blaðið - 01.05.2007, Blaðsíða 1
Bók um lesblindu
Snævar Ivarsson greindist meö
lesblindu er hann var þrítugur en
Félag lesbiindra gefur út 110
L síöna bók um lesblindu í
B haust. Hún á aö berast öllum
■ skólum á landinu.
Gróska í útgáfu
Sigþrúður Gunnarsdóttir, útgáfu
stjóri barna- og unglingabóka
Eddu, segir að allir krakkar A
fái nóg aö lesa í sumar því ^
mikil gróska sé í útgáfu
bóka fyrir börn.
Spennandi kosningar
Stjórnmálaskýrendur eru vjflj
sammála um aö kosning- 1
arnar verði spennandi /m
fflk en rætt er viö þá í /■
kosningablaði
jg£. Blaösins í dag.
SÉRBUO »15"34
80. tölublað 3. árgangur
þriðjudagur
1. maí 2007
FRJALST, OHAÐ & OKE
ÍSLANDSHREYFINGIN
UfiLnAisUuuL
Samgönguáætlun ráðherra:
Sturla vill stytta tólf
ára áætlun í sjö ár
■ Raunhæft segir vegamálastjóri ■ Þekktur fyrir aö lofa upp í ermina á sér
Eftir Hlyn Orra Stefánsson hlynur@bladid.net
„Með áframhaldandi ábyrgri efnahagsstjórn undir
forystu Sjálfstæðisflokksins ætti okkur að takast
að ljúka öllum fyrirhuguðum verkefnum sam-
gönguáætlunar á næstu 7 árum, það er, að klára
12 ára áætlun fimm árum fyrr en áætlað er,“ segir
Sturla Böðvarsson samgönguráðherra í umfjöllun
Blaðsins um kosningarnar í landsbyggðarkjör-
dæmunum. Sturla lagði fyrrnefnda 12 ára áætlun
fyrir Alþingi í febrúar á þessu ári, en hún var ekki
samþykkt.
„Ég tel að öll þau verkefni sem eru á 12 ára áætlun
séu mjög brýn og það væri hið besta mál að ljúka
þeim fyrr,“ segir Jón Rögnvaldsson vegamálastjóri
1
Með ábyrgri efnahagsstjórn
ætti okkurað takastað
Ijúka öllum fyrirhuguðum
verkefnum
Sturla Böðvarsson, samgönguráðherra
sem telur raunhæft að klára hana á 7 árum. „Það
þarf þá bara að setja aukinn kraft í undirbúning á
verkefnunum, því við höfum hagað honum í sam-
ræmi við áætlanir."
Ekki eru þó allir jafn hrifnir af loforði samgöngu-
ráðherra og vegamálastjóri. Össur Skarphéðinsson,
þingmaður Samfylkingar, segir þetta vera dæmi-
gert fyrir samgönguráðherra, sem sé þekktur
fyrir að lofa upp í ermina á sér rétt fyrir kosningar.
„Þessi yfirlýsing er þó sérstök í ljósi þess að Alþingi
treysti sér ekki einu sinni til að samþykkja tólf
ára áætlunina. Það er greinilega kominn skjálfti í
Sjálfstæðisflokkinn, sem er byrjaður að kaupa sér
atkvæði."
Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri
grænna, tekur í sama streng. „Maður veit ekki hvort
maður á að hlæja eða gráta þegar maður heyrir
svona lagað. Ef hann telur þetta raunhæft núna, af
hverju andaði hann þessu ekki út úr sér þegar við
vorum að ræða vegaáætlunina fyrir tveimur mán-
uðum? Þetta segir allt sem segja þarf um hvernig
menn eru farnir að meðhöndla þessar áætlanir;
eins og um pólitísk leiktæki væri að ræða.“
SÉRBLAÐ » 28-29
Einmana stroku-
fangi sneri aftur
Búlgarski strokufanginn Vassil
Ivanov gaf sig fram viö fangaverði
um helgina þar sem hann sagðist
ekki hafa vanist frelsinu og saknað
samfanga sinna. Hinn 37 ára gamli
Ivanov flúöi fangelsiö á vormán-
uðum árið 2005, en þá hafði hann
afplánað níu af þeim ellefu árum
sem hann var dæmdur til aö afplána
vegna þjófnaðar.
