blaðið - 09.05.2007, Blaðsíða 1
Veldu gœði, veldu
ÖeZ Monte
18
Landsins elsti
ísskápur?
19
Banabiti kóngsins
20
Kúrekasmákök-
ur Lauru Bush
21
Grillaö surf & turf
á 30 mínútum
Krydd í tilveruna
22 Veisluþjónusta fyrir öll tækifæri
Asískt á grillið
23
Grilluö kjúklinga-
læri í beikoni
Nú þegar hásumarið nálgast
óðum eru margir í þeim sporum að
skipuleggja grillveislur. Ef von er á
mörgum gestum þarf í mörg horn að
líta og án efa er umsvifamesti þáttur-
inn í þeirri skipulagningu maturinn.
Veisluþjónustan Krydd í tilveruna
hefur nú um tveggja ára skeið boðið
upp á magnaða grillþjónustu sem
mun án efa taka mesta erfiðið af
þeim sem eru að skipuleggja stórar
grillveislur.
Heiðar Hallgrímsson, eigandi
veisluþjónustunnar, segir að vin-
sældir þessarar þjónustu hafi auk-
ist með hverju árinu sem líður og
að þeir sem hafi einu sinni nýtt sér
þjónustu Krydds í tilveruna geri það
aftur þurfi þeir á veisluþjónustu að
halda. Enda engin furða þar sem
mikil þægindi fylgja því að fá fag-
menn á borð við starfsfólk Krydds í
tilveruna fyrir veisluna. „Fólk þarf
í raun og veru ekkert að gera nema
bara hringja í okkur og panta. Við
komum á staðinn með allt sem til
þarf og grillum fyrir fólkið. Svo eftir
matinn göngum við frá og þá er bara
eins og við höfum aldrei komið.“
Krydd í tilveruna marinerar allt
sitt kjöt sjálft og það er allt beinlaust.
,Við búum líka til allt okkar meðlæti
sjálfir svo sem kartöflusalat og dress-
ingar sem eru öðruvísi en það hefð-
bundna sem boðið er upp á.“
Vert er að taka fram að staðsetn-
ing veislunnar er engin fyrirstaða.
„Við getum grillað hvar sem er. Þó svo
að veislan sé á íjórðu hæð í blokk þá
getum við komið okkur fyrir á svöl-
unum þvi við erum með sérstök grill
sem við getum borið með okkur.“
Það er því engin spurning að
veisluþjónustan Krydd í tilveruna
getur létt mörgum lífið, hvort sem
halda þarf stóra grillveislu eða veislu
af einhverju öðru tagi. Áhugasamir
ættu því hiklaust að kynna sér góða
og persónulega þjónustu Krydds í
tiíveruna á heimasíðu þeirra, www.
veisluthjonusta.is, eða hafa samband
í síma 8220036.
Ævintýralega gott!
Miðjarðarhafs skötuselsfiðrildi
í tómat og basil.