blaðið - 27.04.2007, Blaðsíða 1
78. tölublaó 3. árgangur
Rosenberg áfram
ÍÉk Þórður Pálmason, Doddi á
i-l Rosenberg, vill halda áfram
|K rekstri staðarins og er
ósátturvið borgarstjóra en
yMf baráttutónleikar til styrktar
staðnum verða um helgina.
Ungur snillingur
Hinn íslensk-ættaði Aaron
Coltin er nýbakaður Ameríku-
meistari í áhættusýningu á
mótorhjólum. Aaron ætlar að
sýna listir sínar fyrir framan
verslunina Nítró í dag.
n Ekki rétti tíminn
^ Henný Hinz, hagfræðingur hjá
ASl, segir að verðlækkun á
matvörum hafi yfirleitt tekist i
vel en telur þó að þetta hafi
ekki verið rétti tíminn til A
framkvæmda. ...
föstudagur
27. apríl 2007
^HJÁLST, ÓHÁÐ & ÓKE
Stor
pizza með 3 áleggjum
jl •390/“sót
Brauðstangir á 99,-
<100%
jslenskur
>stur
Þriggja ára fangelsi fyrir stórfellda líkamsárás:
Ætlaði ekki að drepa hana
■ Skvetti bensíni yfir unnustu sína og stakk hana í bakið ■ Tókst ekki að sanna ásetning
Eftir Magnús Geir Eyjólfsson magnus@bladid.net
Héraðsdómur Norðurlands eystra dæmdi í gær 46
ára karlmann, Hans Alfreð Kristjánsson, í þriggja
ára fangelsi fyrir stórfellda líkamsárás og til að
greiða fyrrum unnustu sinni hálfa milljón í miska-
bætur. Hann var hins vegar sýknaðunaf þremur
manndrápstilraunum, broti gegn líkama og lífi
og broti gegn valdstjórninni. Frá afplánun hans
dregst gæsluvarðhaldsvist hans frá 6. nóvember í
fyrra.
Fyrsta árásin átti sér stað í júní í fyrra á Kópa-
skeri. Maðurinn var kærður fyrir að hafa veist að
þáverandi unnustu sinni, hellt yfir hana bensíni
og ætlað að kveikja í henni. Hann hafi hins vegar
hætt við er honum var ljóst að hann hafði ekki
nothæf eldfæri. Ekki þótti sannað að hann hefði
skvett bensíninu yfir konuna í þeim tilgangi að
ráða henni bana og var hann því sýknaður.
Seinni árásirnar gerðust á Húsavík að kvöldi 5.
nóvember í fyrra. Var maðurinn ákærður fyrir að
hafa stungið sömu konu með hnifi í bakið neðan
við vinstra herðablað. Eftir að eldur kom upp í hús-
inu hafi hann veist að öðrum manni og stungið
hann í síðuna með þeim afleiðingum að hann
hlaut djúpt stungusár. Þá átti hann að hafa hent
logandi efni, púða, handklæði eða dúk, í konuna
þannig að hún hlaut 1. til 3. stigs brunasár á 5 til 7%
af yfirborði líkamans.
Maðurinn var sýknaður af öllum manndrápstil-
raununum þar sem ekki tókst að sanna ásetning né
að brunasár konunnar hafi getað hlotist er hún lá
meðvitundarlaus á gólfi brennandi hússins. Bæði
hafi verið of drukkin svo hægt væri að sanna að
hann hafi haft að ásetningi að drepa sambýliskonu
sína. Hins vegar þótti sannað að hann hefði framið
stórfellda líkamsárás er hann stakk hana í bakið. í
dómsorði segir að tekið sé tillit til þess að maður-
inn hafi ekki hlotið ofbeldisdóm áður.
Hljómsveitin Jakobínarína:
Undir sömu sæng og
Borgum kost
og húsaskjól
í samkomulaginu við Noreg um varnar-
mál, segir að íslensk stjórnvöld muni
veita norsku starfsliði og starfsemi
sem tengist samstarfsverkefnum
kost og húsaskjól. Aðstaðan verði í
Keflavíkurstöðinni.
Samkomulagið er pólitísk yfirlýsing sem
hægt er að segja upp með 120 daga
fyrirvara,
FRÉTTIR » 10
200 lúxusíbúðir
og skrifstofur
Um tvö hundruð íbúðir og nítján hæða
skrifstofubygging rísa á Höfðatorgi.
