blaðið - 21.04.2007, Blaðsíða 44
44 LAUGARDAGUR 21. APRÍL 2007
blaðið
helgin
helgin@bladid.net
Jóel á djasshátíð
Kvintett Jóels Pálssonar kemur fram á tónleikum
'í Tónlistarskóla Garðabæjar í dag kl. 14 á vegum
Jazzhátíðar Garðabæjar. Leikin verður tónlist af verð-
launadisknum Varpi sem kom út fyrir síðustu jól.
Karókí fyrir krakka
Efnt verður til karókí-keppni fyrir krakka á aldrinum 7-14
ára í Smáralind í dag. Dómarar keppninnar eru X-Fac-
tor-stjörnurnar Jógvan og Harasystur. Skráning verður í
keppnina frá kl. 13 og hefst keppnin sjálf kl. 14.
íþróttahaldarinn sívinsæli fæst í
BCD skálum á kr. 2.350,-
Saumlaus en með smá blúndu á
kr. 2.350,- buxur í stll kr. 1.250,-
Mjög flottur og fer vel I BC
skálum á kr. 2.350,- buxur I stíl
kr. 1.250,-
5103737
blaAiA^
SMÁAUGLÝSINGAR SSSSSSS^
Köfunardagur Sportkafarafélags íslands i Sundhöllinni
Undirdjúpin heilla
Eftir Einar Örn Jónsson
einar.jonsson@bladid.net
Þeir sem hafa áhuga á að kynna sér
heillandi heim sportköfunar geta
skellt sér i Sundhöll Reykjavíkur í
dag milli kl. ío og 17 þar sem Sport-
kafarafélag íslands stendur fyrir sín-
um árlega köfunardegi. Vanir kenn-
arar og leiðbeinendur munu sýna
fólki réttu handtökin og aðstoða
það. Köfunardagurinn hefur verið
haldinn í mörg ár og segir Anton
Smári Sigurjónsson formaður Sport-
kafarafélagsins að tilgangur hans
sé að gefa fólki tækifæri til að prófa
sportköfun jafnframt því sem hann
er ein helsta fjáröflunarleið félags-
ins ásamt Hátíð hafsins.
Margir utan félaga
Köfunardagurinn nýtur sívax-
andi vinsælda og sem dæmi má
nefna að í fyrra voru þátttakendur
um 300. Anton Smári segir að alltaf
skili sér einhverjir í Sportkafarafé-
lagið eftir daginn og sjálfur sé hann
dæmi um það.
„Það er samt ótrúlegt hvað það
eru margir sem fara út í það að læra
köfun og eru ekki í neinu félagi. Það
kemur mér svolítið spánskt fyrir
sjónir vegna þess að köfunarklúbb-
ur veitir aðhald varðandi öryggi og
reglur. Við höldum alls konar uppá-
komur og námskeið reglulega, til
dæmis um skysavarnir sem er mjög
nauðsynlegt að fara yfir á tveggja til
þriggja ára fresti fólki til upprifjun-
ar,“ segir hann.
„Eftir að fólk gengur í svona félags-
skap getur það líka alltaf fengið ein-
hvern til að kafa með sér. Svo höfum
við líka yfir loftpressu að ráða þann-
ig að félagsmenn fá fríar fyllingar
eins og þeir vilja,“ segir Anton og
bætir við að það muni heldur betur
um það.
