blaðið - 10.05.2007, Blaðsíða 1

blaðið - 10.05.2007, Blaðsíða 1
Hjálpa París Hilton Hörð keppni 86. tölublaó 3. árgangur fimmtudagur 10. maí 2007 FRJÁLST, ÓHÁD & ÓKi Sveinn Rúnar Sigurðsson, höf- undur íslenska Eurovision-lags k ins, er hæfilega bjartsýnn jfr, á aö viö komumst upp úr B undankeppni í kvöld en W vonar þaö besta. Paris Hilton stendur i strongu þessa dagana við aö reyna aö foröa sjálfri sér frá fangelsisvist en vinir hennar hafa sett upp undirskrifta- lista á Netinu. ORÐLAUS » 52 42 EUROVISION » Islenskur tölvuleikur Islenska tölvuleikjafyrirtækið Gogogic hefur unnið aö leik sínum Boss of Bosses í eitt ár og segir Jónas Björgvin Antonsson, einn eigend- anna, aö vel gangi. 48K »38 Kemst Eiki áfram? Mikil spenna ríkir fyrir undanúrslit Eurovision í kvöld. Rauðhærði rokkarinn, Eiríkur Hauksson, stígur á sviö í Helsinki í kvöld og flytur framlag (slands í undankeppni Eurovision „Ég les í lófa þínum” eöa „Valentine lost”. Dagskráin hefur verið þétt hjá íslenska hópnum undanfarna daga en lokaprófið var í gær. Eiríkur verður 5. í rööinni í undankeppninni en 28 þjóðir taka þátt í henni og komast 10 efstu áfram í úrslit sem fram fara á laugardagskvöld. EUROVISION » 42-43 Auknir möguleikar í hjúkrun: Mega reka eigin stofur ■ Dregur úr álagi ■ Hagkvæmt fyrir samfélagið Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur ingibjorg@bladid.net Með nýjum lögum um heilbrigð- isþjónustu, sem taka gildi þann í. september næstkomandi, fá hjúkr- unarfræðingar möguleika til sjálf- stæðs stofureksturs. Reki hjúkr- unarfræðingar eigin stofur getur það dregið úr álaginu á Landspít- alanum, að mati Elsu B. Friðfinns- dóttur, formanns Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. „Á sérstökum stofum hjúkrun- arfræðinga væri hægt að sinna þjónustu sem nú fer að miklu leyti fram á göngudeildum spítalans. Á hjúkrunarstofurnar gætu komið einstaklingar með langvinna sjúk- dóma sem þurfa eftirlit og fræðslu og koma í mælingar auk ýmislegs annars. Það eru alla jafna hjúkr- unarfræðingar sem sinna þessum þáttum inni á spítalanum," bendir Elsa á. Hún telur að hjúkrunarstofur séu þjónustuform sem geti verið hag- kvæmara fyrir samfélagið þar sem þjónustuna muni þeir veita sem besta þekkingu hafi á eðli hennar. „Þetta er ekki bara spurning um að hjúkrunarfræðingar hasli sér völl, heldur er þetta ekki síður spurn- ing um að skjólstæðingar fari inn í kerfi sem er tiltölulega einfalt. Það er oft farið með þjónustuna í dýr- ara umhverfi en þörf er á.“ Elsa útilokar ekki að starfsemi hjúkrunarstofa geti leitt til þess það þarfað skil- greina hvar eigi að vinna störfin Elsa B. Friöfinnsdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga að færri hjúkrunarfræðingar ráði sig á Landspítalann. „Auðvitað gæti það orðið raunin. En það þarf að skilgreina hvar eigi að vinna störfin og hver eigi að vinna þau. Á ársfundi Landspítalans sagði fram- kvæmdastjóri fjárreiðna og upp- lýsinga að ekki yrði gengið lengra í hagræðingu. Þá má spyrja hvort spítalinn sé ekki orðinn of stór til þess að um sé að ræða nógu skil- virka rekstrareiningu.“ Að sögn Elsu er það líka nauðsyn- legt að sérhæft starfsfólk hafi mögu- leika á að starfa annars staðar en á Landspítalanum. „Það yrði öllum til hagsbóta að hafa fleiri mögu- leika, bæði skjólstæðingum og starfsmönnum." Formaðurinn sér ekkert því til fyrirstöðu að hjúkrunarfræðingar, sem fagnað hafa nýjum mögu- leikum, hefji stofurekstur strax í haust. „Til þess að sjúkratrygg- ingar borgi þyrfti að gera samn- ing við ráðuneyti um gjaldskrá og annað. Slíkt þarf náttúrlega að und- irbúa. En auðvitað gætu hjúkrunar- fræðingar opnað svona stofu strax í haust ef fólk yrði tilbúið að borga úr eigin vasa fyrir þjónustuna.“ Á Landspítalanum Reki hjúkrunarfræðingar eigin stofur getur þaö dregið úr álagi. 10-14 mai Crillaður kjúklingur, aoeins franskar og 2 I. Coke 899kf Pepsi Max 21 99kr > Opið alla daga frá kl. 10.-20. S?,R Bæjarlind 1 - Sími 544 4510 Selur ímyndaðan vin sinn á eBay Bandaríkjamaður hefur ákveðiö aö selja ímyndaðan vin sinn á upp- boössíðunni eBay og hefur hæsta boð þegarfarið upp í 200 þúsund krónur. Á síðunni segir að seljandinn sé orðinn 27 ára gamall og vaxinn upp úr því að eiga ímyndaöa vininn Jon Malipieman. „Jon er mjög vingjarnlegur og meö í kaupunum fylgir listi yfir hiuti sem honum líkar og mislíkar, uppáhaldstómstundaiðja hans auk sjálfsmyndar hans,“ segir á síðunni. Fjölmargir hafa lagt fram spurn- ingar um Jon á siöunni og segir seljandinn að Jon sé sem stendur einhleypur. „Hann er mikill kvenna- maöur, en hann hefur verið að þroskast er og farinn að huga að því aö festa rætur.” Samfylkingin

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.