blaðið - 21.04.2007, Blaðsíða 46
46 LAUGARDAGUR 21. APRÍL 2007
blaðið
www.europcar.is
Uppiifðu
Bílaleigubílar
um allan heim
Pantaðu bílinn hjá Europcar
áður en þú leggur af stað
Við erum í 170 löndum.
Upplýsingar og bókanir í síma:
565 3800
europcar@europcar.is
Gummersbach - Lemgo
14.50 SkjárSport________
Knattspyrna
Aston Villa - Portsmouth
15.20 Sýn_______________
Handboltí
Flensburg - Kiel
16.05 RÚV_______________
Handbolti
Haukar - Valur
16.50 Sýn
LMÉðflMHHi
Aldrei í betra íormi Þroskaðri en áður A nóg inni
Knattspyrna
Sevilla - Athletic Bilbao
18.00 NASN____________
Ishokkf
New Jersey - Tampa Bay
18.25 SkjárSport______
Knattspyrna
Paiermo - Parma
18.50 Sýn________________
Knattspyrna
Villarreal - Barcelona
21.00 NASN_______________
Hafnaboltl
Seattle - LA Angels
Eftir Albert Örn Eyþórsson
albert@bladid.net
Þeir eru fáir íslenskir íþróttamenn
sem náð hafa viðlíka árangri á
alþjóðavísu í íþrótt sinni og Örn
Arnarson sundmaður. Á tánings-
aldri var hann farinn að setja
íslandsmet í sundi og innan við
tvítugt kominn á verðlaunapalla
á Evrópumótum og nálægt því að
næla í verðlaunapening á Olympíu-
leikum. Hann á fimmtán af átján
íslandsmetum í 25 metra laug og
ellefu gildandi Islandsmet í 50
metra laug.
Þó minna hafi farið fyrir Erni
síðustu ár segist hann vera í besta
formi lífs síns og veit nákvæm-
lega hvað hann vill hvort sem það
varðar næstu Ólympíuleika í Kína
að ári eða hvað .
Missaltur sjór
Örn Arnarson er enn þá aðeins
25 ára gamall og á fimm ár hið
minnsta eftir af ferli í fremstu
röð kæri hann sig um. Það veltur
þó á áhuganum en Örn segir enga
spurningu í sínum huga hvað
verði finnist honum ekki lengur
gaman að synda. „Þá hætti ég sam-
dægurs! Það getur gerst á morgun
eða eftir fimm ár en ef ég hef ekki
gaman af þá set ég punktinn yfir
ferilinn. Ég er ekki að synda fyrir
aðra en sjálfan mig.“
Gamli maðurinn og laugin
Þó ungur sé að árum er Örn
engu að síður aldursforseti ís-
lenska landsliðsins í sundi sem
samanstendur af honum, Jakob
Jóhanni Sveinssyni og Ragnheiði
Ragnarsdóttur. 011 hafa þau tryggt
sér farseðil til Kína á næsta ári en
þar hefur Örn sett stefnuna á að
komast í 16 manna úrslit í sínum
keppnisgreinum. „Munurinn á
þessum leikum og hinum fyrri
er nokkur. Á leikunum í Aþenu
var ég með öllu úr formi vegna
meiðsla og hafði aðeins synt að
ráði í einn mánuð þegar kom að
þeim leikum. Nú hef ég langtíma-
markmið og góðan tíma fram-
undan. Þess utan er ég með topp-
þjálfara mér til halds og trausts,
hef góða reynslu af stórmótum og
læt skeika að sköpum í Kína.“
Pressa og þunglyndi
Stjarnfræðilegur uppgangur
Arnars í sundíþróttinni tók sinn
toll. Hann fékk á tímapunkti nóg
og fann fyrir vaxandi þunglyndi
sem hann náði þó að vinna bug á
með aðstoð. „Ég keyrði mig mjög
hart í nokkur ár og sá ekkert
annað en sund. Ákafinn var of
mikill enda var ég mjög ungur að
árum og svo kom að ég fékk nóg.
Fannst allir búast við of miklu af
mér og fann að ég var hættur að
njóta sundsins. Ég sneri við blað-
inu og hætti hjá Sundfélagi Hafn-
arfjarðar og fór að æfa í Keflavík.
Þar fann ég áhugann aftur enda
farinn á ný að synda fyrir sjálfan
mig en ekki aðra. Leiðin hefur
síðan legið upp á við á ný.“
Umber umtalið
Örn hvarf ekki fyrr af sjónar-
sviðinu fyrr en fregnir bárust af
því að hann hefði gengið Sódómu
á hönd í orðsins fyllstu. Hann
drykki og reykti og nyti lífsins í
hverri veislunni af fætur annarri.
Eiturlyfjanotkun var nefnd. Örn
brosir þegar talið berst að þessu.
„Það var mikið umtal á sínum tíma
en allt var fjarri lagi og ég tók það
ekki sérstaklega inn á mig. Sann-
leikurinn var allt annar. Ég var
vissulega dálítið upp og niður á
þessum tíma andlega en restin
voru sögusagnir. Kannski hefði
ég móðgast ef fjölskylda eða vinir
hefðu trúað þessu stóðlífi á mig
en svo var ekki og ég hristi þetta
af mér.“
Veit hvað hann vill
Sökum anna við sundiðkun
kláraði Örn aldrei stúdentsprófið
og heldur ekki nuddskóla sem
hann sótti um tíma. Köllun hans
í dag er sundþjálfun en hann er
lærður sem slíkur og er að bæta
við fagþekkingu sína þar. „Ég hef
verið að þjálfa börn og unglinga
nú um tveggja ára skeið og fæ
heilmikið út úr því. Þau gefa mér
einnig mikið sem sundmanni og
það kemur mér oft á óvart hvað
ég fæ nýja sýn á mínar æfingar
gegnum það að þjálfa þau. Ég hef
engan áhuga að klára stúdents-
prófið enda græði ég ekkert á því
þar sem hugur minn stendur til að
halda áfram að þjálfa. Svo mun ég
einn daginn klára nuddskólann
og þetta tvennt get ég sameinað
með góðu móti í framtíðinni.“
MINUTA reyndist vera markamínútan
í Landsbankadeild karla á síðasta ári.
Þrettán mörk alls voru skoruð á þess-
ari mínútu. 69. mínúta var næstvinsæl
ust en þá voru skoruð sex mörk.
ithrottir@bladid.net
Beinar útsendingar
Laugardagur
11.15 SkjárSport
Knattspyrna
Tottenham - Arsenal
13.50 SklárSport
a
Knattspyrna
Líverpool - Wigan
16.05 RÚV
Handbolti
Fram - HK
16.10 SkjárSport
knattspyrna
Man.Utd. - Middiesbrough
17.50 Sýn
Knattspyrna
Real Socledad - Atletico Madrid
19.50 Sýn
MILLJARÐA króna kostaði að halda úti
keppnisliði Ferrari í Formúlu 1 árið 2003.
Mikil leynd hvílir yfir tölum sem þessum
en fagmenn gera ráð fyrir að kostnaður-
inn í dag sé vart undir 34 milljörðum.
sundmaður hefur ýmsu fórnað til að ná þangað sem hann er:
yndi fyrir
sjálfan mig
Knattspyma
Real Madrtd - Valencia
J3
ÞU LEIGIR MEIRA EN BARA BIL.
Mynd/Brynjar Gauti