blaðið - 21.04.2007, Blaðsíða 48
Á morðvettvangi Flestir
raðmordingjar eru í Ban-
daríkjunum og búa þeir helst
i Flórída.
Helgin:
Veisla fyrir
augu og eyru
Hljómsveitirnar Plúseinn,
Reykjavík! og Skátar halda veislu í
Stúdentakjallaranum í kvöld, laug-
ardag klukkan 22:00. Ásamt því
að gleðja gesti með fögrum tónum
verður sýnd hin goðsagnakennda
kvikmynd SNUFF! frá árinu 1976
en henni var leikstýrt af hjónun-
um Michael og Roberta Findlay.
„Það eru eiginlega bara Skátar
sem eru með þessa tónleika, þetta
er svona eiginlega þeirra gigg þar
sem þeir voru að gefa út plötu,“
segir Haukur Magnússon gítar-
leikari Reykjavíkur!. „Þeim vant-
aði upphitunarband en við erum
ekkert mikið að spila núna af
því að bassaleikarinn okkar
býr í Brussel, en við erum
að þjálfa afleysingabassa-
leikara. Við tök- u m
nokkur lög, en
stjörnur kvölds-
ins eru Skátar
og svo er Árni
Plús einn að
spila líka.“
Af Reykja-
víkurmönn-
um er
annars heil-
mikið að
frétta. „Við erum búnir að vera
að spila í Ameríku og þar áður í
Noregi, Hollandi og Cannes, þann-
ig þetta eru búin að vera rosalega
mikil ferðalög. Ætli við séum ekki
búnir að eyða hátt í tveimur sólar-
hringum allt í allt á flugvöllum síð-
ustu þrjá mánuði. Við spiluðum
góða tónleika í Austin fyrir pökk-
uðum sal af Bandaríkjamönnum
og vinum þeirra. Það kom líka á
óvart hversu Austin er mikill gleði-
bær og svo spiluðum í New York,
þar tókum við tvenna tónleika og
fengum góða dóma.
Annars erum við á leiðinni til
Danmerkur í byrjun júní og
erum að semja lög á næstu
plötu sem kemur vonandi
út í vetur. Við fórum líka
í hljóðver rétt áður en
við fórum til Ameríku
og gáfum út plötu næst-
um samdægurs sem heitir
Dirty Weekend en hún var
einmitt hljóðblönduð
af Árna plús ein-
um sem verður
að spila líka í
kvöld."
HaukurMagnússon
Gítarleikari Reykjavíkurl spilar
j i Stúdentakjallaranum í kvöld.
48
LAUGARDAGUR 21. APRÍL 2007
blaöiA
I Amsterdam um helgina
„Ég er í Amsterdam að leika Woyzeck með Vesturporti," segir Nína Dögg Filippusdóttir leikkona. „Viö
komum hingað á laugardaginn síðasta og verðum í 10 daga en þetta eru fjórar sýningar sem við er-
um með þannig að helgin mín fer að hluta til í undirbúning og leik. Við erum búin að vera með tvær
sýningar og höfum fengið frábærar viðtökur. Þannig að í dag verð ég bara að undirbúa mig.“ I
PSYCHO CENTRAL
AMERÍKU
Fermingargjafir
fyrir poppara, rappara og rokkara
Tama Suuingstar
trommusett med
statífum og diskum.
Fermíngartilboð 79.900 kr.
5 l y^’9 ' ' I
7 síiaim f
* !fí ' j
......I
HLJOÐFÆRAHUSIÐ
Hljódfærahúsid Laugavegi 176 105 Reykjav'k uuuKu.hljodfaerahusid.is info@hljodfaerahusid.is Simi 591 5340
Hvergi í heiminum er að
finna jafn marga rað-
morðingja og í Banda-
ríkjunum en um 85 pró-
sent þessarra manna
koma þaðan og 10 prósent þeirra
koma frá Suður-Kaliforníu eða
hafa framið glæpi sína þar. Vegna
þessa hefur svæðið verið kallað
Psycho Central en staðreyndin er
sú að á árunum 1950 til 2000 hafa
hvergi í heiminum jafn margir rað-
morðingjar eða fjöldamorðingjar
látið til skarar skríða.
