blaðið - 10.05.2007, Blaðsíða 3

blaðið - 10.05.2007, Blaðsíða 3
blaÖÍA FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 2007 SUMARBLAÐIÐ • 27 Lokkandi sumarsalat Með hækkandi sól og aukinni úti- veru á sumrin verða máltíðir lands- manna töluvert léttari og ferskari. Þyngri matur eins og kjötsúpa, salt- kjöt og þungir pottréttir fær að hvíla sig en þess í stað gæða landsmenn sér á grilluðu kjöti, góðum fisk- réttum og fersku salati. Ferskt salat er einmitt mjög vinsælt á sumrin enda gott meðlæti með grilluðum mat auk þess að vera frískandi og hollt. Margir eru með salat á mat- arborðinu allt árið um kring og eru því jafnvel orðnir eilítið þreyttir á hefðbundnu salati með tómötum, gúrku og papriku. Það er því tilvalið að hressa upp á gamla góða salatið og hér að neðan má finna nokkur ljúffeng hráefni sem eru ómissandi með. • Það er gott að blanda saman mismunandi salati í stað þess að einblína á eina tegund. Það má til dæmis blanda saman kletta- salati, spínati, lambhagasalati og svo framvegis. • Ávextir hressa upp á salatið og gefa því ferskari og sumarlegri keim. Ávextir sem henta vel í salat eru til að mynda mangó, vín- ber, jarðarber, kíví og melónur. • Salat er frekar mjúkt undir tönn og því getur verið gott að hafa eitthvað stökkt til að auka fjöl- breytnina. Sellerí er því tilvalið í salatið. • Rúsínur henta einkar vel með sal- ati og bragðbæta það. • í seinni tíð hefur verið vinsælt að hafa furuhnetur í salatinu en þær eru léttristaðar á pönnu áður. Það er hins vegar óþarfi að einskorða sig við furuhnetur því einnig er gott að hafa alls kyns fræ í salatinu og annars konar hnetur. • Margir kunna vel að meta að hafa fetaost í salati en annar ostur hentar álíka vel. Það er til að mynda sérstaklega ljúffengt að hafa jafnvel 2-3 tegundir af osti í salatinu. Til að mynda piparost, fetaost og hefðbundinn heimilisost. 9 Þeir sem kjósa að hafa meiri mat í salatinu geta bætt í það laxi, tún- fiski, rækjum, spægipylsu, kjúk- lingi eða hvaða kjöti sem er. Frönsk salatsósa 5 msk. jómfrúarolía 2 msk. sítrónusafi V2 tsk. sykur sinnepsduft salt nýmalaöur pipar graslaukur Salt og nýmalaður pipar er sett saman við sinnepsduft og Vi tsk. af sykri. Því er blandað út í 2 msk. af sí- trónusafa og hrært uns salt og sykur er uppleyst. Þar næst er 5 msk. af Matarmikið Það er um að gera að hressa upp á gamla góða sal- atið með rúsínum, osti, ávöxtum jómfrúarolíu þey tt saman við krydd- blönduna. Klippið graslauk yfir sós- una og hellið henni yfir salatið. Svartir túlipanar Þykja óvenju- legir og fallegir, en svarti liturinn er talinn vera styrkjandi og auka sjálfstraust. Táknræn litadýrð Túlípanar eru meðal vinsælustu garðblóma á islandi og ekki að ástæðulausu, enda þykja þeir afskaplega fallegir og sumar- legir. Þeir þrífast vel hér á landi enda þurfa þeir á köldum vetrum að halda til þess að geta orðið langlífir. Margir tengja túlípana við Holland og öfugt, en þeir eru þó upprunalega frá Mið-Austur- löndum og bárust til Evrópu á sautjándu öld. Túlípanar eru til í fjölmörgum fal- legum litum og fyrir þá sem eyða miklum tíma í garðinum er ekki úr vegi að skoða hvaða áhrif mis- munandi litir - á túlípönum og öðru - hafa á okkur mannfólkið. ■ Svartur er talinn vera styrkj- andi og auka sjálfstraust, en túlípanar eru einmitt meðal fárra blóma sem til eru í svörtum lit. ■ Blár þykir róa taugarnar og lækka blóðþrýstinginn. ■ Fjólublár skapar friðsamlegt umhverfi. Bleikur er slakandi og streitulosandi. Gulur veitir orku og minnkar depurð. Appelsínugulur veitir sömu- leiðis orku og er örvandi. 11 Rauður örvar heilastarfsemina auk þess sem hann eykur virkni hjartans og öndunarfæranna og hækkar blóðþrýstinginn. co o> 03 =3 ■d -Q. E Auglýsingasíminn er 510 3744 Afar þægileg og endingargóð garöhúsg’ögn á veröndina, svalirnar, sumarbústaöinn eöa sólstofuna - 25 ára reynsla á íslandi www.valhusgogn.is Röltu um verslunina okkar i rólegheitum á netinu með nýja 360° sýningarkerfinu okkar - Þetta verður þú aö prófa! Opiövirka daga 10-18 Laugardaga 11-16 ^Bfhúsqöqn Ármúla 8-108 Reykjavik Sími 581 2275 m 568 5375 _____________________)

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.