleiri staði og svo stefni ég að sjálfsögðu á einhverja góða göngutúra með bakpoka, barn og hund. Mér finnst Is- land fallegasta land í heimi og maður getur endalaust gert eitthvað nýtt hér. Aldrei þessu vant ætla ég þó að eyða hluta af sumrinu er- lendis. Við mæðginin erum að fara að sækja elstu dótturina til Brasilíu þar sem hún hefur verið skiptinemi og ætlum að eyða þar fimm vikum. Þetta er stórkostlegt land og mig hefur alla ævi dreymt um að ferðast um Suður-Ameríku. Ég byrjaði að læra spænsku þegar ég var 16 ára vegna þess að ég ætlaði að ferðast til Suður-Ameríku og svo hef ég aldrei farið þangað. í landinu sem ég er að fara til er meira að segja töluð portúgalska. Það er ótrúlega margt þar að skoða og fyrir mig sem jarðfræðing er jarðfræði Suður-Am- eríku mjög áhugaverð. Sú náttúrufræði sem maður hefur lært gefur manni nýja vídd og náttúran fær alveg nýtt gildi. í Kína og á íslandi Að þessu sinni ætla ég að byrja sumarið svolítið snemma og verð í Kína með íslenska dansflokknum í apríl og maí þar sem við munum sýna í Shanghai, Guangzhou og Pek- ing. I Peking verðum við svo í fríi í fimm daga að sýningarferð lokinni. Það verður væntanlega afskaplega spenn- " andi, bæði að sýna og sjá dans frá Asíu sem og að fá að kynnast nýrri, framandi menn- ingu og staðháttum. Ég hlakka mikið til að sjá vegginn mikla og keisarahöllina gömlu, skoða búðir og bragða á framandi mat. Gu- angzhou borg er sérstaklega þekkt fyrir að þar leggi fólk sér nær allt til munns, en þaðan spretta sögurnar um að í Kína snæði fólk hunda. Hið eiginlega, íslenska sumar verður eflaust sólríkt og hlýtt að vanda. Það þýðir náttúrulega lítið annað en að vera bjartsýn - enda stefni ég á að keyra og þramma um landið þvert og endilangt núna í ár. Síðasta sumar ferðaðist ég eilítið um Vest- firði en í ár ætla ég að einbeita mér að Aust- urlandi og Norðurlandi og hlakka mikið til. Enda verður vafalaust blíðskaparveður og ekki rigningardropaað sjá ... Hiti í veðri og pólitík Sumarið leggst bara vel í mig. i2.maí verður góður dagur og til marks um að sumarið byrjar með breytingum, enda er ég sannfærður um að þá kemst Samfylkingin í ríkisstjórn. Breyt- ingarnar sem því fylgja eiga án efa eftir að finnast fljótlega, svo ég tali nú ekki um ásýnd nýrrar ríkisstjórnar með konu sem forsætis- ráðherra. Ég er allavega fullur bjartsýni á að þetta eigi eftir að ganga eftir. Sjálfur er ég lítið búinn að skipuleggja sum- arið. Vonandi fer ég í ferðalag með vinum mínum en við erum ekki búnir að ákveða hvert. í hittiðfyrra ferðuðumst við um Eystra- saltslöndin og í fyrra fórum við til landa fyrrum Júgóslavíu. Ég gæti trúað að við færum að þessu sinni til Bandaríkjanna og keyrðum um Kaliforníu og Nevada, skoðuðum Mikla- gljúfur og fleira. Svo erum við líka að skoða Marokkó, Tyrkland og fleiri lönd þannig að þetta er allt óljóst enn þá. Hvað veðrið hérna heima varðar spái ég hita í sumar. Reyndar held ég að það verði hiti í öllum skilningi þess orðs hérna í sumar, bæði í veðri og í pólitík, samanber lagið Hiti með hljómsveitinni Sprengjuhöllinni, en það er lag ungs samfylkingarfólks. Magnús Már Guðmundsson formaður Ungrajafnaðarmanna Bryndís Nielsen kynningarfulltrúi íslenska dansflokksins ^ ***** OMIN Á OPNUNARSYNINGU í STÆRSTA zGASTA SÝNINGARSAL Á LANDINU FYRi IA OG VÖRUR SEM TILHEYRA ÞEIM, VARFI 6, KÓPAVOGI. IR VÖRUR VERÐA Á OPNUNARTILBOÐI r,. x-'i' .
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.