blaðið - 10.05.2007, Blaðsíða 2
FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 2007 blaAÍÖ
WpKORT/Ðl
R
ÆZsvatnasvæði
fyrir aðeins 5000 krónur!
Handbók með ítarlegum upplýsingum, kortum o.fl. fylgir!
Fæst á N1, í veiðivöruverslunum og á www.veidikortid.is
Gott í garðinn
O
o o
o
o o
Góður alhliða áburöur.
Hentar vel í öll blómabeö, fyrír
matjurtir, skrautrunna og tré.
Inniheldur öll helstu næringar-
og snefilefni.
Berið á 3-4 sinnum yfir vaxtar-
tímann frá maí fram í miðjan júlí
AburðaruerRsmiðjan
www.aburdur.is
Fæst í öllum helstu garöyrkju- og byggingavöruverslunum landsins
26 • SUMARBLAÐIÐ
Mauðsynlegt í garðinn:
Hvað þarf til að
njóta sumarsins?
ft
Pláss fyrir alla fjölskylduna
Leiðintegt ef það geta ekki
allir fengið sæti við borðið.
Ef rætist úr björtustu vonum lands-
manna þá eigum við von á sólríku og
góðu sumri. Tilfinningalíf landans
tengist veðurfarinu sterkum böndum
enda engin furða þar sem landið
hefur allt frá landnámi átt allt sitt
undir náð og miskunn veðurguðanna.
Á góðviðrisdögum er sem fslendingar
fái verðskuldaða vítamínsprautu sem
vekur allt mannlífið upp af værum
vetrarblundi.
Þegar sól skín í heiði er fátt betra en
að njóta lífsins í fallegum garði með
fjölskyldunni. Þá er mikilvægt að
garðurinn sé vel búinn af öllum nauð-
synlegum garðhúsgögnum og auka-
hlutum svo að allir geti notið sín sem
skyldi. Hér að neðan koma nokkrir
hlutir sem eru ómissandi í garðinum.
Afslöppun
Það jafnast fátt á við það að flatmaga
í hengirúmi á heitum sumardögum.
Hengirúmamenningin hefur að vissu
leyti farið framhjá íslendingum og
er því tími til kominn
að fólk fari að kynnast
þessum einstaklega
þægilegurúmum.Hefð-
bundin hengirúm eru
strengd á milli tveggja
stórra trjáa en sá val-
kostur er ekki alltaf
hentugur hér heima
þar sem stór tré eru af
skornum skammti. í
þeim tilvikum er hægt
að fá hengirúmin á þar
til gerðum standi þannig
að hægt er að setja upp
hengirúmin nánast hvar sem er. Lífið
gerist varla betra en það.
er hann með
öryggisneti
sem tryggir
aðeins betur
öryggið varð-
andi hann.
Því er engin ástæða til að skjálfa
lengur.
ilvægasta í hverjum garði er grillið
eða eldunaraðstaðan. Sumir kjósa að
fjárfesta í hefðbundnum kola- eða gas-
grillum á meðan aðrir velja að hlaða
sér grill sem eru þó nokkuð persónu-
legri en þó mun meiri vinna á bak við
þau. En hvora leiðina sem fólk velur
er mikilvægt að eldunaraðstaðan sé
þægileg í notkun og hagnýt.
Ylur
fslensk sumur eru ekki alltaf þau
heitustu og því er gott að hafa eitthvað
til að ylja sér við. Landsmenn hafa í
gegnum tíðina yljað sér við útiarna og
kamínur en stundum er tilbreytingar
þörf og þá eru eldpy ttirnir svokölluðu
frábær viðbót í flóruna. Eldpyttina er
hægt að fá í mörgum mismunandi út-
færslum en þessi tiltekni eldpyttur er
gerður úr kopar og eins og sjá má þá
Rómantík
Ekkert er rómantiskara en að sitja
saman og horfa á sólsetrið. En ef fólk
vill ekki sætta sig við að sitja á blautu
grasi eða hörðum steini þá er það kær-
komin tilbreyting að sitja á einhverju
mjúku og þægilegu. Garðrólur koma
fyrir í mörgum bandarískum kvik-
myndum og hefur marga í gegnum
tíðina dreymt um að fjárfesta í einni
slíkri til að hafa í garðinum sínum.
Því er spurning hvort ekki sé kominn
tími til að kynda aðeins undir róman-
tíkinni með fallegri garðrólu fyrir þig
og ástina þína, eða þá þig og köttinn.
Eldamennskan
Sumarið er hátími grilleldamennsk-
unnar enda engin furða þar sem
aðrir árstfmar bjóða varla upp á það
að fólk hangi úti við og snúi við lær-
issneiðunum í brunagaddi. Það mik-
Fjölskyldan
Þegar kemur að því að borða allan
þennan góða mat sem eldaður er utan-
dyra er mikilvægt að allir fjölskyldu-
meðlimir geti sest að borðum. Því þarf
borðið að vera nægilega stórt til að
pláss sé fyrir alla og jafnvel rými fyrir
einn til tvo gesti. Sólhlífar yfir mat-
arborðinu sjá til þess að fólk snæðir
ekki með sólina í augunum og sér því
hvað það lætur ofan í sig. Hægt er að
fjárfesta í stærðarinnar borðum með
áföstum sólhlífum víða og því engin
spurning að það geti margborgað sig
svo allir geti notið matar síns.
En það mikilvægasta í garðinum er
að sjálfsögðu fjölskyldan og vinirnir
og því er miícilvægt að garðurinn
skapi vinalegt andrúmsloft og þægi-
lega stemningu. Ef því markmiði er
náð er aht annað bara fylgihlutir.
Gómsæt og sumarleg
Ljúffengt Bakaöar kartöflur henta eink-
ar vel með grillmat og ekki er verra að
hafa Ijúffenga sósu með þeim.
Það er fátt eins sumarlegt og
daufur grillkeimur í loftinu enda
er sérstaklega mikið um grill og
grillmat á sumrin. Flestir nýta
grillið óspart á sumrin og fá sér
grillmat með fersku salati og bök-
uðum kartöflum. Bakaðar kart-
öflur eru vinsælt meðlæti með
grillmatnum enda frekar einfalt
að skella nokkrum kartöflum á
grillið. Ofan í kartöfluna er jafnan
sett annað hvort smjör eða sósa,
allt eftir smekk. Hér að neðan má
finna uppskrift að ljúffengri osta-
sósu sem er tilvalin til að skella
ofan í kartöfluna. Ekki er verra að
hún er einstaklega fitandi og góm-
sæt eftir þvi.
1 rjómaostur
1 dolla þurrkaðir beikonbitar
Geymið rjómaostinn við stofu-
hita í nokkra tíma svo hann linist.
Hrærið vel í rjómaostinum svo
hann verði mjúkur og meðfæri-
legur. Setjið beikonbita í rjóma-
ostinn eftir smekk og hrærið vel
saman. Geymið í kæli í nokkra
tíma áður en borðað er.