Líklega er einnig hægt að segja
Strangler, The Freeway Killer, The
Koreatown Slasher, The Candlel-
ight Killer, The Southside Slayer,
The Trash Bag Killer, The Sunset
Slayer og The Orange Coast Killer.
Vanmáttug fórnarlömb
Ekki hafa neinar rannsóknir get-
að varpað ljósi á af hverju svo stór
hluti raðmorðingja lætur til sín
taka í Suður-Kaliforníu. Líklegt
þykir að mannfjöldinn skýri að ein-
hverju leyti þá staðreynd en í byrj-
un þessarar aldar var íbúafjöldi í
Los Angeles 3,6 milljónir og í San
„Fómarlömbin em oftast þeir sem minna mega sín
og enginn saknar efhverfur. Talið er að raðmorð-
ingjar séu mun fleiri en vitað er um og beri ábyrgð
á stómm hluta óupplýstra mannshvarfa.11
að hvergi fá þessir ein
staklingar jafn mikla
athygli og í Banda-
ríkjunum þar sem
sumir hverjir
hafa öðlast tölu-
verða frægð, enda
fjölmiðlarytra dug-
legir við að koma
þessum mönnum
í sviðsljósið og
gefa þeim nöfn
sem vekja bæði
óhug og aðdáun al
mennings á borð
við; The Night Stal-
ker, The I-5 Killer,
The Skid Row
Slasher, The
Hillside
um 1,2 millj-
. Frá Santa
Barbara til Baja
búa samtals um
20 milljónir ef
með er talið
fjöldi heimilis-
lausra.ólöglegra
innflytjenda,
flóttamanna
og annarra
sem minna
mega sín. Þrátt
fyrir íbúafjölda
Suður-Kali-
forníu er ekki
mjög þéttbýlt
á mörgum
stöðum
0 g
auðvelt að komast leiða sinna á
bílum. Það gerir einnig mönnum
auðveldara fyrir að fremja glæpi og
láta sig svo hverfa.
Fórnarlömbin eru oftast þeir sem
minna mega sín og enginn saknar
ef hverfur. Talið er að raðmorðingj-
ar séu mun fleiri en vitað er um og
beri ábyrgð á stórum hluta óupp-
lýstra mannshvarfa enda fórnar-
lömbin oft þeir sem enga eiga að og
fáir sakna ef hverfa.
Hylja slóð sína
Samkvæmt rannsókn Atferlis-
deildar FBI hefur fjöldi raðmorð-
ingja aukist svo hratt í Bandaríkj-
unum á undanförnum áratugum
að nánast er hægt að tala um farald-
ur. Á hverjum tíma er talið að um
20 til 50 virkir raðmorðingjar séu á
ferli. Lögreglunni getur hins vegar
reynst erfitt að sýna fram á að um
raðmorðingja sé að ræða í mörgum
tilvikum þar sem flestir gera allt
hvað þeir geta til að hylja slóð sína
með því að breyta um aðferðir, þess
vegna er erfitt að staðfesta að sami
maður sé að verki aftur og aftur.
í Bandaríkjunum eru raðmorð-
ingjar oftast hvítir karlmenn en
frá 1800 hafa aðeins 16 prósent rað-
morðingja verið kvenkyns. Hlutfall
svartra raðmorðingja hefur aukist
á síðustu 30 árum en í kringum
1975 voru þeir aðeins 10 prósent
þessa hóps en hlutfallið er nú kom-
ið í rúm 20 prósent.
Flestir velja þeir sér fórnarlömb
af sama kynþætti og í 70 prósent
tilvika eru fórnarlamb og gerandi
ókunnug. Margir þeirra hafa kynnt
sér störf lögreglunnar mjög vel til
þess að vera skrefinu á undan og
hefur verið staðfest í fjölda mála
síðustu áratugi að raðmorðingi
sé að verki þó að lögreglunni
takist jafnvel aldrei að hafa
hendur í hári þess seka.