Mikið af börnum og unglingum
Einu skilyrðin sem gerð eru til þátt-
takenda eru þau að fólk sem er yngra
en 18 ára verður að koma með skrif-
„Köfunardagurínn nýtur
sívaxandi vinsælda og
sem dæmi má nefna að
í fyrra voru þátttakendur
um 300.“
legt leyfi forráðamanna. Að sögn
Antons Smára er alltaf mikið af ung-
mennum og jafnvel börnum sem láta
sjá sig á Köfunardeginum og tekur
sem dæmi að í fyrra hafi allt niður í
fimm ára börn tekið þátt. Börn á aldr-
inum fimm til átta ára geta fengið
nasaþefinn af köfun með sérstökum
útbúnaði sem gerir þeim kleift að
setja höfuðið undiryfirborð vatnsins
og anda að sér í kafi. „Eldri börn hafa
alveg treyst sér til að kafa með okkur
og þá förum við bara í barnalaugina
með þessi yngstu þannig að þetta er
meira busl en eiginleg köfun,“ segir
Anton Smári.
J AUÐVELD ÍÞRIF-UM
. HLJÖÐEINANGRANDj
i j: :r ; O.FNÆMISPRQFUÐ
TEPPI A STIGAGANGINN
Dagskrá Fjalakattarins
Fjalakötturinn heldur áfram að
sýna myndir franska kvikmynda-
gerðarmannsins Raymond Depard-
ons ITjarnarbíói um helgina. Einnig
verður sýnt brot úr heimildamynd
um Ketil Larsen sem er I vinnslu.
Sunnudagur 22. apríl
Kl. 17: Byltingargjörnu árin
Kl. 19: Ketill Larsen og 10. salur,
myndbrot úr réttarhöldum
Kl. 21:15: Reykjavik Documentary
Workshop: Pryrechnyy
Mánudagur 23. apríl
Kl. 19: Grófbrot
Kl. 21:1974, sneiðmynd úr sveit-
inni
UMHELGINA
Sellótónleikar í Salnum
Sellósveit Sinfóníuhljómsveitar
íslands heldurtónleika í Salnum í
Kópavogi á morgun, sunnudag, kl.
20. Auk Sellósveitarinnar kemur
fram Ingibjörg Guðjónsdóttir sópr-
ansöngkona og Valur Freyr Einars-
son leikari sem les úr verkum eftir
William Heinesen, Þórarin Eldjárn
og Pablo Casals.
Vortónleikar Svansins
Lúðrasveitin Svanur heldur vortón-
leika sína í Neskirkju í dag kl. 16.
Einleikari á tónleikunum er Einar
Jóhannesson klarinettuleikari en
stjórnandi er Rúnar Óskarsson.
Tónleikaferð um landið
Pétur Ben, Lay Low og Ólöf Arn-
alds verða með tónleika
á veitingahúsinu Brekku
í Hrísey í kvöld kl. 21
og á Draugasetrinu á
Stokkseyri á morgun á
sama tíma. Á tónleik-
unum í Draugasetrinu kemur einnig
Jóhanna Wiklund fram.
GusGus á Nasa
GusGus heldur tónleika á
skemmtistaðnum Nasa við Aust-
urvöll í kvöld. Einnig koma fram
diskótekararnir Jack Schidt og
Thor. Húsið verður opnað kl. 23
og fer GusGus á svið kl. 01.
Píanódjass
Tríó píanóleikarans Agnars Más
Magnússonar heldur tónleika í
Tónlistarskóla Garða-
bæjartdag kl. 15:30.
Dagskrá tónleikana er
tileinkuð merkisberum
djassins í Garðabæ,
píanóleikurunum
Árna Elfari og Ólafi Stephensen.
Tónleikarnir eru liður I Jazzhátíð
Garðabæjar.
Leiðsögn Katrínar
Elvarsdóttur
Katrín Elvarsdóttir Ijósmyndari
verður með leiðsögn um sýningu
sína Sporlaust í Þjóðminjasafni ís-
lands á morgun, sunnudag, kl. 15.
Listmannaspjall Daða
Daði Guðbjörnsson myndlistar-
maður verður með listamanna-
spjall í Galleríi Fold við Rauðarár-
stíg í dag kl. 15. Daði mun ganga
um sýningu sína, Myndir landsins,
og ræða um myndefnið, aðferðir
og hughrif sln af ferðalögum um
ísland.