„Ég gat þetta ekki lengur. Ég hafði
verið innan veggja fangelsisins í níu
ár og ég gat engan veginn vanist
lífinu utan þeirra. Ég saknaði félaga
minna í fangelsinu og það var hörmu-
legt að búa við þetta frelsi."
Ivanov mun nú sitja af sér síðustu
tvö ár dómsins í Stara Zagora-fang-
elsinu, en búist er við aö dómurinn
verði eitthvað þyngdur vegna
flóttans.
Færri rúm
í sumar en í fyrra
Fækka verður legudögum á Landspít-
ala-háskólasjúkrahúsi um 14 prósent í
sumar og er um að ræða heldur meiri
samdrátt en í fyrrasumar en þá var legu-
dögum fækkað um 10 prósent, að því
er Anna Stefánsdóttir hjúkrunarforstjóri
greinir frá.
„Starfsmenn fá ekki nema fjögurra vikna
sumarleyfi þótt þeir eigi allt að sex vikna
leyfi samkvæmt orlofslögum," segir
Anna.
Á sjúkrahúsinu á Egilsstöðum hefur
engin afleysing fengist fyrir sjúkraliða
og hjúkrunarfræðinga í sumar. Fram-
kvæmdaráð Heilbrigðisstof nunar Austur-
lands á Egilsstöðum hefur þess vegna
ákveðið að loka fyrir allar innlagnir á
sjúkrahúsið frá föstudeginum 11. maí í
óákveðinn tíma.
FRÉTTIR » 4
Hættur
Bjarni Ármannsson lét í gær af störfum sem forstjóri Glitnis. Við starfi hans tók hinn þrítugi Lárus Welding sem áður var útibús-
stjóri Landsbankans í London. Miklar hræringar hafa verið I hluthafahópi Glitnis undafarinn mánuð og eru forstjóraskiptin afleiðing
þeirra. Hátt í 300 manns sóttu hluthafafundinn sem haldinn var í höfuðstöðvum Glitnis á Kirkjusandi í gær þar sem kjörnir voru
fimm nýir stjórnarmenn af sjö. FRÉTTIR » 2
NEYTENDAVAKTIN
Verð á pela af rjóma
Verslun Krónur
Bónus 149
Fjarðarkaup 159
Hagkaup 176
Kaskó 154
Krónan 150
Verslun Krónur
Nettó 155
Nóatún 176
Samkaup-Úv. 172
10- 11 187
11- 11 187
Verð I gær á '/* I pela af rjóma I völdum verslunum
Upplýslngar frá Neytendasamtökunum
GENGI GJALDMIÐLA
SALA %
USD 64,13 ■0,27 ▼
SI3 GBP 128,44 ■0,24 ▼
5S DKK 11,77 ■0,16 ▼
• JPY 0,54 -0,17 ▼
H9 eur 87,74 ■0,14 T
GENGISVÍSITALA 117,94 -0,45 ▼
ÚRVALSVÍSITALA 7754.73 -0,30 ▼
VEÐRIÐ I DAG
VEÐUR » 2
RYMINGAR
I HTMINUAK-
ISALA!
oMarcð
30-40°/«
^suáttub
Afgreiðslutími virka daga: 10-18 og lau.: 11-16
Reykjavik sími: 533 3500 - Akureyri sími: 462 3504
Egilsstaðir: sími: 471 2954
Erum aö taka inn nýjar gerðir af rúmum frá Seaiy og stólum og sófum
frá Action Lane og þurfum að rýma verslun og lager af eldri gerðum.