blaðið - 08.05.2007, Blaðsíða 1

blaðið - 08.05.2007, Blaðsíða 1
Æstir aðdáendur Særún Ósk Pálmadóttir leikur k á horn í hljómsveit Bjarkar f Guömundsdóttur og segir að í Bandaríkjunum séu fleiri brjálaöir aðdáendur en á íslandi. Ný plata Jagúar Fönkskotin big band- Æ tónlist er einkennandi mk á Fnyk, nýjum diski Samúels Jóns Samúels- 9 sonar básúnuleikara og M Jagúar. Spennan eykst Baldur Þórhallsson, pró- fessor í stjórnmálafræöi segir skoðanakannanir , mjög misvísandi en i Ijóst sé að VG séu ji aðsækjaá. tm SÉRBLAÐ » 17-32 84. tölublað 3. árgangur þriðjudagur 8. maí 2007 FRJÁLST, ÓHÁÐ & ÓKFjggg£ Eftirlaunagreiðslur fyrrum ráðherra og þingmanna Fjórðungs aukning síðustu fimm árin ■ 225 einstaklingar þiggja greiðslurnar ■ Framkvæmdastjóri ASÍ segir lögin vera ólög Eftir Þórð Snæ Júliusson thordur@bladid.net Kostnaður ríkissjóðs vegna eftirlaunagreiðslna fyrrverandi alþingismanna og ráðherra hefur aukist um tæplega 25 prósent frá árinu 2002. Samkvæmt upplýsingum frá Lífeyrissjóði starfs- manna ríkisins var heildarupphæð lífeyris- greiðslna til þessa hóps 341 milljón króna í fyrra en var 274 milljónir króna á núvirði árið 2002. Alls þiggja 225 einstaklingar þessar greiðslur, 39 ráðherrar og 186 þingmenn. Helstu lagalegu breytingarnar sem átt hafa sér stað á þessum tímabili eru setning nýrra laga um eftirlaun ráðamanna þjóðarinnar sem tóku gildi 30. desember 2003. Þar var eftirlaunaréttur þeirra rýmkaður umfram það sem almennt tíðk- ast í þjóðfélaginu. Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmdastjóri Alþýðu- sambands Islands, segir eftirlaunalögin ekki ein- ungis ósanngjörn heldur beinlínis ósiðleg. „Það er fullt af fólki sem stendur frammi fyrir því að skipta um starfsvettvang sem ekki nýtur þessara kjara, til dæmis konur á miðjum aldri í Bolung- arvík þar sem verið er að loka rækjuvinnslunni. Ekki hafa alþingismenn talið ástæðu til að vera með sérstakar aðgerðir til að auðvelda því fólki tilveruna. Þannig að þau sjálfsvorkunnarrök þingmanna að þeir búi við sérstaklega vondar aðstæður á vinnumarkaði eiga ekki við nein rök að styðjast og það er móðgun við launafólk í land- inu að bera þetta á borð. Það er engin breyting á okkar afstöðu um að þessi lög eru ólög.“ FRÉTTIR » 4 Allir í einbýli Allar sjúkrastofur nýs þjóðarsjúkrahúss verða einbýli með sérsnyrtingu. Legu- deildarrýmin verða 360 en alls verður um að ræða 500 rúma bráðaspítala þegar meðtalin eru gjörgæsludeild, barnaspítali og fæðingardeild, að sögn Ingólfs Þórissonar, verkefnisstjóra nýs háskólasjúkrahúss. FRÉTTIR » 4 Uggandi um börnin Mats Wibe Lund, íbúa í Árbæ, óar við því að opnuð verði mótorhjólabúð í hverfinu. „Við erum hrædd við þann hraðakstur og hávaða sem myndi fylgja slíkri starfsemi," segir Mats. „Að hafa mótor- hjólaverslun í miðri íbúabyggð er ekkert sérstaklega sniðugt svo vægt sé til orða tekið." FRÉTTIR » 6 Á bak við drottninguna Breskir og bandarískir nemendur fögnuðu forseta Bandaríkjanna George W. Bush og bresku drottningunni Elísabetu II. fyrir framan Hvíta húsiö í Washington-borg í gær. Tekiö var á móti drottningunni með viöhöfn og riðu 21 skot af byssum og var frúnni boðið í glæsilegan kvöldverð. Sendibílar til leigu www.cargobiiar.ls Andvökunætur liðin tíð? Bandarískir vísindamenn hafa útbúið tæki sem gerir mönnum kleift að ná djúpum svefni, einfaldlega meö því að þrýsta á takka. Tækiö örvar heilann með því að senda segulbylgjur inn í heilann og veita likamanum nauðsynlega hvíld, sem venjulega næst með átta klukku- stunda svefni, á einungis tveimur til þremur klukkustundum. Visindamennirnir hafa komist að því að með því að staðsetja tækið á réttan hátt á höfuðið er hægt að senda svokallaðar hægbylgjur inn í heilann, en hægbylgjusvefn er nauðsynlegur til að heilinn hvílist nægilega. „Með því að geta skapaö hægbylgjur eftir pöntun væri hugs- anlega hægt að finna ný meðferðar- úrræði við svefnleysi í framtíðinni," segir Giulio Tononi, prófessor við Wisconsin-Madison háskólann. NEYTENDAVAKTIN Verð á skyr.is með bláberjum 3 Verslun Krónur Verslun Krónur Bónus 166 Nettó 169 Fjarðarkaup 182 Nóatún 210 Hagkaup 209 Samkaup-Úv.209 Kaskó 167 10-11 224 Krónan 167 11-11 224 Verð í gær á skyr.is með bláberjum í 500 g dós Upplýsingar frá Neytendasamtökunum GENGI GJALDMIÐLA ■s USD SALA 63,76 % -0,32 T 1 GBP 127,24 0,13 ▲ mmm ■ ■ DKK 11,66 0,10 ▲ • JPY 0,53 0,02 ▲ BB EUR 86,88 0,10 A GENGISVÍSITALA 117,38 0,0 ♦ ÚRVALSVÍSITALA 7.814.66 -0,60 T VEÐRIÐ í DAG VEÐUR » 2 framsokn.is / Okeypis tannvernd til 18 ára aldurs l 2007 f) Framsókn

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.