blaðið - 21.04.2007, Blaðsíða 55

blaðið - 21.04.2007, Blaðsíða 55
blaöiö Skjár einn 21.00 Elton John 30 ár í tónlist Skjár einn sýnir í kvöld að upp- töku frá afmælistónleikum Eltons John. Tónleikarnir voru haldnir í Madison Square Garden í New York 25. mars, á sextugsafmæli kappans. Elton hefur verið á toppnum í tón- listarheiminum í 30 ár og á tón- leikunum verður allt það besta frá litríkum ferli Sir Eltons leikið. Áhorfendur fá að sjá hann flytja ný lög í bland við gamla smelli. Stöö 2 20.25 Leitað að hinum fullkomna manni Rómantísk gamanmynd með þeim Heather Lockleár og Hilary Duff í aðalhlutverkum .verður á Stöð tvö klukkan 20.25 í kvöld. Holly er táningsstelpa sem er komin með hundleið á karla- vandamálum móður sinnar og ákveður því að taka til eigin ráða. Aðalhlutverk: Heather Locklear, Chris Noth, Hilary Duff. Leik- stjóri: Mark Rosman. Myndin er leyfð öllum aldurshópum. Sjónvarpið 20.50 Síðasta kappræðan Sjónvarpið sýnir (kvöld banda- ríska sjónvarpsmynd frá árinu 2000. Fjórum fjölmiðlamönnum er falið að leggja spurningar fyrir forsetaframbjóðendur í kappræðu þeirra viku fyrir kosn- ingar. Leikstjóri er John Badham og meðal leikenda eru James Garner, Peter Gallagher, Audra McDonald, Donna Murphy og Marco Sanchez. Stöö 2 bíó 22.00 Bjargað af skólastrák Ljúfsár og áhrifamikil kvikmynd þar sem Winona Ryder fer á kostum í aðalhlutverkinu. Ryder leikur Patty Vare, dularfulla unga konu sem er á flótta undan fortíð sinni. Hún fellur af hesti og skóla- strákurinn John Baker finnur hana meðvitundarlausa. Hann tekur hana með sér á heimavistina þar sem hún kynnist strákunum og verður fljótt augnayndi þeirra og leiðarvísir um fullorðinsárin. LAUGARDAGUR 21. APRÍL 2007 5 5 Biggi Birgir Breiðdal myndlistamaður opnar sýningu í nýju og glæsilegu húsnæði okkar laugardaginn 21. apríl Skipholti 50A • sími: 5814020 • www.gallerilist.is Danskir klámhundar: Bannaðir í Singapúr Það hefur ekki farið fram hjá þeim sem horft hafa á danskar kvik- myndir að dönskum leikstjórum og handritshöfundum þykir ekki leiðin- legt að sýna nekt og kynlíf. Orgíuatriðið úr Idioterna eftir Lars von Trier líður til að mynda þeim sem það hafa séð seint úr minni. Nú hefur þetta þjóðareinkenni danskra kvikmyndagerðarmanna komið þeim í vandræði. Hætt hefur verið við að sýna Princess, teiknimynd eftir danska leikstrjórann Anders Morgent- haler, á alþjóðlegri kvikmyndahátið í Singapúr eftir að farið var fram á að klippt yrðu út atriði sem þótti niðrandi fyrir trúarbrögð. Myndin fjallar um prest sem reynir að þurrka út fortíð dáinnar nunnu, en nunnan hafði starfað sem klámstjarna áður en hún tók trúna. Atriðið sýnir klámstjörnuna í nunnubúningi, með kross í afturendanum. Sumarútsala af Denby vörum lagersala af öllum Denby steiium í TE & KAFFI Suðurveri 60% af matarstellum 30% af kaffi- og testellum Einnig opið sunnudaginn 22 apríl frá 1 -5 TE & KAFFI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.