Fyrirhuguð uppbygging þar var kynnt
í gær en áformað er að reisa þar hús-
næði sem verður blanda af íbúðum og
atvinnuhúsnæði.
Flatarmál bygginga á Höfðatorgi verður
um sjötíu og fimm þúsund fermetrar
ofan jarðar.
FRÉTTIR »12
„Þetta fyrirtæki leitar að ungum og
spennandi listamönnum í Bretlandi,"
segir Heimir Gestur Eggertsson,
annar gítarleikari hljómsveitarinnar
Jakobínarínu. Sveitin skrifaði nýverið
undir samning við Regal-útgáfuna
sem er undirfyrirtæki útgáfurisans
Parlophone. „Þeir gáfu líka út plöt-
una með Lily Allen,“ bætir Heimir
við. Allen sló eftirminnilega í gegn í
fyrra og hefur lagt heiminn að fótum
sér síðustu mánuði.
Jakobínarína vinnur nú að sinni
fyrstu breiðskífu sem kemur út í Bret-
landi í september, en sveitin vonast
til að gefa plötuna út á íslandi fyrr.
.Platan er eiginlega tilbúin, það eru
bara smáhlutir eftir eins og umslagið,"
segir Heimir.
Jón Sæmundur, einnig þekktur
Lily Allen
sem Nonni í Dead, vinnur að hönnun
umslags plötunnar.
Óvist er hvenær Jakobínarína
kemur fram hér á landi, en sveitin
spilar næst á Englandi 17. og 18. maí
á tónlistarhátíðinni The Great Escape.
Strákarnir í Jakobínurínu verða ekki
einir fslendinga á hátíðinni þar sem
Lay Low kemur einnig fram.
ORÐLAUS » 32
Password mest
notaða lykilorðið
„Password" er algengasta lykilorð
fólks á Netinu samkvæmt nýjum
lista bandaríska tölvutímaritsins PC
Magazine. Flestir vita að það getur
reynst erfitt að finna og muna ara-
grúa lykilorða, en password, 123456,
qwerty og abc123 geta reynst ótrygg
lykilorð vegna ófrumleika þeirra.
Önnur lykilorð á lista tímaritsins
yfir tíu algengustu lykilorð netverja
eru letmein, monkey, myspacel,
passwordl, blink182 og fornafn
þess sem slær inn lykilorðið.
Vigfús Sveinbjörnsson, eigandi
tölvuverslunarinnar Start, segir
fslendinga einnig falla í þá gryfju
að velja sér auðveld lykilorð. Nöfn,
símanúmer eða 1234 sé algengast
til að komast inn á vélarnar. „Svo
vona ég nú að fólk velji sér tryggari
nöfn fyrir heimabankana s(na.“
Verð á herraklippingu
Rakarastofa Krónur
Rak. Hár, Hafnarfirði 2.500 kr.
Rak. Hárbær, Reykjavik 3.000 kr.
Rak. Austurbæjar, Reykjavík 3.350 kr.
Rak. Hárlinan, Reykjavik 3.390 kr.
Rak. Ragnars, Reykjanesbæ 2.000 kr.
Rak. Björns og Kjartans, Self. 2.650 kr
Verð í krónum á völdum hársnyrtistofum
Upplýsingar frá Neytendasamtökunum
GENGI GJALDMIÐLA
SALA %
USD 64,4 0,3 ▲
éaiwsi GBP 128,71 -0,07 ▼
mmm DKK 11,776 -0,01 ▼
• JPY 0,54 0,0 ♦
HB EUR 87,73 0,0 ♦
GENGISVÍSITALA 118,22 0,04 ▲
ÚRVALSVÍSITALA 7.717,25 -0,01 ▼
VEÐRIÐ í DAG
VEÐUR » 2
r ^
K 30-40°
► Tfsláttub
RYMINGAR-
ILane'
Erum að taka inn nýjar gerðir af rúmum frá Sealy og stólum og sófum
frá Action Lane og þurfum að rýma verslun og lager af eldri gerðum.
Afgreiðslutími virka daga: 10-18 og lau.: 11-16
Reykjavík sími: 533 3500 - Akureyri sími: 462 3504
Egilsstaðir sími: 471 2954